Vikan - 16.09.1965, Síða 3
Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Biaðamenn: Guð-
mundur Karlsson, Sigurður Hreiðar. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Auglýsingar: Ásta Bjarnadóttir.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Símar: 35320,
35321, 35322, 35323. Pósthólf 533. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreifingar-
stjóri: Óskar Karlsson. Verð í lausasölu kr. 30. Áskrift-
arverð er 400 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram.
Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
16 SÍÐU BLAÐAUKI: GEIR HALLGRÍMSSON, BORG-
ARSTJÓRI, LÍF OG STARF. Blaðaukinn er prentaður
á sérstakan myndapapplr ....................
MINNISSTÆÐAST ÞEGAR ÉG SÖNG FYRIR FANG-
ANA. VIKAN ræðir við hina vinsælu söngkonu,
Guðrúnu A. Símonar ................. Bls. 4
ÁSHILDARMÝRARSAMÞYKKTIN. Séra Sigurður Ein-
arsson rifjar upp fundinn á Ashildarmýri 1496,
þegar erlendu valdi var í fyrsta sinn opinberlega
mótmælt á íslandi .................. Bls. 10
KAPPAKSTUR. Smásaga eftir Alberto Moravia ....
.................................... Bls. 12
6 VIKUR í FANGELSI Á FILIPPSEYJUM. Sigurgeir
Jónsson ræðir við ævintýrakarl úr Vestmannaeyj-
um ................................. Bls. 14
FERÐIN JAFNAST Á VIÐ GEIMSKOT. Guðrún Egilson
ræðir við Pétur á Egilsstöðum um reiðferð yfir há-
lendið ............................. Bls. 16
ANGELIQUE OG KÓNGURINN, framhaldssagan vin-
sæla eftir Sergeanne Golon ......... Bls. 20
VÖGGUVÍSA FYRIR MORÐINGJANN. Sögulok ....
.................................... Bls. 18
Þar að auki: Póstur, Síðan síðast, mataruppskriftir,
krossgáta, stjörnuspá og fleira.
í fjórSa sinn flytur VIKAN blaðauka, þar sem bætt
er inn í aukasíðum um eitt ákveðið efni, og þær
jafnframt prentaðar á betri pappír. Þessir blað-
aukar hafa verið mjög vinsælir og orðið mörgum
að umræðuefni, en auk þess, sem beinlínis má af
þeim lesa og sjá á myndum þeirra, er vert að gefa
því gaum, hve miklu áferðarfallegra blaðið er, þeg-
ar það er prentað á góðan pappír.
Okkur á ritstjórninni dreymir um þann dag, þeg-
ar við getum fengið góðan pappír í blaðið með
sömu innflutningsgjöldum og blaðapappírinn, sem
FORSÍÐAN
I þessu blaði er 16 síðu viðauki, prentaður á góðan
pappír, þar sem sagt er í myndum frá ævi og
starfi Geirs Hallgrímssonar, borgarstjóra í Reykja-
vik. Þótt mestur hluti starfs hans fari fram við skrif-
borð á borgarstjóraskrifstofunni niðri í miðbæ, er
starfiS margþætt og á sér fáar fastar skorSur, svo
skrifborSið heima á Dyngjuvegi skipar einnig sitt
hlutverk við stjórn Reykjavíkurborgar, og þar er
forsíðumyndin einmitt tekin. Ljósm. Kristján Magnús-
son.
Ný, hörkuspennandi framhaldssaga: FLUG 714.
SJÖ ALDURSSTIG KONUNNAR: HIÐ SJÖTTA BEZT.
Hugleiðingar um það hvenær konan hefur eigin-
lega tíma til að sinna sínum eigin hugðarefnum.
ÚTEYJAFERÐIR í VESTMANNAEYJUM. Sigurgeir
Jónsson lýsir öllum föstum ferðum í úteyjar.
Smásaga: ÞAÐ ER EKKI HVASST, CHARLIE.
ÉG HEF OFNÆMI FYRIR ILMVATNSLYKT. Grein eftir
Frank Sinatra.
GENGIÐ UM BORG NÚTÍMANS. Eyvindur Erlendsson
heimsækir Thorbjörn Egner o.fl.
í HEILAGT HJÓNABAND. Vikan fylgist með lútersku
kirkjubrúðkaupi.
BLÍÐLÁTAR KONUR. Grein um hættur þeir, sem gína
við skemmtigjörnum ferðalöngum í Þýzkalandi eft-
irstríðsáranna.
KVENNAEFNI.
ANGELIQUE OG KÓNGURINN.
Oð ýmislegt fleira.
viS verSum nú aS notast viS, þegar við getum sent
ykkur blaðiS meS fallegustu prentun, sem hægt er
aS fá úr okkar vélum og þannig keppt einnig á
því sviði viS erlend blöð, sem prentuð eru á góSan
pappír og flutt inn á mjög lágum tollum. En þvl
er ekki aS heilsa enn sem komiS er, til þess aS geta
flutt góðan pappír inn á lágum tollum verSur hann
aS vera áprentaSur meS erlendum orðum.
Þetta þykir okkur slæmt. EruS þiS ekki sammála?
FlettiS blaðinu og sjáiS mismuninn.
HÚMOR í VIKUBYRIUN
í ÞESSARI 1 VIKU í NÆSTA BLAÐI
BRÉF FRÁ RITSTJÓRNINNI
VIKAN 37. thl. g