Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 20.02.1964, Qupperneq 47

Vikan - 20.02.1964, Qupperneq 47
PALMOLIVE GEFUR YÐUR FYRIRHEIT UM... AUKINN YNDISÞOKKA Þvoið nuddið' í eina mínútu. Skolið og þér megið búast við að sjá árangurinn strax. Mýkri, unglegri, aðdáanlegri húð Frá og með fyrsta degi verður jafnvel þurr og við- kvæm húð unglegri og feg- urri, en það er vegna þess að hið ríkulega löður Palmo- live er mýkjandi. Palmolive er framleidd með olívuolíu. Aðeins sápa, sem er jafn mild og mjúk eins og Palmolive getur hreinsað jafn fullkomlega og þó svo mjúk- lega.Hættið því handahófs- kenndri andlitshreinsun: byrj- ið á Palmolive hörundsfegrun í dag. — Læknar hafa sannað hvaða árangri er hægt að ná með Palmolive. Palmolive með olívuolíu er... mildari og mýkri. with. Palmolive G. J. Moloisi er fæddur hér í nágrenninu árið 1923. Faðir hans var kennari. Moloisi lauk kennaraprófi árið 1954, kenndi og las unz Iiann lauk liáskóla- prófi í ensku árið 1902. Hann er giftur og á börn. Kaup lians samsvarar tæpum 6000 krónum á mánuði. Ég sagði að mig langaði til að mega ræða við þau um stjórn- mál, en kvaðst gera ráð fyrir að þau vildu ekki svara mjög nærgöngulum spurningum um aðskilnaðarmál og kváðu þau það rétt vera. Ilins vegar urð- um við sammála um að mennta- mál gætum við talað um og var niðurstaðan sú, að bæði full- yrtu að hvergi i Afriku væri Svertingjuin jafn auðvelt að afla sér menntunar og hér. Ég vakti atliygli þeirra á þvi, að í bæklingi, sem ég hafði i fórum mínum var frá því skýrt að um 80% Bantumanna á aldrin- um 7—20 ára væru læsir og skrif- andi, að um 83% Bantubarna á aldrinum 7—14 nytu skólagöngú; að um 1 tnilljón og 700 þúsund- ir Bantumanna sæktu nú skóla, meðal þeirra 42 kennaraskóla 273 aðra æðri skóla og nú væru starfandi þrír háskólar- eða há- skóíadeildir, eingöngu fyrir Bantumenn. Þar var einnig staðhæft að sjúkrahús, sem ætl- uð eru .Bantumönnum, stæðu i engu að baki mörgum sjúkra- húsum hvitra manna, að læknar þeirra og lijúkrunarlið, sem er liörundsdökkt, hefði notið jafn góðrar menntunar og hvitt fólk, að til þess væri stefnt með bók- og verkmenntun, að nægjanlega mikið yrði af sérfróðu svörtu fólki til þess að rækja öll hin margvíslegu störf, sem biða þess að Svertingjar taki við þeim í héruðunum, þar sem gert er ráð fyrir að þeir fái sjálfsstjórn, fyrst takmarkaða, eins og nú i Transkei, siðar fullt sjálfstæði innan ríkjasambandsins Suður- Afríku. Þau töldu þessar fyrrgreindu upplýsingar réttar. Um hérað hinnar takmörkuðu sjálfsstjórnar svertingja, Trans- kei, þar sem frú Ntsanwisi er fædd, sagði liún: „Þetta er mjög fróðleg tilraun og ég vona að hún verði okkur Bantumönnum til góðs.“ Ilið skemmtilegasta frá við- dvölinni i Tzaneen er að minn- ast stjórnmálaþvargsins i for- dyri hótelsins, þar sem við snæddum hádegisverð. Denis átti þar erindi við afgreiðslu- stúlku í ferðaskrifstofu, sem bækistöð hefir í fordyrinu. Með- an við drukkum úr tebollum, sem hér er lenzka að færa gest- um, bar að tvo menn, og var annar kunningi stúlkunnar, en á liinum kunni Denis skil. Denis vissi, eða fann á sér, að báðir voru þessir nxenn and- vígir stjórninni, og hann sagð- ist liafa gert það mér til gam- ans og fróðleiks að hleypa þeim báðum upp, og tókst það með hinum mestu ágætum. Annar staðhæfði formálalaust að dr. Verwoerd væri andskot- ans þverhaus. Með því að neita svertingjunum um jafnrétti væri hann að stýfa vaxtarbrodd þeirr- ar menningar, sem hinir beztu úr þeirra hópi gætu átt þátt í að skapa. Hér fóru þeir aldrei jafnlangt og hæfileikar þeirra gætu komið þeim. Við hvern fjandann væri Verwoerd eigin- lega hræddur? Ef Svertingjarnir væru í raun og sannleika þeir undirmálsmenn, sem liann vildi vera láta — hvers vegna þá ekki að láta þá fá frelsi til að gera það, sem þeir geta. Annar litar- liáttur? Það gef ég skít í. „Sjáðu hundinn minn hérna“ sagði hann og klappaði á nefið á stór- um Schæferhundi sínum. „Ef þetta kvikindi skyldi vera bezti lögfræðingur bæjarins, þá færi ég til þess ef mér lægi á að- stoð, og skammaðist min ekki fyrir. Ég spyr um það eitt, sem máli skiptir. Allir fordómar um lit eða annað útlit er vitleysa tóm. Eða hvað haldið þið að þetta þjóðfélag komizt lengi af án þess að leyfa Negrunum að komast inn i fagfélög hvítra manna? Nú má enginn Negri læra hand- verk, nema í þeim héruðum, þar sem engir eru nema Negr- ar. Dettur ykkur í hug, að við komumst af án þess að kenna þeim eitthvað annað en að vinna erfiðisvinnu? Hvernig ætlar Ver- woerd að fara að, þegar hann er búinn að smala öllum Negrunum inn i sérstök Negraríki? Hverj- ir eiga að vinna í námunum? Hverjir á sveitabæjunum?“ Hinn var andvígur því að gefa öllum kosningarétt. „Sumir þessara andskotans livítu auðnuleysingja eru ekki hótinu betri en þeir aumustu meðal blámannanna. Ég vil miða kosningarétt allra manna í þessu landi við tvennt: í fyrsta lagi, vissar lágmarkstekjur á ári, eða í öðru lagi, vissa skólamenntun. Þeir sem hafa notið góðrar menntunar eða gera þjóðfélag- inu sannarlega gagn með vinnu sinni, eiga einir að fá að kjósa, hvort sem þeir eru hvítir eða svartir. Hinir ræflarnir hafa ekk- ert með kosningarétt að gera.“ „Eða kirkjan. Hún ætti að skammast sin. Hugsið ykkur, að hér í landinu skuli vera þrjár lútherskar kirkjudeildir, sem annað hvort láta aðskilnaðar- stefnuna afski])talausa eða fylgja henni. Kaþólikkagreyin þykjast þó ekki meina Negrunum að vera í sömu kirkju og hvitir menn, en venjulega halda þeir sig þó ekki sömu megin. Er nokkur furða þó að Bantumenn- irnir séu enn flestir heiðingjar?“ Þeim varð öllum mjög hcitt í hamsi. Ég skemmli mér kon- unglega. Á leiðinni frá Tzaneen voru margir sölumenn við veginn eins og í fyrradag og varning- ur þeirra var svipaður og áður, aðallega ávextir ýmsra tegunda. Við mættum gangandi fólki, - 47 VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.