Vikan - 05.03.1964, Side 7
ið verið okkur íslendingum til
góðs eða ills? Goskarl.
---------í fyrsta lagi, minn kæri
Goskarl, þá hefur þetta gos vak-
ið álíka athygli hjá almenningi
um allan heim, eins og ef þú
fréttir að eldfjall hefði allt í einu
farið að gjósa suð-vestur af
Formósu. Þú hefðir líklega sagt:
„Jahá, einmitt það“, og gleymt
því svo alveg. Annað mál er með
vísindamenn, sjómenn, stjórn-
málamenn og aðra, sem munu
e.t.v. hafa bein afskipti af mál-
inu. Þeir hafa áhuga, mismunandi
miiknn eftir því hver ástæðan
er fyrir áhuganum.
í öðru lagi, minn kæri Gos-
karl, þá er ekki hægt að svara
þessari spurningu, vegna þess að
enginn veit ennþá hvort þessi
eyja muni standa eða hverfa eftir
ao gosinu linnir, og þess vegna
er ekki enn reiknað með lienni
og verður ekki fyrr en vitað er
um það. Ef liún hverfur aftur —
þá ekki meira með það. En ef
hún blífur, þá víkkar landhelg-
in, •— það er að segja fiskveiði-
Iiandhelgin bæði fyrir innlend og
erlend skip, en þó mismunandi
mikið. Linan, sem miðað er við
fyrir innlend skip, er dregin frá
Geirfuglaskeri að Eldey. Það
verður þess vegna aðeins mis-
munandi, en mesta fjarlægð frá
núverandi línu og að hugsaðri
línu fyrir erlend skip, kæmi til
með að verða 1,8 mílur. Engin
ákvörðun mun verða tekin um
þetta fyrr en útséð er um hvort
eyjan hverfur eða ekki.
I þriðja lagi, minn kæri Gos-
karli, þá kem ég aðeins auga á
kostina við gosið, eins og er. Það
hefur vakið athygli á landinu og
minnt menn á að það er til.
Þannig hefur það verið nokkurs-
konar auglýsingastarfsemi. Svo
má reikna með ferðamönnum til
að horfa á þessi náttúruundur,
og um leið auknar tekjur af þeim.
Og svo auðvitað stærri fiskveiði-
lögsaga, sem hefur sína þýðingu.
Þá má og nefna tækifærið, sem
vísindamenn okkar hafa haft til
að kynnast þessu náttúruundri.
Ókosti sé ég aðeins tvo — ef
ókosti skal kalla, því hvorugur
hefur teljandi áhrif, skilst mér.
Annað er óþægindi íbúa Vest-
mannaeyja af öskufalli, og hitt
er skaðleg áhrif á fiskimiðin, sem
munu vera lítil eða engin.
Beint til Hollywood...
— -—— Svar til Heiðu: — Það
kennir helzt til mikillar bjartsýni
í bréfi þínu og sem afleiðing af
of mikilli bjartsýni gætu komið
vonbrigði. Þú segist hafa náð góð-
um árangri í leiklist í þorpinu
þínu (í jólaleikriti), en hver sagði
það? Var það. einhver, sem vit
hafði á eða fólkið í plássinu, sem
vaíal'aust dettur ekki í hug að
segja þér annað en það sem þér
geðjast að. Ég held að leikskóli
1 Reykjavík væri skynsamlegri
áfangi núna í bili en að fara að
æða utan í von um hlutverk í
kvikmynd. Þessi mynd, sem þú
sendir, sýnir ekki annað en meðal
frítt andlit og ekkert, sem kvik-
myndafólk úti í löndum mundi
gína við. Það bíða fleiri en þú
heldur eftir hlutverkum í kvik-
myndum, jafnvel aðeins statista-
hlutvcrkum. Fyrir allan fjöldann
af því fólki verður leiklistarferill-
inn aðeins bið eftir hlutverkinu,
sem aldrei bauðst. Sem sagt; ég
vara þig eindregið við þessu.
Svíkur stundum undan...
Kæra Vika!
Oj barasta hvað þetta fullorðna
fólk, sem á að hafa vit fyrir okk-
ur unglingunum, getur verið and-
styggilegt. Og svo skilur það
aldrei neitt. Alltaf þegar ég fer
út með stelpunum á restrasjón
eða eitthvað þessháttar, þá eru
kallinn og kellingin að drepast úr
forvitni á eftir. Þau vilja fá ná-
kvæma skýrslu, helzt að ég telji-
upp gæjana, sem ég dansaði við
og hvað ég kom nærri þeim eða
hvernig þeir héldu utan um mig.
Svo kemur alltaf: Vissurðu nokk-
uð um hann? Hvað hét hann?
Hverra manna var hann? Ég get
sprungið í loft upp í þessum yfir-
heyrslum og nú orðið segi ég bara
alls ekki neitt, sem sagt svík und-
an skatti. Eða er það ekki leyfi-
legt?
-------Ekki segi ég það nú, að
það sé leyfilegt að svíkja undan
skatti en ég vil nú ekki dæma
þig strangt, ef það er rétt, sem
þú segir. Komdu þeim í skilning
um það á prúðmannlegan hátt, að
svona yfirheyrslur séu heldur
ósmekklegar. Annars gætirðu
sagt mér það prívat: Hvað hef-
urðu verið að gera í partíunum
að undanförnu?
.. gírlausa bílinn, sem nú fer
sigurför um alla Evrópu
40 nýjiingar í
en hann er nú fyrirliggjandi
--------------------- -r-V -----------------------------
Ef þér ætlið aS kaupa lipran, rúm-
góðan og sparneytinn sjálfskiptan bíl
þá lítið á daf F2 eða F3.
--------------------- ----------------------------------
SÖLUUMBOÐ:
Vestmannaeyjar: Mór Frímannsson.
Akureyri: Sigvaldi Sigurðsson, Hafnarstræti 105, sími 1514.
Suðurnes: Gónhóll h.f. — Ytri-Njarðvík.
Akranes: Gunnar Sigurðsson.
AlliP dásama
Söluumboð, viðgerða- og varahlutaþjónusta
0. JOHNSON & KAABER H.F.
Sætúni 8. — Sími 24000.