Vikan


Vikan - 02.01.1964, Blaðsíða 28

Vikan - 02.01.1964, Blaðsíða 28
Forstjórinn strauk vangann. „Aha. Og hvernig hafið þér hugsað yður að hafa hana?“ „Ég hef hana hryllilega, auð- vitað, með dálitlum kímnikeim þó.“ Hinn kinkaði kotli og rétti Hcwson sígarettuhylki sitt. „Jæja þá, Hewson,“ sagði liann. „Fáið sögu yðar hirta í Morgunpóstinum og það skal bíða yðar fimm punda seðill hér, þegar yður þóknast að vitja Iians. En takið eftir. Það er engin smáraun, sem þér eruð að takast á hendur. Ég vil geta reitt mig á yður og vil, að þér treystið sjálfum yður full- komlega. Ég játa, að ég mundi ekki vilja fást við þetta. Ég hef séð þessar figúrur klæddar og afklæddar, og ég veit allt um. hvernig þær eru hiinar til. f félagsskap annarra get ég gengið um þarna niðri án þess að láta mér bregða hið allra minnsta, en ekkert gæti fengið mig til að sofa einn þarna niðri hjá þeim.“ „Því þá?“ spurði Hewson. „Ég veit ekki. Ég kann ekki að nefna neina ástæðu. Ég trúi ekki á drauga. Ef ég gerði það, myndi ég búast við, að þeir ásæktu staðina, þar sem þeir frömdu glæpi sína eða líkamir þeirra voru lagðir til hvilu, en ekki kjallara, sém hefur að geyma vaxmyndir þeirra. Samt get ég ekki fengið mig til að dvelja meðal þeirra aleinn að nóttu til og þola þetta star- andi augnaráð þeirra. Þegar öllu er á botninn hvolft tákna þó þessar vaxmyndir óhuganleg- ustu dreggjar inannfélagsins, og ■—• þó ég myndi ekki kannast við það opinberlega — eru gest- irnir, sem koraa að sjá þær, ekki beinlinis til fyrirmyndar. Allt andrúmsloft staðarins er óhuganlegt, og ef þér eruð næm- ur fyrir umhverfinu, þá vil ég aðvara yður um, að þér eigið mjög svo óskemmtilega nótt i vændum." Það hafði Hewson nú reyndar gert sér ljóst, þegar hugmyndin flaug honum fyrst í liug. Það fór hrollur um hann við til- hugsunina, enda þótt hann brosti kæruleysislega til forstjórans. En hann hafði fyrir konu og börnum að sjá, og undanfarinn mánuð hafði eina tekjulindin v’erið greinar úr hraðminnk- andi varasjóði hans. Þetta tæki- 2g — VIKAN L tbL færi mátti ekki úr greipum hans ganga — andvirði heillar sögu í Morgunpóstinum og fimm punda seðill að auki. Það þýddi auð og allsnægtir í viku og lausn frá verstu áhyggjunum i hálfan mánuð. Auk þess gæti það leitt til tilboðs um stöðuga atvinnu, ef hann skrifaði söguna vel. „Vegir misindismanna — og blaðamanna — eru oft hrjúfir,“ sagði hann. „Ég hef þegar sætt mig við tilhugsunina um að eiga hér óþægilega nótt, þvi morðingjadeild yðar er áreiðan- lega ekkert í líkingu við svefn- lierbergi á hóteli. En ég trúi ekki, að vaxmyndir yðar komi til með að raska ró minni.“ „Þér eruð ekki hjátrúarfull- ur?“ „Ekki hið minnsta,“ sagði Hewson hlæandi. „En þér eruð blaðamaður. Þér hljótið að hafa auðugt imynd- unarafl.“ „Ritstjórarnir, sem ég hef starfað hjá, hafa alltaf kvartað undan þvi, að ég hafi það alls ekki. Staðreyndirnar einar hafa aldrei þótt fullnægjandi í mínu starfi, og hlöðin kæra sig ekki uui að ala lesendur sina á ó- krydduðu fóðri.“ Forstjórinn brosti og reis á fætur. „Einmitt,“ sagði hann. „Ég lield að siðustu gestirnir séu nú á hrott. Biðið andartak. Ég ætla að gefa fyrirmæli um, að ekki sé breitt yfir figúrurnar þarna niðri, og látið næturverð- ina vita af yður. Svo skal ég fylgja yður niður og sýna yður hið markverðasta." Hann lyfti tólinu á innanhúss- simanum, sagði nokkur orð i það og lagði það svo frá sér eftir skamma stund. „Ég er hræddur um, að ég verði að biðja yður að full- nægja einu skilyrði,“ sagði hann. „Ég verð að biðja yður um að reykja ekki. Það var gefin að- vörun um eldhættu í morðingja- deildinni í kvöld. Ég veit ekki hver gaf hana, en allavega reynd- ist hún ekki á rökum reyst. Sem betur fer voru fáir þarna niðri, þegar þetta viarð, að öðrum kosti hefði mátt búast við ring- ulreið. Jæja, ef þér eruð nú tilbúinn, skulum við koma.