Vikan - 20.02.1964, Qupperneq 10
Uppruni og ævi
John F. Kennedy
Bandarlkjaforseta
STRÁKURSEM
KOM A ÓVART
Ásmundur Einarsson, blm. tók saman - 4. hluti.
Enginn hefði getað séð það á John Fitzgerald Kennedy 'og fyrstu kosn-
ingabaráttu hans að þar væri á ferðinni maður, sem ætti eftir að verða voldug-
ur bingmaður og síðar forseti Bandaríkianna.
í samræmi við bandarískar kosningareglur varð Kennedy að taka þátt í
prófkosningum til að komast í framboð hjá Demokrötum í ellefta kjördæminu
í Boston. Hann hafði, eins og áður er sagt engan fastan samastað í Boston,
nema eitt hóteiherbergi. Persónulega þekkti hann fáa. Hann varð að leita út
fyrir Boston, raunar út fyrir landamæri Massachusettsríkis, eftir aðstoð og
hjálp í kosningabaráttunni. Hann safnaði til sín skólafélögum sínum og her-
deildarfélögum hvaðanæva úr Bandaríkjunum. Allt voru þetta ungir og áhuga-
samir menn en gersamlega óreyndir í pólitísku tilliti. Honum tókst þó einnig
síðar meir að afla sér stuðnings nokkurra ungra manna í Boston, sem allir
voru írar. Þessi hópur var leiðandi afl í kosningabaráttu Kennedys, safnaði um
sig enn stærri hóp óbreyttra sjáifboðaliða og starfsfólks, sem vann að kosn-
ingunni með Kennedy. Þrátt fyrir áhuga sinn var ekki örgrannt um að þeir,
sem með Kennedy stóðu efuðust um möguleika hans til að sigra. Framan
af kunni Kennedy lítið fyrir sér í þeim aðferðum kosningabaráttunnar, sem
íbúar ellefta kjördæmisins þekktu og mátu mest. Hann ar taugaóstyrkur og
hikandi í ræðuflutningi. Persóna hans bió yfir lítilli reisn og sannarlega eng-
um krafti. Hann kunni ekki að æpa og ýk.ia, hafði ekki yfir að ráða þeirri
hávaðamælsku og óbilgirni, sem setti svip sinn á ræður og áróður andstæðinga
hans af gamla skólanum. Hann forðaðist persónulegar árásir á andstæðinga
sína, minntist varla á þá í lok kosningabaráttunnar, og ræddi málefnalega
um það sem stóð hjarta og pyngiu kjósendanna næst. Hann ræddi um at-
vinnumál, húsnæðismál, húsaleigu, verðlag, sjúkratryggingar, bætur til upp-
gjafahermanna, almannatryggingar og önnur slík lífshagsmunamál kjósendanna.
Þetta var út af fyrir sig virðingarvert, en var samt ekki eingöngu það sem
kjósendur bjuggust við og áttu að venjast. Ýmsir félagar hans efuðust um, að
hann gæti með þessum hætti og vegna unggæðislegs útlits, unnið nauðsynlegan
sigur í prófkosningunum.
Dag nokkurn átti einn af helztu samstarfsmönnum Kennnedys leið með
honum framhjá Maverick Squaere í Boston, en þar söfnuðust einkum innflytj-
endur frá Sikiley saman, þegar þeir höfðu ekkert betra að gera. Sikileyjar-
mennirnir, harðneskiulegir og fálátir, stóðu dreift um torgið með hendur í
vösum, hattana slútandi niðri í augum og horfðu með fyrirlitningu á umhverf-
ið. Samstarfsmaður Kennnedys horfði á hann ganga til þessara manna, rétta
þeim höndina byria að ræða við þá. Þegar hann sá, að. Kennedy tókst að fá
þá til að ræða við sig, jafnvel brosa, og sletta höndunum, þá þóttist hann vita
að Kennedy hefði lítið að óttast í kosningunum. Kennedy sjálfur gerði sér
hins vegar Ijóst, að hinar hefðbundnu baráttuaðferðir myndu ekki nægja
honum til sigurs.
Keppinautar Kennedys voru margir, og hann rak sig á þá staðreynd að
nafn hans gleymdist jafnvel fyrr en varði, brátt fyrir góðar ræður eða ánægju-
legar viðræður, handaband og vinsamlegar kveðjur. Auglýsingar og útvarp
myndu heldur ekki duga honum, hugsaði Kennedy. Hvernig átti hann að nálg-
ast þær þúsundir fjarlægra kjósenda, sem hirtu lítið um stjórnmál eða var
stjórnað af tækifærissinnuðum götupólitíkusum, sem seldu atkvæði þeirra til
hæstbjóðanda í bitlingum eða jafnvel beinhörðum peningum. Þá var það sem
Kennedy og starfslið hans hóf að skipuleggja kaffi- eða teboð á heimilum
víðsvegar um kiördæmið. Þetta var ekki ný aðferð í sjálfu sér, en var öðr-
um slíkum tilraunum að bví leyti frábrugðin, að boðin voru fleiri og fjölmenn-
ari en hjá nokkrum öðrum frambjóðenda í Boston fyrr eða síðar. Eftir að þeim
lauk hafði enginn framjóðendanna komið á fleiri heimili eða hilt jafnmarga
væntanlega kjósendur og John F. Kennnedy.
Hann var í essinu sínu í þessum heimboðum, hann gekk gleiðbrosandi
en dálítið hikandi inn í stofu, töfraði mæður og dætur með brosi sínu og lát-
leysi, sat með annan fótinn yfir stólbrík, meðan hann svaraði spurningum.
Af og til rölti hann fram í eldhús íbúðarinnar til að Framhald á bls. 30.
jQ _ VXKAN 8. tbl.