Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.04.1964, Qupperneq 39

Vikan - 16.04.1964, Qupperneq 39
Toni gefur fjölbreytileika Sama stúlkan. Sama permanentið. Ölíkt útlit Toni lífgar og gerir hár yðar meðfærilegt. Gerir yður kleift að leggja og greiða hár yðar hvernig sem þér óskið. Heldur lagnirtgunni. Sama permanentið heldur hvaða lagningu sem er. Hér eru þrjár ólíkar hárgreiðslur, sem eru grundvallaðar á einu Toni. En þér getið greitt yður á tugi mismunandi vegu. Ef þér óskið eftir að fá leiðbeiningar um hárlagningar fyrir þessar hrífandi hárgreiðslur, þá vinsamlegast skrifið til Evelyn Douglas, Globus h.f., Vatnsstíg 3. Reykjavík. Um Toni Aðeins Toni hefur tilbúinn bindivökva. Engin fyrirhöfn. Tilbúið til notkunar í handhægri plastik flösku. Vefjið aðeins hárið upp á spólurnar og þrýstið bindivökvanum í hvern lokk. þér munið öðlast fullkomið Toni. Engar krullur. Engir stífir broddar. Toni gerir hár yðar mjúkt og skínandi. Auðveldar hárgreiðsluna. Reynið Toni. frá tíu og upp í tuttugu penslar, flestir digrir og sterklegir eins og strikin og drættirnir í myndunum. Og hvorttveggja minnir það á lista- manninn sjálfan og skýrt mótaða drætti hans. Eg spurði: — Hvað gerirðu við alla þessa pensla? — Nota þá alla saman. Hvíli þá bara vel á milli. Þeir verða að fá hvíld til að halda fjaðurmagninu. Sjáðu þessa hér, villisvlnabursta; taktu eftir fjaðurmganinu. Þetta er eins og hljóðfæri. Með þessum breiðu penslum á að vera hægt að draga örmjó strik. Mér lætur bezt að vinna með breiðum penslum. — Og þér lætur vel að mála stórar myndir sýnist mér. — Æjá, ég nenni ekki að dunda við smámyndir. Þetta er eins og.með suma karlmenn á sextugsaldri, sem eru alltaf á eftir smápíum. Eg hef sagt við þá: Þetta eru ekki konur. Hafa ekki hugmynd um ástina, óþroskaðar. Ég vil konur sem eru svona — (Hann sló út höndunum og dró þær niður í stórum bogadregn- um línum) konur sem leiða mann alla leið til himnaríkis, það er eitt- hvað fyrir mig. Ég hef sagt þessum kunningjum mínum, að þegar ég verð níræður, þá verð ég farinn að elta smápíur og mála litlar myndir með grönnum penslum. — Þá kem ég og tala við þig aftur. En segðu mér annað: Hvernig hagar þú vinnudeginum? Stendurðu hér langtímum saman við að mála? — Stundum byrja ég um miðjar nætur, þrjú, fjögur eða fimm. — Hvað á það að þýða? Þá er kannski ekki orðið bjart. — Ég ræð ekki við mig. Fjörið er svo óskaplegt. Sérstaklega eftir að ég fékk tappann, blóðtappann skilurðu? Jú, þeir sögðu, að ég ætti að vera dauður með þennan heljar tappa í hjartanu, en ég vísaði hel- vítis tappanum bara heim til föður- húsanna og hef ekki orðið var við hann síðan. Og sem sagt; ég byrja snemma, það er að segja að undan- gengnum morgunæfingum, andleg- um og Kkamlegum. Það má hvorugt vanrækja. — Geturðu framið líkamlegar aefingar og andlegar undir eins? — Já, ég geri það. Ég get gert mfnar æfingar og hugsað mér um leið, að ég sé svamlandi ( Miðjarð- arhafinu eins og ég sagði þér áðan. — Ég hugsa að það sé gott að byrja daginn með súndi í Miðjarðar- hafinu, sagði ég. — Bráðnauðsynlegt. Ég mála til hádegis og legg mig eftir matinn. Svo tek ég sprett fram að kaffi- tíma og geng út mér til hressingar í eftirmiðdaginn. Á kvöldin er ég vís með að taka eina törn í við- bót og svo fer tími í að þvo upp verkfærin, penslana mína, hljóð- færin mín. Hér er ég með slurk af penslum, sem eru að þorna. Þeir fara [ hvíld á eftir. Það er ekk- ert skemmtilegt að verka penslana, ( gamla daga voru lærlingar og vinnukonur látin þvo upp pensla. Gömlu meistararnir snertu ekki á því. — Ertu vanur að vera einn hér i helgidóminum eða hefurðu bæði konuna og Callas með þér? — Nei, ég er ekki aldeilis einn. Gulldropinn minn er hjá mér og stundum málar hún líka. Hún er alveg mögnuð. Stundum segir hún: ,,Afi, nú skulum við gera amis". Já amis. Það var nefnilega Dela- croix sem sagði það. Hann meinti, að nú ætlaði hann að reka enda- hnútinn á verkið. Kannski mætti segja: Að gefa verkinu lif, innblása því andann. Gulldropinn minn veit hvað amis er. — Kaupendurnir verða að koma hingað til að verzla við þig. — Já, þegar þeir koma. Stundum líða nú mánuðir og þeir láta standa á sér, en svo kannske stingur ein- hver sérvitringur inn kollinum, sem dottið hefur í hug að fjárfesta í myndlist. Fólk almennt skilur ekki ennþá, að málverkakaup er það sem Danir kalla „Pengeanbringelse'. Bara örfáir menn. Nei, það verð- ur enginn feitur af listinni hér á íslandi,- ég gæti til dæmis ekki átt bíl og mundi reyndar aldrei eiga bil nema að hafa bílstjóra. Fjand- ann hef ég að gera með að vera að fylgjast með öllum þessum hjól- um. Ég vil sitja aftur í og slappa af. Helzt með konu, það er verandi í bílum, ef maður getur verið afturí með konu, en að keyra sjálfur, nei . . . Annars er þetta hús mitt mesta kraftaverk. Þá stóð maður með tvær hendur tómar og bjart- sýnina. Ég var alltaf þungt hald- inn af bjartsýni. Einar var aftuv á móti svartsýnn, Einar Jónsson, myndhöggvari. Einu sinni sagði Einar við mig: „Jón minn, eftir okkur verður þetta allt búið". Hanr átti við listina. — Einar var nú farinn að eld- ast þá, en þú ungur. Ertu nokkuð VIKAN 16. tbl. — 00

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.