Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 30

Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 30
f garöinum þar sem hver éfur annan Framhald af bls. 19 situr í kvöldsvalanum og drekk- ur sitt koníak suður í Sukuza í Kriiger-garði. „Kofinn“ okkar er eítirmynd, líking kofa inn- fæddra, stráþak, veggir úr múr- steini. En það er vatn í þvotta- skálum, tvö rúm, s valir, bað, allt sem ferðamaður þarf til þess að eiga góða nótt. Við áttum nóg koníak. Það var gaman að sitja úti á svölunum, horfa á stjörnu- bjartan himininn í hlýrri sumar- ncttinni, spjalla sarnan. Við sát- um lcngi. Líklega hef ég hrotið í nctt. „Svo að talað sé í fullri alvöru“, sagði Denis, ,,þá held ég að við þurfum ekki að harma þó að fílar verði ekki á vegi okk- ar í dag. Við höfum áreiðanlega báðir séð þá áður, og ég get aldrei að því gert, að það er eina dýrið, sem ég er alltaf hálf- smeykur við hér í garðinum. Öll önnur dýr láta bifreiðina af- skiptalausa, en geðvondur fíll gæti fundið upp á að fleygja hcnni út í skóg. Ég kann raunar ekki nema eina sögu um það héðan úr garðinum, og þar var það ekki fílhnn, sem var söku- dólgurinn. Tveir stúdentar óku hér í litl- um, lckuðum bíl. Þeir mættu fíl á veginum. Um leið og piltarn- ir óku fram hjá f.'lnum opnaði annrr stúdentinn glugga og fleygoi tómri bjérdós í filinn. Fíilinn slæmai rananum í bíl- inn, og dró hann svo inn í skóg. Þar stóð henn ler.gi yfir þessu hrekkjctta kvikindi og ve!ti vöngum yíir hvernig á þessu til- tæki þess hefði staðið. f tvo daga stéð fíllinn yfir bílnum, þar sem stúdentarnir sátu og þorðu sig ekki að hræra. Á því tímabili tyllti hann sér á rassinn niður á framhluta bifreiðarinnar, sem hann mölbraut og skeit svo yfir hrúgaldið áður en hann lallaði inn í skóginn. Þá fyrst þorðu stúdentarnir að skríða út og leita .sér hjálpar. Fílar eru langrækn- ir og minnugir. Maður skyldi gæta þess að gera þeim ekkert til ergelsis að óþörfu“. Við ókum áfram veginn norð- ur frá Sukuza. Við sáum króko- díla í Sabeieánni. Þeir möruðu þar í vatninu og biðu þess að eitthvert dýranna álpaðist niður að árbakkanum. Þeir drepa allt, jafnvel buffla, draga þá niður í vatnið, kæfa þá og geyma þangað til þeir rotna. Það er þeirra sæl- gæti. Við sjáum hóp gíraffa. „Hér eru um 30 gíraffar drepnir á dag“, sagði Denis. En þessir eru áhyggjulausir, svifla tungunni um laufin, rykkja til hausnum, slíta og tyggja. Við ökum norður skóginn, og skemmtum okkur við að kepp- ast um að verða fyrstir til að sjá nýja dýrategund, og það er Denis, sem oftast vinnur leik- inn. Hann er ótrúlega fljótur að koma auga á það, sem ég sé ekki, antilopur, dádýr, „hestana í nátt- fötunum" zebradýrin, frændur okkar apana, steingeitur, fágæta fugla. Það er orðið óþægilega heitt þó að klukkan sé ekki nema rúmiega sex. „Hvar eru nú ljénin þín, minn kæri Denis?“ spyr ég. „Þau eru að gantast við fílana þína, minn góði Sigurður", svarar hann og giottir. Svo stöðvar hann bifreið okkar, kveikir sér í vindlingi. „Hvað er hér að sjá?“ , Horfðu til hægri“. — Nú, þarna er hún, liggur fram á lappir sínar, líklega ekki nema 5 metra frá okkur. Hún horfir til okkar, en lætur sig bersýni- lega engu skipta nærveru okkar. Henni virðist dálítið ómótt því að hún geispar, veltir sér, sleikir svo hramminn og strýkur hon- um nefið eins og köttur. Hópur af Impaladýrum er á beit í lík- lega 200 metra fjarlægð frá þessu gula, grimma dýri. Þau virðast alveg áhyggjulaus. „Undarlegt en satt“, segir Denis. ,Þegar ljónin eru södd, þá láta Impaladýrin sig engu skipta þó að þau séu rétt hjá þeim, en þegar Ijónin eru hungruð þá eru þau hrædd. Þau finna þetta á sér. Þetta ljón er áreiðanlega nýbúið að éta. Þess vegna eru dýrin ekki hrædd“. Ljónið horfir á okkur, drepur tittlinga. Kráka gargar. Það velt- ir sér, ris aftur upp á framlapp- ir, geispar, horfir til okkar, sleik- ir hramminn, þvær sér um nef- ið. „Hún er löt. — Nýbúin að drepa og éta“, segir Denis „Ein hér?