Vikan - 16.09.1965, Side 18
Ferðin
jafnaðist
á við
geimskot
hafa fullkomna vakt yfir hest-
unum eða líta bara til þeirra á
hálmtíma fresti. Það var nú eig-
inlega mín sök, að síðari kostur-
inn var tekinn, og það kom okk-
ur í koll. Þegar ég fór að gæta
að hestunum klukkan fimm um
morguninn sá ég, að þrír þeirra
voru horfnir. Ég brá skjótt við
og lét félaga mína vita. Það
þýddi ekkert að hefja leit strax,
því að það var blásvartaþoka
og við sáum varla handa okkar
skil. Um hádegisbilið lögðum
við Sverrir og Armann af stað
til að leita, þótt ég þættist vita,
að þetta reyndist vonlaust verk.
Við komumst brátt á slóð hest-
anna, og okkur sýndist hún vera
nýleg og við héldum, að við
mundum ná þeim innan skamms.
Síðdegis sneri ég við, en hinir
héldu áfram allt til kvölds og
röktu slóðina inn að Kreppu og
urðu að gefast upp við svo bú-
ið. Þetta óhapp olli okkur eins
og hálfs dags töf og þarna missti
ég tvo beztu reiðhestana mína.
— Fór ekki heldur að þyngj-
ast á ykkur brúnin við þetta ó-
happ?
— Nei, nei, blessuð vertu, við
vorum alltaf jafnkátir og léttir
og við ætluðum okkur á leiðar-
enda, hvað sem það kostaði.
Það var náttúrlega bagalegt, að
missa hestana, sérstaklega kom
það niður á þeim hestum, sem
eftir voru, því að í svona ferð
eru fimm hestar á mann algjört
lágmark. Þegar þeir garparnir
Sverrir og Armann komu aftur úr
eftirleitinni, fengum við að vita,
að brúna yfir Jökulsá á Fjöllum
hefði tekið af. Þetta var nú ekki
beinlínis þægilegt fyrir okkur,
þar sem við höfðum ætlað yfir
hana næsta dag. Það var því
ekki annað að gera en fara
hjálparlaust yfir ána og nú reið
á að finna stað heppilegan tili
yfirferðar, en hann virtist vand-l
fundinn. Við riðum að upptök-
um árinnar, hún var ófögur á að
líta, það var mjög heitt í veðri
og var hún þess vegna mjög
vatnsmikil. Það fór hálfgerður
hrollur um mig, þegar ég hugs-
aði um að þurfa að leggja út
í hana, þvi að mér fannst hún
minna mig á sjálft úthafið. En
hvað um það, við lögðum út í
ána og komumst yfir slysalaust.
Reyndar þurfti Gunnar að fara
á hrokasund til þess að snúa
við tveim tryppum, sem tóku
sig úr hópnum og ætluðu aust-
ur yfir aftur, þeim hefur líklega
ekki litizt vel á blikuna blessuð-
um skepnunum. Gunnari tókst
að ná hrossunum aftur, og hann
stóð sig eins og hetja þá sem
endranær, og þegar hann var
þarna úti i ánni, fannst mér
hann minna mig á klett, sem
stendur upp úr hafinu. Flann er
svo mikill öðlingur hann Gunnar,
þótt hann gangi ekki eins og
klukka. í allt held ég að við
höfum sullazt þarna í vatni hátt
á fjórða tíma og vorum blautir
og lítt frýnilegir, þegar þessu
var lokið. Síðan riðum við með-
fram horni Vatnajökuls og okkur
þótti dásamlegt að fá kalda loft-
ið af jöklinum, svei mér þá, ég
held að það hafi gefið lítið eft-
ir góðri hestaskál. Klukkan
fimm um morguninn komum við
að vötnum, sem ég vil kalla
Efri Gæsavötn. Þar reistum við
nú tjöld okkar og tjóðruðum
hestana og þarna höfðu þeir
smágrasrytjur til að narta í. Síð-
an skreiddumst við inn [ tjöld-
in og sofnuðum sveifni hinna
réttlátu allir nema Gunnar, sem
gætti hestanna. Klukkan átta um
morguninn lögðum við svo aft-
ur af stað og vorum heldur þung-
ir undir árum. Eins og ég sagði
áðan hafði smjörið okkar eyði-
lagzt, en feitmeti er mikils virði
í svona ferðum. Eftir tvo tíma
komum við svo að hinum raun-
verulegu Gæsavötnum. Balarnir
þar í kring eru eins og vel rak-
aðar gærur og það var mjög
gott fyrir blessaðar skepnurnar
okkar.
Upphaflega var nú ætlunin að
fara í gegn um Vonarskarð, en
þegar til kom voru hestarnir svo
sárir að okkur þótti það ekki ráð-
legt og héldum þess vegna á-
fram inn í Jökuldal. Jökuldalur
er oft kallaður Nýi Dalur og fólk
segir, að þar sé mjög veðursælt,
en ég vil nú frekar halda mér
við gamla nafnið og verð að
segja að okkur þótti lítið til
dalsins koma, hann er bæði
kaldur og hrjóstrugur og sagn-
irnar um veðursældina eru eins
og hverjar aðrar þjóðsögur. Okk-
ur leizt sem sagt svo illa á dal-
inn, að við reistum tjöld okkar
utar. En allt í einu kom góður
gestur akandi inn úr dalnum.
Þetta var ferðalangur, sem færði
okkur að gjöf koníakspela. Fiann
veitti af ánægju og með virðingu
fyrir hestamenningu og þjóð-
menningu, sem er að glæðast
yfir nú í dag. Við þágum pelann
og geymdum hann, en fengum
okkur vel að borða og svifum
síðan inn í draumalandið, á-
nægðir og úrvinda af þreytu. Mér
brá heldur en ekki í brún, þeg-
ar ég vaknaði og sá að klukk-
an var langt gengin f eitt, við
höfðum þá sofið í um það bil
Framhald á bls. 52.
Ármann að snæðingi.
Ármann og Gunnar laga undir.
Jg VIKAN 37. tbl.