Vikan


Vikan - 16.04.1964, Page 4

Vikan - 16.04.1964, Page 4
Þessar myndir, sem hér birtast, voru allar tii í íór- um VIKUNNAR. Þær eru flestar síðan ó stríðsór- unum; þessum umbrotaórum, þegar allt líf ó Is- landi var líkt og drepið úr dróma þeirrar kreppu, sem ríkt hafði áratuginn á undan. Þá var fólkið ekki það sama og það er nú og Reykjavík og andi hennar á allt aðra lund. Þá var Reykjavík ekki orðin það stór, að það væri farið að minn- ast á hugtakið: Jafnvægi í byggð landsins. Og nú höldum við jafnvægi í byggð landsins með því að birta mynd af Þuru í Garði utan af lands- byggðinni og raunar eina frá Selfossi. VIKAN á eitthvað meira í fórum sínum af svipmyndum iið- inna daga og ef til vill mun eitthvað af þeim verða birt nú á næstunni. ,------------------------ VIKAN lýsir efftlr gömlum myndum til birtingar Margir endurlifa eitthvað af ilm liðinna daga, þegar þeir sjá gamlar myndir með þekkt- um andlitum, sem nú eru ef til vill orðin tuttugu, þrjátíu eða fjörutíu árum eldri en þau voru þá — ef þau eru þá enn ofar moldu. Nú heitum við á lesendur Vikunnar að koma til móts við okkur og senda okkur gamlar myndir til birt- ingar. Takið nú fram rykfall- in albúm og gluggið í kassa á háaloftum. Hver veit nema þar leynist skemmtilegar, gamlar myndir. Helzt þarf að vera um að ræða merka at- burði, myndirsem lýsa vinnu- brögðum, klæðnaði eða skemmtunum og svo er alltaf gaman að sjá gamlar mynd- ir af fólki, sem flestir kann- ast við. Vinsamlegast sendið skriflega stutta frásögn af því sem ber fyrir augu á hverri mynd. Ef einhverjar skemmtilegar sögur eru tengdar myndunum, þá látið þær fyrir alla muni fylgja með. Vikan greiðir 150 krónur fyrir hverja mynd, sem birt- ist og sér um að koma þeim óskemmdum aftur til skila. 4 — VIKAN 16. tbL Á stríðsárunum kom kvikmyndaleikkonan Marlene Dietrich hingað til að skemmta her- mönnum og íslenzkir blaSamenn fengu að tala viS hana og væntanlega um leiS aS sjá fallegustu fætur heims. Athöfnin fór vitaskuld fram í bragga. Marlene er í hermanna- úniformi og henni á hægri hönd situr ívar GuSmundsson, blaSamaSur við MorgunblaSiS og núverandi blaSafulltrúi hjá SameinuSu þjóSunum í Pakistan. Marlene á vinstri hönd situr Eva Ragnars, blaSamaSur hjá Vikunni og þá Bjarni GuSmundsson, blaSafuiltrúi ríkisstjórnarinnar. í aftari röS frá vinstri: Hersteinn Pálsson, fyrrum ritstjóri Vísis, Ásmund- ur Sigurjónsson, ÞjóSviljanum, Jón H. Guðmundsson, ritstjóri Vikunnar (nú látinn), Svavar Hjaltested frá Fálkanum, Thorolf Smith frá AlþýSublaSinu (nú hjá ríkisútvarpinu) og Jón Magnússon fréttastjóri útvarpsins. " Fyrir tuttugu árum eða svo var Ijósmyndari VIKUNNAR á ferð i Myvatnssveit og þá tók hann þessa mynd af Þuru i GarSi, þeirri hagorSu og frægu konu, sem núna er nýlega látin. Eitt sinn var það, að einn ungur maður sendi Þuru - ■' ssy** þessa vísu: Þura í GarSi þraukar hér þögul á vatnsins bakka, ef hún kynntist meira mér mundi hún eignast krakka. Þura tók þessa vísu ekki þegjandi eins og líka var viS aS SHIq \ búast af henni. Hún kvaS vísu til stráksa 11 Ekki þarf aS efa þaS aS ég þakka skeytiS. Nefndu drengur stund og staS og stattu viS fyrirheitiS.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.