Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 16

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 16
IVIynd af konu með gulan hatt Smásaga eftir Audrey Manley-Tucker Hatturinn í glugganum gerði henni ljóst, hve óafturkallanlegur skilnaðurinn frá Martin var. Hatturinn var töfrandi. Hann var úr mimosulitu tylli, sem huldi til hálfs eina gula rós. Martin hefði elskað þennan hatt, og hans vegna hefði hún með glöðu geði losað sig við hvern eyri, til að borga hið fráleita verð, sem stóð á verðmiðan- um. Carolina sneri sér við og gekk hratt í burtu. Spegilmynd hennar í glugganum hafði sýnt, að andlit hennar hafði breytzt á einni nóttu. Mjúk húðin, dökk augun og Ijóst hárið ar það sama, en gleðin, sem hafði gefið því líf, var á brott. í dag var andlit hennar ósköp venjulegt. Það er eitthvað átakanlegt við konu, sem verður ástfangin í fyrsta sinn tuttugu og níu ára gömul, sagði Carolina lágt við sjálfa sig og brosti dauf- lega. Hún var alin upp á prestsetri úti í sveit. Móðir hennar hafði dáið, þegar Caroiina var nítján ára, og eftir það hafði hún dvalið heima og hugsað um heimilið fyrir föður sinn. Sjö árum síðar stóð hún ein uppi. Hún byrjaði á námi við verzl- unarskóla, en þar fannst henni hún vera eins og fiskur á þurru landi innan um allar ungu stúlk- urar á örmjóum hælum og í furðulegum fötum. Hún fann að þeim þótti gott að taia við hana, vegna þess að hún hlustaði á það sem sagt var, en hún fann lika, að þær reyndu aldrei að gera kunningsskapinn að vináttu. Svo hitti ég Martin, hugsaði hún. Með honum fann ég frið og gleði, þá átti ég nóg af orðum og hlátri. — Því miður verðið þér að sætta yður við nærveru mína í nokkrar vikur, hafði Martlin sagt með afsökunarbrosi. Ég á að hafa skrifborðið mitt hér inni hjá yður, þar til ég tek við nýja útibúinu í Burr Hill. — Komið, sagði Martin nokkrum dögum síðar, það er vor og Gullna gæsin hefur ágætis mat á boðstólum. Ég reyndi hann í gær. Hann leiddi hana út úr skrifstofunni, og þau gengu saman inn í hálfrokkinn og íburðarmikinn sal Gullnu gæsarinnar. Hún hlustaði á rödd hans og hugsaði: Ég er ást- fangin af honum. Og ég er hrædd. Hrædd um að þetta standi aðeins nokkrar vikur, og síðan verði ekkert meira. Nokkrar vikur — eins og fjólurnar og páska- lijurnar í söluvögnunum á götuhornunum. Hann bað hana að koma með sér niður að ströndinni. Gamla feimnin ætlaði að ná tökum á henni, en glampandi gleði sópaði henni burt og henni fannst hún vera ung og heimsk. En hún sagði aðeins lágum rómi: — Það væri skemmtilegt. Á ég búa út nesti? Hún hljóp búð úr búð á heimleiðinni, hún var hamingjusöm, lífið var aftur einhvers virði. Hún

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.