Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 5

Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 5
<] í bátnum eru Magnús Hallgrímsson verk- fræSingur hjá Vitamálaskrifstofunni, Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur og SigurSur Waage, yngri, hjá Sanitas. <i ÞaS fellur út aftur. Ólafur Nielsen veSur á móti þeim félögum og réttir SigurSi hjálparhönd. Magnús snýr baki i ströndina en Waage er kominn í land. Svamlað við Surtsey - J' ■- — » - - — jkk 9n.i '-'V'j ~ r \ O Betri er hálfur skaSi en allur. Doktorinn hafSi eina myndavél til viSbótar, inn á sér. Hér er hann, enn í björgunarbeltinu og sjóblautur, aS athuga vélina. í baksýn sést landslag á Surtsey. Þegar þetta er skrifað hafa þrír leiðangrar freistað landgöngu í Surtsey. Fyrstir voru Fransmenn svo sem frægt er orðið og margir hérlendir voru að vonum súrir yfir. Þeir gáfu litríka lýsingu á leiðangrinum í Paris Match og spöruðu ekki lýsingarorðin þegar þeir sögðu frá þeim hættum, sem landgöngunni voru sam- fara. Sú ferð tókst þó að öllu leyti slysalaust. Vestmannaeyingar töldu að nafngift örnefnanefnd- ar yrði bezt mótmælt með landgöngu í eyna og skýrn- arathöfn á staðnum. Líklega hefur það aðeins verið heppni, að þar varð ekki manntjón, því förin var farin meir af kappi en forsjá; fengu sumir brunasár og þóttust sleppa vel að komast frá Surti. Þriðji leiðangurinn var gerður út til að safna stein- um handa vísindamönnum okkar. Þátttakendur í þeim leiðangri voru allir úr jöklarannsóknafélaginu og ein- valalið. Sá leiðangur tókst þó ekki slysalaust með öllu fremur en för Vestmannaeyinga; gúmmlbát hvolfdi í lendingu og fengu menn að kynnast baðströnd Surts- eyjar, en hvorki urðu meiðingar né alvarlegar slys- farir. Elín Pálmadóttir, blaðamaður og félagi í jökla- rannsóknafélaginu, var í fyrri bátnum, sem komst klakklaust í land. Hún var tilbúin með myndavélina á ströndinni, þegar síðari bátinn bar að og hún skaut bæði hratt og títt, þegar aldan hvolfdi honum í lendingu án þess að mennirnir í bátnum fengju við það ráðið. 7 VIKAN 10. tl)l. 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.