“ „Það held ég ekki. Þau eru vana’ega mörg saman. Ég held, að hún sé nýbúin að éta, hafi farið frá hinum ljón- unum og sé núna að hvíla sig áður en hún fær sér að drekka. Ég held, að einhversstaðar hér í nágrenninu séu fleiri ljón. Hún er áreiðanlega ekki hér ein síns liðs. Það mætti segja mér, að það væri hún, sem er nýbúin að drepa, og að hin ljónin séu nú að gæða sér á bráðinni. Það eru þær sem drepa. Þeir öskra bara. Þú ættir að heyra þá öskra. Það er stórkostlegt. Þá tryllast dýrin og hlaupa um skóginr. Þeir öskra, en þær drepa. Karlljón drepur sjaldan. Það er letingi. Öskrar hara og étur“. Við ökum áfram lengra inn í skóginn. Hér er ekkert, sem minnir á komu mannsins í þetta land nema vegurinn, sem við ök- um eftir, bifreiðin, sem við sitj- um í. Hér reika dýrin um skóg- inn, alveg eins og forfeður þeirra gerðu fyrir þrem öldum, þeg- ar Jan van Riebeck nam land við Höfðaborg. Hér er sú Afríka, sem fyrstu hvítu Jandnemarnir sáu. Hér er sú Afríka, sem þeir hafa klætt ökrum, borgum, þorp- um, bæjum, skógabeltum. Hér er sú villta Afrika, sem þeir háfa varðveitt í Krúger-garðinum mikla til minningar um dáðir forfeðra sinna, til varðveizlu þeirra villtu náttúru, sem þeir sigruðu. Við ókum lítið eitt lengra til norðurs. „Horfðu hérna til hægri“. — Ég lít þangað og sé að þar eru þrjú ljón, tvö karlljón, eitt kven- ljón. Hjá þeim liggur svartur, dauður skrokkur. Það er buffall, ungt dýr. Hausinn veit að okk- ur, horfir til okkar brostnum augum undan stórum hornunum. Nú rambar annað karlljónið út á veginn nokkra metra frá bif- reiðinni, sem við höfum stöðvað. Hitt fer út í kjarrið, nokkra metra frá hræinu og leggst þar. Ljónynjan stendur ein yfir dauðu dýrinu. Hún rekur nefið að því, fær sér kjaftfylli, rykkir í. Þá lyftist afturlöpp dauða dýrsins. Og þannig heldur áfram um stund. Ljónið tætir kjötið úr skrokknum. Afturlöppin lyftist og veifar til okkar. „Ég er dauði, svarti, ungi buffallinn, sem drep- inn var fyrir nokkrum mínút- um. Ég er hann. Ég er bjáninn, sem álpaðist frá hjörðinni. Ég er ungi, svarti aulinn. Þess vegna veifa Ijónin dauðri, svartri löpp minni til þín, hvíti íslendingur. Þetta er líf skógarins, sem ég hef lokið, svartur aulinn, sem asnaðist burt“. Og Ijónynjan heldur áfram að tæta í sig volgt kjötið. Hún rekur nefið inn í skrokkinn, styður við hann með framlöppunum, rykkir í. Það brskar í hræinu. Ljcnynia i reis- ir hausinn, tyggur, dregur að sér lappirnar leggst svo á magann og nýtur þannig morgunvarðar- ins. „Hér myndi ég verða í allan dag ef ég væri einn míns liðs“, sagði Denis. „Ég myndi b;ða þess að ljónin ætu nægju sína. Þá sæi ég gammana, sem eru vanalega fyrstir á vettvang. Svo koma sjakalarnir, þá hýenurnar. í kvöld verður ekkert eftir af þessum unga buffli, hókstaflega ekkert, nema ef til vill förin hérna í sverðinum, þar sem hann háði dauðastríðið við Ijónin. Ekkert. Allt annað verður horfið. Ekkert verður eftir til endurminningar um þetta unga svarta dýr. Ekk- ert“. Svartur gammur með gráleitt brjóst og hvíta fætur sezt á grein í námunda við hræið. Annar kem- ur og tyllir sér á flötina, eigi alllangt frá hinum. Þeir horfa til skrokksins, taka til við að hoppa nær honum. Ljónynjan, sem virt- ist búin að éta nægju sína, hafði lagt sig til hvíldar hjá karlljón- unum tveim, sem nú voru kom- in inn í kjarrið nokkra metra frá hræinu, hún rís nú á fætur og skokkar til skrokksins. Þú fljúga íuglarnir tveir burt — forða sér. „Þau ætla að éta meira, þau eru enn ekki södd“. Fuglarnir eru hræddir. Við erum líka hræddir, því að við yrðum drepnir ef við færum út úr bílnum. Hér er það ljónið, konungur dýranna, sem er al- máttugt. Þess vegna leggjast ljón- in þrjú fram á lappir sínar, horfa í átt til hræsins, láta sig nær- veru okkar engu skipta, liggja bara og bíða þess að þau verði þyrst. Þá munu þau fara frá hræ- inu. Þá munu fuglarnir tveir þora að koma til þess að fá sér kjöt- tættlu. Svo kemur sjakalinn. Á eftir honum ksmur hýenan, sem bryður beinin. í kvöld verður ekkert eftir af þessu unga, svarta dýri — ekkert nema sporin í gulum sverðinum, þar sem það háði sitt dauðastríð — og á morg- un verða þau líka horfin — skóg- urinn búinn að þurrka út allt, er minnir á svartan, einfeldning, sem hljóp í sólarupprisunni frá hjörð sinni og týndi þar fyrir sínu unga lífi. „Ég sagði þér satt í morgun. Ég er ljónheppinn. Alltaf hepp- inn hér í Krúger-garði“, sagði Denis. ,.Ég rekst alltaf á ljón. En sérðu skítinn á veginum. Það eru fílarnir. Þeir skíta bara fyrir þá, sem hrjóta fullir uppi í Suk- uza á næturnar. Þetta er þér alveg mátulegt. Þú varst þéttur í gærkvöldi, æt’aðir aldrei að átta þig á Suðurkrossinum, velt- ir þér hrjótandi í bælinu í nótt. Þess vegna sérðu bara skítinn úr fílunum, trén, sem þeir hafa mölvað. En ljónin höfum við séð. Ég sé alltaf ljón í Krúger-garði. Ég er ljónheppinn“. — VIKAN 10. tW.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.