Vikan


Vikan - 16.04.1964, Blaðsíða 40

Vikan - 16.04.1964, Blaðsíða 40
TJÖLD HVÍT OG MISLIT MARGAR GERÐIR. SÖLSKÝLI TÖSKUR M/MATARÍLÁTUM (PICNIC). SVEFNPOKAR VINDSÆNGUR BAKPOKAR SÖLSTÖLAR MARGAR GERÐIR. GASSUÐUTÆKI MARGSKONAR. FERÐAFATNAÐUR ALLSKONAR. GEYSIR TEPPA OG DREGLADEILDIN orðinn sömu skoðunar og hann núna? — Einar þekkti landann fullkom- lega. Þetta er alveg rétt sem hann sagði. Eftir okkur verður aldrei neitt. Eg er ekki bjartsýnn á framgang listarinnar skal ég segja þér. Skól- arnir taka menn ekki öðrum eins tökum og þegar við Þorvaldur Skúlason og Gunnlaugur Scheving vorum á akademíinu. Þá var byrj- að á byrjuninni. Sjáðu þessa mynd eftir hann Scheving þarna á veggn- um. Hún er ólík því sem hann mál- ar nú. En við fengum ekki að sleppa billega; við urðum að gera fjölda margar stúdíur fyrir hverja hönd á þessum konum áður en það var sett á léreftið. Nú eru menn hættir að kunna handverkið og því fer sem fer. Og svo veður allt uppi af amatörum, sem eru miklu dug- legri að koma sínum verkum á fram- færi og selja þau. Þeir hafa bísnis- hæfileika þar sem á vantar um tal- entið í listinni. Nei, ég er ekki bjart- sýnn. Taktu bara hann Ragnar í Smára eru nokkrar líkur til þess að við eignumst annan Ragnar í Smára næstu aldirnar og hvar stönd- um við þá? Það var orðið áliðið og hætt að rigna. Við kvöddum húsráðendur í húsi listarinnar, hlýjunnar og gest- risninnar. Jón Engilberts tók í hönd Gulldropans litla og það glumdi í stiganum, þegar þau fóru upp á loftið til að gera amis. -yþ NÓTT f NAUSTI Framhald af bls. 11. eða þrjá, sem ég taldi víst að mundu þurfa að skýra mér frá ævi- sögu sinni, ef þeir sæju mig þarna, svo ég gaf Stjána merki og við forðuðum okkur niður í veitinga- salinn . . . þar sem skipstjórinn sálugi á heima, sem ég sagði frá í síðasta blaði. Og þar biðum við þangað til ró var komin á frammi, og allir gestir farnir út. Þjónarnir settust við eitt borðið og fóru að gera upp sína reikninga fyrir kvöldið. Svo kvöddu þeir hver af öðrum og við vorum eftir þrír, við Kristján og Halldór Gröndal. Það var auðséð, að Halldóri var um og ó að skilja okkur eina eftir þarna. Hann stjanaði við okkur á alla kanta, sýndi okkur alla hluti, fór með okkur um allt húsið og benti á Ijósrofa, ef við þyrftum á Ijósi að halda, — en við höfðum ákveðið að vera þarna í algjöru myrkri. Hann margspurði okkur hvort við vildum ekki hafa ein- hverja týru hjá okkur, en við neit- uðum því. Samt sýndi hann okkur nákvæmlega hvar við ættum að kveikja á hverjum stað. Svo benti hann okkur á símann, ef við þyrft- um að kalla á aðstoð. Frammi í eldhúsi sýndi hann okk- ur kæliskáp, þar sem hann hafði komið fyrir ýmsum kræsingum og drykkjarvörum, lagði okkur til tó- bak, fékk okkur lykil að útidyr- um, og kvaddi okkur hryggur og kvíðinn á svip. I síðasta sinn æddu andköf und- irheima um viði hússins, þegar Hall- dór opnaði dyrnar. Svo skullu þær í lás með háum smelli — og við Kristján vorum einir eftir andspæn- is því óþekkta. Nú mundi eldraunin hefjast. Fyrst sátum við kyrrir, þar sem við vorum niðurkomnir, reyktum og sötruðum úr kaffibolla, sem Hall- dór hafði borið okkur áður en hann fór. Okkur leið í rauninni vel og vorum alls óhræddir. Þarna vorum við tveir saman [ góðu yfirlæti inni í hlýju og geðþekku húsi, höfð- um allt til alls og fjárinn hefði það, að við hefðum nokkuð að óttast. Við hefðum líklega ekki tekið þetta að okkur, ef við hefðum í raun og veru haldið að eitthvað mundi ske, sem ekki væri fullkomlega eðli- legt. Þótt öll Ijós hefðu verið slökkt, var langt frá því að vera algert myrkur þarna inni, því götuljósin fyrir utan, sendu daufa geisla inn- um kýraugun, sem dugðu til þess að þar var vel ratbjart. En þar sem Ijósið náði ekki til, var samt niða- myrkur, og skotin voru mörg og dimm. Við byrjuðum á því að stemma klukkur okkar saman. Þær sýndu báðar fimmtíu mínútur yfir mið- nætti. Við hrukkum báðir við, þegar skær Ijósbjarmi lýsti á okkur báða eitt augnablik, en hvarf svo jafn- skjótt. Við litum hvor á annan rann- sakandi augnaráði, þangað til Stjáni fór allt f einu að hlægja: „Bíll", sagði hann stuttaralega. „Bíll . . . ? Já, auðvitað. Kom úr Garðastrætinu og beygði niður Vesturgötu. Auðvitað!" „Eru taugarnar að gefa sig?" spurði Stjáni stríðnislega. „Mínar taugar eru úr stáli. Þær gefa sig ekki. Þær halda hverju sem er, eftir því sem ég bezt veit. Ef þær fara, þá fara þær skyndi- Ódýrir þýzkir rafmótorar 1 FASA 0.2-0.95 HK KR. 1228.00-2072.00. 3 FASA 1.1 - 15 HK Kr. 1792- 5565.00. 900 og 1440 R.p.m. SÍMAR: 15300 13125 13126 — VIKAN 16. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.