Vikan - 16.04.1964, Síða 7
Egypskar konur á dögum Cleopötru og rómverskar konur til forna notuðu ávaxtasafa í fegr-
unarvörur sínar.
Með hliðsjón af reynzlu kvenna fyrri tíma, hefur INNOXA með aðstoð nútíma efnafræðivís-
inda, hafið framleiðslu fegrunarvöru, sem er nærandi og styrkjandi fyrir húðina, undir nafninu
LIVING PEACH
en við framleiðsluna á snyrtivörum með þessu nafni er notaður kjarni úr sólþroskuðum
Ferskjum.
LIVING PEflCH
samanstendur af eftirfarandi tegundum:
Claensing Lotion, fyrir allar húðgerðir.
Moisturising Lotion, raka-aukandi næring-
arkrem fyrir allar húðgerðir.
Skin Xonic Regular, fyrir þurra og venju-
lega húð.
Skin Tonic Extra, fyrir feita húð.
Body Lotion.
INNOXA snyrtivörurnar fást í eftirtöldum
verzlunum:
Oculus h.f., Austurstræti
Sápuhúsið h.f.,
Austurstræti
Regnboginn s.f.,
Bankastræti
Stella, Bankastræti
Gyðjan, Laugavegi 25
Apótek Hafnarfjarðar,
Hafnarfirði
Apótek Kópavogs,
Kópavogi
Edda, Keflavik
Amaró, Akureyri
Straumur, ísafirði
Sauðárkróks Apótek,
Sauðárkróki
Verzlunin Túngötu 1,
Siglufirði
Apótek Ncskaupstaðar,
Neskaupstað
Apótek Austurlands,
Seyðisfirði
Silfurhúðin,
Vestmannaeyjum
Drangey, Akranesi
hverfur ekki. Þetta hcfur verið
gert á ungum piltum, sem lík-
legt er að muni fá skalla síðar
meijr, sréstaklega ef það er í
ættinni, og hefur gefizt vel. Oft
er það líka að skalla fylgir höf-
uðverkur og ýmis andleg vanlíð-
an, og þótt ekki sé nema til að
laga það, er betur farið en heima
setið.
Sjálfsagt er í öllum tilfellum,
að lieita læknis strax og hár fer
að losna grunsamlega mikið, og
fá hjá honum ráðleggingar, jafn-
framt því að þrífa hárið vel og
snyrta það reglulega.
Úr því þú nefnir auglýsingar
í erlendum blöðum í þessu sam-
bandi, skal ég benda þér á banda-
rískt fyrirtæki, sem selur hár-
kollur fyrir karlmenn. Þú getur
skrifað þeim og beðið um nán-
ari upplýsingar, sem þeir senda
ókeypis. Addressan er: Taylor
Topper, 123 W. 28th St., New
York 1, N.Y. — Dept. 4101.
En mundu umfram allt eitt:
Gildi mannsins liggur ekki í hár-
vextinum.
Atvinnuspurning...
Kæra Vika!
Ekki það ég búist við neinu
svari af viti frá ykkur, en svona
hljóðar mitt próblem: Ég útskrif-
aðist úr Verzlunarskóla fyrir
nokkrum árum og hef síðan unn-
ið hjá stóru fyrirtæki. Þar hef
ég nokkrum sinnum verið hækk-
aður í tign og nú erum við þrír,
sem keppum að fulltrúa- eða eins-
konar varaforstjóratign, því vara-
forstjórinn er orðinn gamall og
fer að hætta. Forstjórinn virðist
hafa sérstakar mætur á mér og
þess vegna á ég sterkan leik að
því er virðist. Forstjórinn hefur
meira að segja nokkrum sinnum
boðið mér heim (ég er ógiftur).
Þar kynntist ég dóttur hans og
hef nokkrum sinnum boðið henni
út síðan. Hún er mjög geðþekk,
en ég hef engan sérstakan áhuga
á henni fyrir eiginkonu. Þetta
samband okkar hefur engin áhrif
haft á samskipti mín við for-
stjórann. En þar sem dóttirin er
mjög lengi að búa sig, hef ég
orðið að bíða þar á heimilinu á
meðan og þá hef ég kynnzt móð-
ur hennar, sem er aðeins innan
við fertugt og hrífandi kona. Hún
bauð mér einu sinni heim og var
þá alein. (Ég sá seinna, að það
V
var gildra). Þegar við vorum
bæði orðin í kippnum, er ekki
að sökum að spyrja, við slepptum
bæði fram af okkur beizlinu. Síð-
an hefur hún hundelt mig og
reynt að fá mig í samskonar
heimsóknir aftur. Ég þori ekki að
koma þangað vegna hennar og
stelpan er alveg að verða vit-
laus og skilur ekki neitt í neipu.
Hvað get ég eiginlega gert? Ef
ég held áfram með frúna, þá
kemst stelpan að því og fer óðar
með það í föður sinn, forstjórann.
Og þá er úti um mig í fyrirtæk-
inu. Ef ég held áfram með stelp-
una og hætti við frúna, þá verð-
ur hún „sjalú“ og guð má vita,
hverju hún fær framgengt. Ef
ég hins vegar hætti við stelpuna,
gæti karlinn orðið súr og tekið
einhvern hinna fram fyrir mig.
Hvernig hljóðar svarið við þessu?
Með kærri kveðju.
Ástarbrandur.
---------Þetta er í sjálfu sér
ósköp einfalt, Brandur minn. Þú
verSur bara að gera það upp við
þig hvað þú vilt, og í rauninni
sýnist mér aðeins vera um tvennt
að velja.
Annaðhvort er að sinna atlri
fjölskyldunni, eins og liún vill
— sleppa allri sjálfselsku og
þjóna náunganum, eins og þar
stendur, eða búra þig niður í
einhvern tepruskap, sem ekki á
heima hjá fullorðnum karlmöim-
um.
Ef þú vilt fá stöðuna, skilst
mér að dóttirin og einhver hluti
af frúnni fylgi með. En ef þú
sleppir stöðunni, dótturinni og
frúnni, þá skaltu láta leggja þig
inn til rannsóknar sem fyrst.
Annars sýnist mér þú ekki vera
neitt eftirsóknarvert efni í fpr-
stjóra, ef þú gaetur ekki bjargað
þér út úr svona smá problemi
sjálfur — piltur minn.
VIKAN 16. tv, — J