Vikan - 25.11.1965, Qupperneq 5
jafn vitlaus. I frumtexta hét sag-
an hinu þriðja nafni, og það var
sú útgáfa, sem þú last í fyrra-
vetur. Nafn okkar er hins vegar
eftir hinni sænsku útgáfu, sem
er nokkuð frábrugðin, eins og þú
munt hafa komizt að raun um.
— Það hefur verið reynt að hafa
svona möppur á boðstólum, en
enn sem komið er hefur það ekki
gefið svo góða raun, að henta
þyki að taka það upp að nýju.
SVAR TIL P 241:
Ég myndi ráðleggja þér að skrifa
embætti lögreglustjórans í Rvík
og senda bréfið í ábyrgðarpósti.
Þannig getur þú komizt fyrir um,
hvort bréfið hefur komizt á leið-
arenda eða ekki, og ég trúi ekki,
að lögreglustjóraembættið sýni
þann dónaskap að svara ekki
þeim bréfum, sem það fær með
beiðni um upplýsingar.
SVEITALEG SVEITAMENNSKA.
Góða Vika!
Tvö orð um sveitamennskuna:
Eruð þið ekki meiri menn en svo,
að þið álítið allt óviðeigandi og
álappalegt, sem kemur úr sveit-
um? Þið eruð sífellt klifandi á
sveitamennsku eins og hún sé
eitthvað, sem borgarbúar geta
farið til að horfa á á sunnudög-
um út í sveit eða sjái á stjái í
kringum Sambandið, Mjólkurfé-
lagið og Búnaðarbankann! Blað,
sem er vant að virðingu sinni,
getur ekki leyft sér að vera sí-
fellt að klifa á sveitamennsku.
Virðingarfyllst
Sveitamaður.
í Árnabók (— þ.e. íslenzk orða-
bók handa skólum og almenn-
ingi, ritstjóri Árni Böðvarsson)
segir svo, á bls. 693, hægri dálki,
og byrjar í 24. línu neðan frá:
„Sveita-maður k, bóndi í sveit,
maður í (úr) sveit, maður af
landsbyggðinni, andr. þorpsbúi,
kaupstaðarbúi; (niðrandi) búra-
legur, klunnalegur maður, sem
kann sig ekki í fjölmenni, heim-
óttarlegur maður, —mennska kv,
klunnaleg framkoma, það að
kunna sig ekki í fjölmenni, það
að vera lieimóttarlegur“. Enn-
fremur, nokkru ofar: „Sveita-
legur 1. 1 búsældarlegur, sem
ber vitni um búsæld. 2 heimótt-
arlegur, sem ber vitni um að
vera óvanur í fjölmenni, kurfs-
legur“. Ég vil góðfúslega biðja
þá sveitamenm sem enn eru
haldnir of mikilli minnimáttar-
kennd gagnvart þéttbýlismönn-
um, að efna sér í Árnabók og
kynna sér merkingu orðanna, áð-
ur en þeir skrifa okkur fleiri
skammabréf.
ANGELIQUE.
Góði Póstur!
Ég fór þarna á Angelique-kvik-
myndina í Austurbæjarbíói um
daginn að horfa á Angelique, en
mér fannst vera svo miklu sleppt
úr sögunni þar, að það var bara
ekkert gaman að kvikmyndinni.
Svo hef ég heyrt að það eigi að
koma önnur Angelique einhvern-
tíman í vetur og nú langar mig
að spyrja: Er hún verri eða betri
eða jafngóð? Ég ætla nefnilega
ekki að fara nema að þú segir
Póstur, að hún sé betri. Það fer
nefnilega í taugarnar á mér þeg-
ar það þarf að vera að breyta
góðum sögum á bíó.
Með fyrirfram þökk. Hvernig
er skriftin?
Anna.
Að minu viti er sú Angelique-
kvikmynd, sem verður jólamynd
í Austurbæjarbíói, ef allt fer að
óskum, betri en sú, sem sýnd
var þar í haust. En ég get ómögu-
lega skrifað undir, að ekki hafi
verið gaman að þeirri í haust.
Mér fannst hún mjög góð og ein-
mitt breyta lítið frá sögunni. Ég
held þú megir óhrædd fara á
jólamyndina og sendu mér svo
línu og segðu mér, hvernig þér
likaði.
SKÓSÓLAR OG VÖÐVAFJÖLL.
Aðeins nokkur gagnrýnandi
orð um skósóla Keflavíkurbítl-
anna. Eru þeir virkilega svona
óvinsælir skinnin að þeir hafi
ekki efni á að kaupa sér nýja skó,
en þurfa að ganga á tvísóluðum,
eða er þetta kannski bara aug-
lýsing fyrir einhvern sunnlenzlt-
an skósmið?
Og af því ég er byrjuð að
skrifa, þá langar mig að segja
mitt álit á vöðvakóngunum sem
skreyttu blaðið fyrir nokkru, mér
finnst þeir „ógeðslegir“.
Edda.
Það er af þvi að þeir eru svo
næmir í fótunum, að ef þeir eru
bara á einsóluðu, finna þeir hvort
það er króna ellegar túkall, sem
þeir stíga á. — Rétt hjá þér,
haltu þig frekar við þá, sem hafa
viðráðanlega vöðva.
■
fm'mx, WjjtjM,
^I?
* -‘.í ‘
mmim
íslm
Im S
iihk ' • .
. .
m;
HÁRÞURRKA
HEIMILANNA
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. REYKJAVÍK
VIKAN 47. tl>l.