“ Hewson fylgdi forstjóranum gegnum nokkur herbergi, þar sem umsjónarmenn voru i óða :.iíl i. . ■'tí IB E ' Jj önn að breiða yfir kónga og drottningar Englands, herfor- ingja og fræga stjórnmálamenn liðinna kynslóða, úrtalc þeirra manna, sem vegna frægðar sinn- ar eða illræmsku, töldust hæfir aðilar að þeim ódauðleika, sem hér var um að ræða. Forstjór- inn stanzaði einu sinni og tal- aði við einkennisklæddan mann um hægindastól í morðingja- deildinni. „Ég er hræddur um, að betur getum við ekki gert,“ sagði hann við Hewson. „Ég vona þó, að þér getið sofnað.“ Hann gekk á undan gegnum opnar dyr og niður illa lýst steinþrep, sem óliuganlega minntu á inngang að dyflissu. í ganginum fyrir neðan sáust fyrstu merki óhugnaðarins, svo sem minjar frá kaþólska rann- sóknarréttinum, piningarbekk- ur úr miðaldakastala, brenni- mörk, þumalskrúfur og fleiri minjar um fyrrverandi grimmd manna við náunga sína. Fyrir enda gangsins var morðingja- deildin. Hún var i óreglulegum sal með hvolfþaki, dauflega lýstum með rafljósi, er logaði í skál- um úr hrímuðu gleri. Af ásettu ráði var staðurinn hafður ó- hugnanlegur og fráhrindandi, og hann kom gestum sinum til að tala í hálfum hljóðum. Staður- inn minnti e. t. v. á kirkju, -— kirkju, sem ekki lengur er helg- uð guðsdýrkun, heldur tilbeiðslu þess, sem auðvirðulegast er og guðlausast. Vaxgerðir morðingjarnir stóðu á lágum pöllum með númeruð- um spjöldum. Hefði maður séð þá annars staðar án þess að vita hverjir þeir voru, þá hefði manni fundizt þeir óhrjálegur hópur, aðallega eftirtektarverðir vegna óþrifalegs útlits, og sem tákn um breytileika tizkunnar jafnvel meðal hinna tildurlausu. Hér stóðu fulltrúar glæpa- mennsku siðustu tíma i rykugri samveru með hinum eldri. Thurtell, sá sem myrti Weir, var mótaður eins og hann væri að gefa hinum unga Bywaters bendingu. Þarna var Lefroy, fátækur snobbari, sem myrti i auðgunarskyni, svo hann gæti apað heiðursmenn. Fáein skref frá honum sat frú Thompson, hin ástleitna, sem var hengd til að blíðka sært kveneðli hinna brezku millistéttarkvenna. Charl- es Peace, sem í safni allra þess- ara svörtu sauða virtist jió taka öllum fram, horfði fyrirlitlega yfir ganginn á Norman Tliorne. Browne og Kennedy, sem síð- ast höfðu hætzt í hópinn, stóðu milli frú Dyér og Patrick Mah- on. Forstjórinn gekk um með Hewson og vakti atliygli hans á hinum nafngotuðustu þessara illræmdu varmenna. „Þetta er Crippen. Ég hýzt við, að þér kannizt við hann. Lítilfjörlegur óþokki, sem virð- ist ekki geta gert flugu mein. Þarna er Armstrong, — á svip- inn eins og heiðvirður og mein- laus sveitamaður, ekki rétt? Þetta er Vaquier gamli. Maður villist ekki á honum vegna bart- anna. Og þetta er auðvitað .. .“ „Hver er þetta?“ Hewson liafði gripið frammi fyrir honum hvíslandi og benti. „A, ég var að koma að hon- um,“ sagði forstjórinn lágt. „Komið og lítið á hann. Hann er okkar stærsta númer. Hann er sé eini í hópnum, sem ekki hefur verið hengdur.“ Styttan, sem Hewson hafði bent á, var af smávöxnum, grönnum manni, ekki mikið yfir fimm fetum á hæð. Hann var með lítið vaxborið efrivarar- skegg, stór gleraugu og klæddur víðri kápu. Svo var allt fas hans franskt, að það minnti H'ewson einna helzt á skop- stælingu af Fransmanni. Hann gat ekki gert sér grein fyrir þvi, hvers vegna honum fannst meinleysislegur svipurinn svo fráhrindandi, en hann hafði ó- sjálfrátt hörfað fáein skref, og jafnvel i nærveru forstjórans veittist honum örðugt að líta styttuna aftur. „En hver er þetta?“ spurði hann. „Þetta,“ sagði forstjórinn, „er dr. Bourdettei“ Hewson hristi höfuðið hugsi. „Mér finnst ég kannast við nafnið,“ sagði hann, “en ég get ekki munað í hvaða sambandi.“ Forstjórinn brosti. „Ef þér væruð Frakki, mund- uð þér muna betur,“ sagði hann. í langan tima var þessi maður ógnvaldur Parísarborgar. Á daginn stundaði hann lækn- ingastörf, en á kvöldin, þegar hann fékk köst, slcar hann fólk á háls. Hann drap af einskærri Framhald á bls. 30.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.