Vikan - 21.11.1963, Page 22
Vel greitt bár hefur
Rúna Brynjólfs
Rúna Brynjólfs heitir nú raunar orSið Rúna
B, O’Rourke, því hún er gift vestur í New York
og býr þar búi sínu. En hérna á íslandi höld-
um við okkur bara við það áfram að kalla hana
Rúnu Brynjólfs, að góðum og gömlum sið.
Rúna er ein af okkar þekktustu fegurðardís-
um, var í fegurðarsamkeppninni eitt árið og
þar að auki þjálfuð sýningarstúlka, fótómódel
og fyrrum flugfreyja hjá Loftleiðum. En nú er
hún sem sagt gift lögfræðingi vestur í New
York. Hún hefur alla tíð verið og er enn -
mjög vel að sér í heimi tízkunnar, veit allt um
hræringar hennar og er með annan fótinn í
helztu tízkustofnunum borgarinnar.
Nú hefur Rúna orðið við beiðni Vikunnar
um það, að skrifa öðru hvoru eitthvað úr þeim
furðuheimi, sem við hér þekkjum aðeins af
afspurn. Hún byrjar á viðtali við sjálfan Oleg
Cassini, tízkukonung New York, sem birtist
hér.
meira
afldráttarafl
enflestir
segir
hattar
Frá alda öðli hafa verið skipt-
ar skoðanir um það, hvort kon-
an skapi fötin, eins og komizt
er að orði, eða hvort það séu
fötin, sem skapi konuna. í leit
að svari við þeirri spurningu
ákvað ég að kanna málið nokk-
uð með þvi að eiga viðtal við
Oleg Cassini, sem eins og kunn-
ugt er teiknar föt forsetafrúai
Bandaríkjanna, Jacqeline Kenn-
edy.
— Er það álit yðar, mr. Cass-
ini, að það sér konan, sem setji
svip sinn á fötin, eða hallizt þér
fremur að því, að fötin móti
konuna?
— Hvort tveggja má til sanns
vegar færa. Þar á ég við, að ef
konan hefur hvorki góðan
sntekk né löngun til þess að
klæðast glæsilega, geta engin
föt gert hana glæsilega eða að-
laðandi. Hins vegar má segja,
að hve góður sem smekkur
hennar er og hversu fegin sem
hún vildi klæða sig vel, er það
ekki framkvæmanlegt nema
hún eigi kost á fötum, sem hæfa
útiti hennar, véxti og manngerð.
Ég gæti haldið endalaust áfram
að rökræða þetta, en eflaust haf-
ið þér fleiri spurningar.
— Eg tók eftir því, að þér lögðuð áherzlu á orðin „góður
smekkur“. Munduð þér vilja útskýra nánar, hvað þér eigið við
með þeim orðum? Álítið þér, að góður smekkur sé meðfædd-
ur eða áunninn?
— Ég hallast frekar að þeirri skoðun, að góðan smekk sé
hægt að tileinka sér. Sumir hafa að vísu meðfæddan góðan
smeklc, en flestir læra að velja rétt með menntun, æfingu og
reynslu. Hvað góðum smekk á fötum viðvikur, er það skoðun
mín, að allir sem gefa sér tima til að kynna sér það efni og
leita ráða sérfræðinga á því sviði, meðfram því að þeir veita
í viðtali
við
Rúnu
Brynjólfs
22 — VIKAN 47. tbl.