Vikan

Eksemplar

Vikan - 25.11.1965, Side 17

Vikan - 25.11.1965, Side 17
ónsfrú, — hvað get ég gert fyrir yður? — Takk, sagði hún, en það eru ekki smómunir sem ég er komin til að tala um við yður. Sambandið milli mannsins mfns og yðar er . .. — Mannsins yðar? — Reiffenstein barón er maðurinn minnl — Geturðu hugsað þér annað eins, Lisl. Og þessi ólukkufugl er búinn að ganga hér út og inn og alltaf látið mig halda að hann væri piparsveinn! Eg fann hvernig ég fölnaði og fékk tár í augun, og barónsfrúin hefir Ifklega tekið eftir þvf, ég kem ekki sem óvinur. Og til allrar hamingju settist hún loksins niður, ég var orðin taugaveikluð af að horfa á hana standandi. Mitzi tók sér áhrifamikla málhvfld. Lisl beið f spenningi, hún vissi, vegna leikhúsreynslu sinn- ar, að nú hlaut bráðum að Ifða að lokaatrið- inu. —. Nei, ég kem ekki sem óvinur, þvert á móti, ég kem til að biðja yður bónar, segir hún með titrandi rödd og grfpur um báðar hendur mínar. Svo fer hún að gráta og segir kjökrandi: — Gefið mér manninn minn aftur, ég grátbið yður um að gefa mér manninn minn aftur... Með aflvana hreifingu lætur Mitzi hendurnar faila f kjötlu sér. — Geturðu sett þig f mín spor, Lisl? Nei, Lisl gat það ekki með nokkru móti. — Það er ekki eðlilegt að þú getir skilið þetta, segir Mitzi með virðugleik. — En ég hefi töluverða lífsreynslu svo ég róaði hana og þá fór hún að segja frá því hvernig baróninn hafði dregið hana á tálar í mörg ár. En samt sagðist hún elska hann ennþá og gæti ekki lif- að án hans, og allt þar fram eftir götunum. — Að hún skuli ekki skammast sín, sagði Lisl, hneyksluð. Og barónsfrú f ofanálag að haga sér svona! — Þú talar eins og þú hefir vit til, vina mfn. En það eru ekki smámunir fyrir konu að lenda í slíku! Og ég sagði líka við hana: — Grátið bara, frú, ég veit sjálf hvaða léttir það er að gráta. Við skulum tala saman eins og konum sæmir. Ég skil yður svo vel. — Og svo þvældi ég um þetta fram og aft- ur, þangað til við vorum báðar farnar að væla. — En barnið? spurði Lisl. — Bfddu bara, ég kem að því. Nú, við vor- um búnar að sitja þarna og gráta um stund, þegar ég fór að spyrja sjálfa mig, hvað hún eiginlega vildi mér. Smátt og smátt kom það f I jós: Baróninn hafði sólundað öllum eigum þeirra, sínum eigin og hennar líka. Hann var skuldunum vafinn og hver herragarðurinn eftir annan hafði farið upp í skuldir. Ástandið var hreinlega sagt hræðilegt. Og nú biður hún mig að gefa hann eftir, svo að hann setji sig ekki í nýjar skuldir mín vegna. Framhald á bls. 35.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.