Vikan - 27.02.1964, Side 7
MENNINGARSJÓÐUR
— ■—■ -— Satt að segja er mér
ekki fyllilega kunnugt um á
hverju stendur. Ef ég man rétt,
voru ekki allir sammála um
hvernig ætti að framkvæma
þetta, og sennitega stendur á
samningum við verzlunarfólk í
sambandi við breyttan vinnu-
tíma. Vonandi kemur að þessu
bráðtega, því það er vafalaust
vilji allra neytenda, að einhver
breyting verði á til batnaðar.
En um heimilisföng .. .
Kæri Póstur!
Ég ætla að byrja með að þakka
þér fyrir allt gott, sem þú hefur
birt, og allt, sem birzt hefur í
VIKUNNI. Það er orðið ægilega
gaman að Jesa VIKUNA, þó að
hægt sé að gera betur. En verð-
ur að bíða síns tíma. Nú, jæja,
ég ætla þá að koma mér að efn-
inu. Ég er fimmtán ára mennt-
skælingur, og hef mjög mikinn
áhuga á dansmúsik. Nú lang-
ar mig að biðja þig, kæri Póst-
ur, að reyna að fá heimilisföng
þeirra Chubby Checkers og Elvis
Presleys, og annað hvort birta
þau í Póstinum, eða ef þú vild-
ir ómaka þig við að senda mér
þau. Ég ætla að biðja þig að
vera svolítið snar með svarið, þó
að um „dægurlagasöngvara" sé
að ræða, eða „15 ára ungling".
Ég vona að þú skiljir merkingu
setningarinnar.
Snúðu nú ekki út úr fyrir mér.
Hvernig væri að koma með
leikaraþátt í VIKUNNI, og
jafnvel augiýsingar eftir penna-
vinum.
Með fyrirfram þökk fyrir svar.
H. Andrés Harðarson
Helgamagrastræti 34,
Akureyri.
--------Ég er ekki að snúa út
úr fyrir þér, Andrés minn, þótt
ég- svari þér ekki spurningunni.
Þú átt að vita það, ef þú hefur
lesið VIKUNA að staðaldri, að
við birtum EKKI heimilisföng
neinna leikara, söngvara né yfir-
leitt annarra erlendra manna.
Auðvitað mundum við geta feng-
ið þessi heimilsföng, en við höf-
um engan áhuga, og blaðið yrði
eftir stuttan tíma ekkert nema
heimilsföng Ieikara og söngvara
og svo framvegis. Ég vona að
þú skiljir merkingu setningar-
innar.
Félagsbækur Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins fyrir árið 1963 hafa nú verið
sendar umboðsmönnum um land allt.
Afgreiðsla félagsbóka til áskrifenda í Reykjavík fer fram í Bókabúð Menningar-
sjóðs, Hverfisgötu 21.
Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir að vitja bóka sinna sem fyrst. Þeir ættu að kynna sér
bókaútgáfu vora á árinu 1963 og hagnýta valfrelsið, meðan allar bækurnar eru fáanlegar. Upp-
lag sumra aukabókanna er mjög takmarkað, enda má búast við að einhverjar þeirra seljist upp
fyrr en varir.
Auk sérstaklega hagstæðs verðlags á föstum félagsbókum gefst félagsmönnum kost-
ur á að fá allar aðrar útgáfubækur vorar, nýjar og gamlar með 20% afslætti frá
útsöluverði.
ÚTGÁFUBÆKUR VORAR ÁRIÐ 1963 VORU ÞESSAR:
ANDVARI. — ALMANAK fyrir árið 1964.
AFItÍKA, ný bók í flokknum „Lönd og lýðir“. Höfundur: Guðrún Ólafsdóttir.
RÓMAVELDI, stórt og afburða vel skrifað rit eftir bandariska sagnfræðinginn Will Durant,
Jónas Kristjánsson, cand mag. íslenzkaði. — Útsöluverð kr. 320,00.
KONUIt SEGJA FRÁ, frásöguþættir, minningar, scigur og ljóð eftir 16 konur. —
Útsöluverð kr. 225,00.
ANNA RÓS, ný skáldsaga eflir Þórunni Elfu Magnúsdóttur. — Útsöluverð kr. 210,00.
LANDSVÍSUR, ný ljóðabók eftir Guðmund Böðvarsson. Með teikningum eftir Hörð Ágústsson.
Útsöluverð kr. 200,00.
CÍSEItÓ og samtíð hans. Safn ritgerða um klassísk fræði eftir dr. Jón Gíslason.
Útsöluverð kr. 140,00.
FERHENDA, visnakver eftir Kristján Ólason. Útsöluverð kr. 140,00.
FRÖNSK LJÓÐ, Jón Óskar þýddi. — Útsöluverð kr. 140,00.
UM SKJÖLDUNGASÖGU, eftir dr. Bjarna Guðnason, prófessor. — Útsöluverð kr. 225,00.
ÆSIR OG VARNIR, eftir Ólaf Briem magister. — Útsöluverð kr. 80,00.
ÍSLENZK ORÐABÓK handa skólum og almenningi. Aðalhöfundur Árni Böðvarsson. —
Útsciluverð kr. 700,00.
Félagsmenn fá 20% afslált af útsöluverði allra útgáfubóka vorra, gamalla og nýrra.
— Allir bókamenn ættu að kynna sér þau kostakjör, sem Bókaútgáfa Menningarsjóðs
býður þeim. — Nýir áskrifendur eru beðnir að snúa sér til afgreiðslu vorrar, Hvefis-
gölu 21 í Reykjavík, símar 10282 og 13652.
handa skólum og almenningi
fæst nú aftur hjá bóksölum og beint frá útgefanda.
MENNINGARSJÓÐUR