Vikan


Vikan - 27.02.1964, Page 43

Vikan - 27.02.1964, Page 43
ASTER LLaC.lXLtG. Lancaster Juvenil Skin er notað sem dagkrem fyrir viðkvæma húð |j sem hætt er við ofnæmi. ........ Þetta krem styrkir húð- ina og gerir hana eðli- lega. Tilhneigingin til * ofnæmis minnkar og 88.—.-f|lrírn.-1-f-,1ir hverfur og bráit fær húff- in á sig blæ æsku og heil- brigðis. O. VALDIMARSSON & HIRST HF. Skúlagötii 26 — Símar 21670 & 38062 búin að snyrta mig og drekka kaffi. Hún var í korngulum jakka- kjól. með gylltri bryddingu á ermum og í háls, kórallafestin á sínum stað. Ég hafði aldrei séð hana svona skrautbúna. — Þér eruð mjög fín, ungfrú Casale. Eigið þér afmæli í dag? — Nei, það er skírnardagurinn minn í dag. Skírnardagurinn hennar! Það var þess vegna, sem hún bjóst viðhafnarbúningi. Skyldi nokk- urri ungfrú á íslandi detta í hug að klæðast skrautklæðum af því að það væri skírnardagurinn hennar? Þessar hugsanir þutu gegnum vitund mína á meðan þjónninn kom vínglasinu og kök- unni fyrir á borðinu. Ég lyfti glasinu með galdra- norninni: — Ég óska yður hamingju, ungfrú Casale, og blessunar Guðs! Við drukkum. — Eruð þér búinn að ráðstafa morgundeginum eftir hádegi, herra Einarsson? — Nei! — Þá langar mig ákaflega til að biðja yður . . . — Nei, augnablik, ungfrú. Þetta á að ganga eins og í tafli. Einn leik í einu. Eruð þér búin að ráðstafa kvöldinu? — Nei! — Ágætt! Hvað var það, sem yður langaði? Gerið þér svo vel! Þér eigið leik. — Mig langaði ákaflega til þess að biðja yður að koma með mér í Péturskirkju á morgun og eyða þar með mér þrem — fjór- um klukkustundum. Getið þér það? — Já, hvenær sem er, eftir klukkan tvö. Mér er það innileg ánægja að kveðja Róm á þann hátt. — Afráðið? — Já, segjum klukkan tvö. — Þakka yður kærlega fyrir. — Þér hafið ekki ráðstafað kvöldinu, ungfrú Casale. Viljið þér gera mér þá ánægju að koma með mér út á Cinciofjall og borða með mér? Á eftir getum við slangrað eitthvað um. Það er mjög skemmtilegt þar uppi á kvöldin. — Mjög gjarnan! Kæra þökk! — Eigum við að segja eftir hálftíma? — Prýðilegt. Ég skal verða til- búin. — Þá bíð ég yðar hér. III. Við höfðum komið okkur fyrir í horni á skemmtilegum gilda- skála uppi á Pinciofjalli, þaðan sem verulegur hluti af Róm blasti við eins og marglitt ljóshaf. Flóðlýstar skrautbyggingar, hall- ir og kirkjur, bein og hlykkjótt stræti, eins og glitrandi Ijósbönd, sem hurfu út í koldimmt, varmt myrkur. Niður af umferð eins og fjarlægur brimsúgur. Ilmur af magnólíu og rósum inn um op- inn glugga. Það var yndislegt þarna uppi og mér leið mjög vel. Við vorum búin að borða. Ferðaþreytan var liðin hæfilega langt í burt. Við sátum þögul yfir kaffinu. Það settist að mér einhver mjúklát angurværð. Skyldi mér nokkurntíma framar auðnast að sjá Róm? Og hvað myndi verða um þessa yndislegu stúlku, sem atvikin höfðu trúað mér fyrir í nokkra daga? Mér var farið að þykja innilega vænt um hana, eins og hún væri barn mitt. Barn mitt? Var það nú víst? Ég var einmitt á þeim aldri, þegar menn geta orðið gripnir af bjálfalegri tilfinningasemi gagnvart kornungum stúlkum. Ofurlítil sjálfsprófun væri kannski ekki úr vegi. — Eitt var víst: Ég myndi aldrei sjá hana framar og sennilega Rómaborg ekki heldur. — Þér eruð hugsi, fslendingur vinur. Ég anzaði eins og maður, sem kallað er á úr fjarlægð: — Já, mjög. — Ég var að hugsa um yður og Rómaborg — og yður. Hún brosti sínu einarða, opin- skáa brosi. — Mig tvisvar og Rómaborg einu sinni? — Luakrétt, ungfrú Casale. Yður