Vikan


Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 28

Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 28
Mr. Pimm var sem þrumu lostinn. — Ætlar þú að segja mér, að þú hafir aldrei heyrt talað um hana? Villikálfinn Mehaffey? Kæri vinur, hvernig ætlarðu eiginlega að komast áfram í þessum heimi — þú ætt- ir að kunna nafnið hennar og nöfn tuttugu annarra slíkra reip- rennandi utan að. Ef þú ætlar að ganga í klíkuna okkar, þá verður að standa þig betur en þetta. — Ég veit ekki til þess að ég ætli að ganga í neina klíku. — Ég er viss um að þig lang- ar til þess að geta borgað þenn- an hótelreikning þinn. Þú ætlar ekki að fara að láta bola þér burt úr landinu. Julian sagði raunamæddur: -— Já, ég sé, við hvað þú átt. En hver er þá þessi Annabelle Mehaffey? — Hún er stúlkan frá New York og Southamton á Long Is- land. Hún er erfingi að svo sem 20 milljónum dollara. — Hvað segirðu? — Tuttugu milljón. — Almáttugur minn, maður skyldi þá halda að hún ætti ekki Julian leit í kíkinn og sagði: - Þetta er ekki dónalegt hús. - Sérðu sundlaugina? - Jamm. - Og stúlkuna, sem stendur uppi á stökk- brettinu? - Hún var að demba sér í laugina. - Þetta, sagði IVIr. Pimm, - er IVIiss Anna- belle Mehaffey. Julian Soames er ungur maður af brezku bergi brotinn, staðdur í Cannes. Hann er atvinnulaus og peningalaus. Frændi hans, sem hefur stutt hann fjárhagslega, neitar að gera það lengur. Hótel- stjórinn hefur gefið honum þriggja daga frest til að gera skil. Allt í einu kemur Danielle eins og engill af himnum og kynnir hann fyrir herra Pimm, sem býðst til að leysa hann úr vand- anum, ef hann vilji koma í vinnu til hans og gerast bílstjóri hjá milljónamæringi: Ungri og föngulegri stúlku. Julian spyr: - Og hver er hún? erfitt með að næla sér í sína eigin bílstjóra. — Okkur finnst á allan hátt betra að finna sjálfir handa henni bílstjóra. — Hvernig veiztu, hvort hún vill nokkurn bílstjóra? — Eddie, sagði Mr. Pimm, — sýndu Julian blaðið frá Nice. Eddie kom með blaðið til Juli- an. — Gjörðu svo vel, Julian, sagði hann, — lestu. Julian las auglýsinguna: Bandarisk fjölskylda, sem býr í Frakklandi, óskar eftir atvinnubílstjóra. Verður að þekkja vel til nýjustu teg- unda af bandarískum bílum. Komið til viðtals milli kl. 10 og 11 fyrir hádegi í Villa Florentina, Rue Célestine, Cannes. Julian sagði: — Þetta er dálít- ið þægileg tilviljun. — Vinur minn, sagði Mr. Pimm, — þetta er eitt af því fyrsta, sem maður verður að læra. í okkar klíku megum við aldrei treysta tilviljuninni, við verðum að valda henni. Mehaffey fjölskyldan missti annan bíl- stjróann sinn fyrir skömmu. Við sáum til þess, að hann fékk að njóta lífsins í París. — Nú já. En hvernig veiztu, að enginn sé búinn að sækja um? — Þetta blað kemur ekki út fyrr en klukkan ellefu, sagði Mr. Pimm ánægður. — Og nú er víst tími til þess kominn að ég skýri þetta allt saman öllu nánar fyrir þér. Julian sagði: — Það lízt mér prýðisvel á. Mr. Pimm stóð á fætur og gekk um herbergið. — Julian, vinur minn, sagði hann, eins og ég hefi svo oft sagt krefst maður ekki annars af einni eiginkonu en ástúðar og 15—20 milljón doll- ara. - Þetta er ekki svo vitlaust. —■ Hefurðu nokkurn tíma hugsað út í það hversu margar ríkar konur eru til í heiminum? - Það get ég varla sagt. — Jæja, ég hefi rannsakað þetta sérstaklega, og niðurstaðan er furðuleg. Það eru bókstaflega hundruð og aftur hundruð af þeim, blessuðum stúlkunum. Og hvað eiga þær svo sameiginlegt? Julian ætlaði að fara að segja að hann vissu um ýmislegt, sem þær ættu sameiginlegt, en Mr. Pimm hélt áfram. — Þær eru allar að vona, allar með tölu, vinur minn, að peningarnir þeirra hjálpi þeim við að finna hinn fullkomna eiginmann. Þetta eiga þær sameiginlegt. Auðvitað eiga sumar þeirra eiginmann þegar, en það er ekkert við því að gera. En á hverju ári er yndis- leg uppskera af nýjum ekkjum, og svo skilja þær líka blessaðar, og svo missa þær pabbana, sem láta þeim eftir skynsamlegar erfðaskrár. -— í hvaða flokki er Miss Mehaffey? Mr. Pimm sagði snöggt: — Skynsamleg erfðaskrá. Jæja þá. Við þekkjum allir þessar konur. Ef þær eiga að bjarga sér upp á eigin spýtur, getur allt gerzt. Stundum verða þeim á hroða- legustu skyssur. Ef ekki er haft auga með þeim, krækja þær sér í hræðilegustu eiginmenn — þær falla í krumlurnar á heiðvirð- um, sómakærum, tillitsömum ná- ungum, og allir peningamir þeirra fara til spillis. Ég hefi séð þetta gerast. Þetta er mikill harmleikur. Og við verðum ein- mitt að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir þennan harmleik. Julian sagði: — Hvemig þá? -— Með því að láta þær fá réttan eiginmann, kæri vinur. Eiginmann, sem við höfum valið sjálf. Eitt andartak datt Julian í hug að Mr. Pimm væri brjálaður. Hann sagði: — Bíðum nú andar- tak. Ertu að segja mér, að þú veiðir upp efni í eiginmenn og látir þá svo næla sér í múraðar ungmeyjar? — Ég hefi nú kannski ekki lýst þessu með þessum orðum, kæri vinur, en þú ferð nærri um þetta. Við látum ríkar kon- ur fá fyrirmyndar eiginmenn, það er allt og sumt. Og við lifum eins og blómi í eggi vegna þess að það er einn veikur blettur á brynju þeirra. Mr. Pimm lækk- aði röddina og hvíslaði eins og samsærismaður: — Þær geta aldrei staðizt mann, sem hefur einhverja tign, einhvern titil. — En ég hélt að slíkt væri löngu liðið - heyrði fortíðinni til. — Vitleysa. Það þarf ekki annað en að veifa titli framan í auðuga konu, þá er sigurinn vís. — Áttu þá bara við banda- rískar konur? — Alls ekki, alls ekki. Jafn- vel þótt flest fórnarlömb okkar séu bandarísk. Jæja, komum okkur þá að efninu. Þú átt að vinna fyrir Mehaffey fjölslcyld- una, svo að við verðum að gefa þér einhverja hugmynd um á hverju þú átt von. Þau leigja stórt einbýlishús, Villa Florent- Framhaldssagan - 2. hluti Eftir Lindsay Hardy ERKIHER 2g — VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.