Vikan


Vikan - 16.04.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 16.04.1964, Blaðsíða 32
(^siöfrT) VIK II 4 'loupnar Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vikan leggur blessun sína yfir alla starfsemi þína, heima og heiman. Ýmislegt sem hefur dregizt á langinn með að framkvæma, gengur nú eins og af sjálfu sér. Það væri skynsamlegt af þér, að kjósa einveruna fram yfir félagslífið í bili. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): OGættu þess að vera ekki of herskár 1 samskiptum þínum við aðra. Þriðjudagur og miðvikudagur gætu fært þér mikil tækifæri en auðvitað verðurðu að leggja þitt að mörkum og nota skynsemina. Þú munt lenda í skemmtilegum félagsskap um helgina. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Veittu meiri athygli persónu, sem þú hefur snið- R ▼ gengið og vart metið viðlits, án þess þó að nokkr- ▼Jur ar ástæður séu fyrir hendi. Þessi persóna gæti orðið þér ómetanlegur félagi og ráðunautur. Reglubræð- ur þínir vænta mikils af þér, en gættu þín. Krabbamerkið (22. júní — 23. júli): Vertu bjarsýnni en undanfarna daga, því það fleyt- ir þér talsvert á leið. Óskir hjartans munu ná fram að ganga, leggðu þig allan fram og njóttu líðandi stundar því þetta á eftir að verða þér minnisstætt. Þú átt góðar stundir á heimili vina þinna. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): eÞú færð sönnur fyrir því að víða er pottur brot- inn, en sem betur fer snertir þetta þig ekki mikið en kemur sér vel upp á seinni tímann. Einhverjir reyna að hindra þig í fyrirætlunum þínum, þú ættir að hlusta á rök þeirra. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): 0Þú gerir eitthvað, óviljandi að mestu leyti, sem fólk undrast yfir en er þó jákvætt fyrir þig. Vikan verður lík og undanfarið. Þú færð heimsókn af persónu, sem þú hefur mjög gaman af að hitta, auk þess sem hún kemur með góðar fréttir. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Allt mun leika í lyndi og hlutirnir koma án minnstu fyrirhafnar upp 1 hendurnar á þér. Þú verður mjög hamingjusamur í einkalífinu og ástvinir þínir munu vera mjög samstilltir. Gamlir félagar þínir hafa samband við þig. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Dagarnir verða mjög hversdagslegir framan af vik- unni, en í vikulokin roíar til svo um munar. Stofn- un ein, sem þú ert í sambandi við gerir þér gott tilboð. Útgjöldin verða eitthvað meiri en þú bjóst við, en það bjargaðist allt saman. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú færð mikið að starfa þessa viku og ef til vill meira en nóg. Gættu þess því að enginn misnoti % j y sér vinnugleði þína. Þú gætir átt í dáiltlum erfið- leikum í einkalífinu, gagnrýndu persónu sem und- anfarið hefur reynt að hafa áhrif á skoðanir þínar. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú ert í dálítið erfiðri aðstöðu, það er togað í þig út tveim áttum og erfitt aö greina úr hvorri átt- inni er togað fastar. Það eina, sem ráðlegt er fyrir þig er að gefa sem minnst færi á þér. Verðu góð- um tíma til íhugunar og lærðu af fenginni reynzlu. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú verður mjög vel upplagður þessa dagana og flest sem þú snertir á gengur eins og í sögu. Gættu þess að standa ávallt í skilum, líka hvað snertir smáatriðin. Þú færð gott tækifæri til að treysta grundvöll starfs þíns og auka hróður þinn. OFiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Þú verður fyrir einhverjum leiðindum, sem krefj- ast þess að þú standir þig. Hroðvirkni er ókostur, gættu í eigin barm og athugaðu hvort þú ert sekur um slíkt. Forðastu skjótræði, þú hefur nógan tíma til að undirbúa málin betur. 32 V1KAX U. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.