fyrst — Rómaborg — yður síðast. — Er . . . er þetta skáldskap- ur, eða mælskulistarþraut? Það er eins og upphaf á kvæði. — Hvorugt. Það er blátt áfram sannleikur og tiáir ekkert ann- að en röð hugsana minna fyrir stundu. Þá hlógum við bæði. Við vorum búin með kaffið. — Viljið þér fara út og ganga, ungfrú Casale, eða fara eitthvað annað? Það er dansað þarna yfir frá hjá Mattissotti. Og það eru orgelhljómleikar í Lúkasarkirkj- unni hérna fyrir neðan. — Ég vildi helzt mega sitja kyrr. Það er gott að vera hér. — Þá fáum við okkur glas af Chianti og spjöllum. — Ég veit ekkert um yður. Mér þykir vænt um, að þér hafið ekkert sagt mér. Og þér hafið tekið eftir því, að ég hef einskis spurt. Hún kinkaði kolli og var allt í einu orðin skólatelpuleg á svip. Það var eins og hún læsi í hug mér komandi yfirheyrslu. Ég gat ekki annað en dáðst að því, hve svipurinn fór henni vel. — Má ég spyrja yður nokk- urra spurninga, ungfrú Casale? Þér þurfið ekki að svara þeim, ef þér treystið mér ekki. Hún leit beint í augu mér. Skólatelpusvipurinn var horfinn. Hún var mjög alvarleg. — Ég skal svara þeim öllum. Um leið og hún mælti þessi orð gerði hún snögga mjög þokkafulla hreyfingu með hægri hendi. Það átti auðsjáanlega ekk- ert að bera á henni. En ég sá að það var krossmarkið — sign- ingin — áminning hins þaul- æfða skriftabarns til sjálfs sin um að segja aðeins sannleikann. — Hvað eruð þér að gera hér í Róm, ein yðar liðs, ungfrú Cas- ale? Hvert er erindi yðar til ítalíu? — Ég er hér á ferð sem fjöl- skyludfulltrúi og um leið er ég að taka út á dálítil skólaverð- laun. - - Fjölskyldufulltrúi? — Já. — Það er ekki von að þér skiljið það. Fólkið mitt er frá Castelgandolfo hér í grennd- inni. Afi minn og amma giftust þar. Svo fluttu þau úr landi til Rio de Janeiro bláfátæk. Mamma mín er portúgölsk, fædd og uppalin í Rio. Við erum ekki efnafólk, aðeins sæmilega bjarg- álna. Pabbi minn á dágóða skó- verzlun, en við erum mörg. Ég é fjóra eldri bræður, tvær yngri systur. Amma mín frá Castel- gandolfo lifir enn. Mamma var munaðarleysingi, svo ég á ekkert móðurfólk. En ekkert af föður- fólki mínu hefur, nokkru sinni komizt til ftalíu síðan afi og amma fóru, ekkert þeirra átt þess kost að rækja skyldur sín- ar við heilaga kirkju hér í Róm. Ég er komin hingað sem full- trúi þeirra allra til þess að gegna þessum heilögu skyldum. Ég ætla að gera það á morgun, langar að ljúka því að einhverju leyti áður en þér farið. Þess vegna bað ég yður um að koma með mér í Péturskirkju á morg- un og — og vera ekki alltof spar á tímann. — Þér minntust á skólaverð- laun? Hvað hafið þér numið, ungfrú Casale? ■-— Ég lauk prófi frá viðskipta- háskóla síðastliðið vor. Ég hafði alltaf staðið mig vel, en í vor varð ég efst. í verðlaunaskyni fékk ég dálítinn utanfararstyrk. Það varð ákaflega mikil gleði heima. Það var skotið á fjöl- skylduráðstefnu og ákveðið, að ég skyldi fara til Rómar — fyrst og fremst til Rómar. Amma mín og eldri bræður mínir og pabbi og mamma greiddu öll dálitla viðbót í ferðasjóðinn minn, til þess, að ég gæti borið hér fram bænir þeirra. — Nú vitið þér allt um ferðir mínar. -— Er það algengt, að Suður- Amerískar ungfrúr ferðist svona til Evrópu einar síns liðs? — Nei, ég myndi segja, að það væri fremur óalgengt. — Al- mennt lítum við svo á, að ung- ar stúlkur eigi að vera í fylgd með fullveðja manni eða konu. — En ég er ekkert barn — ég er tuttugu og fjögra ára. Og ég VIKAN 9. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.