Vikan - 14.04.1966, Side 31
svo geigvænlegir sem raun bar
vitni í skjótri svipan.
Það leið hinsvegar furðulang-
ur tími, áður en öllum var ljóst,
sem í húsinu voru, að voði væri
á ferðum.
Eftir að allt leiksviðið var
þegar orðið samfellt eldhaf og
leikhúsgestir í hundraðatali lið-
in lík í krákustígum efri út-
ganganna, streymdi fólkið enn-
þá inn í anddyri hússins og
keypti sér aðgöngumiða, en lög-
regluþjónar spígsporuðu í ró-
legheitum um aðalinnganginn.
En brátt varð voðinn á allra
vitorði.
Af harmleiknum inni í húsinu
er það að segja að leikhúsgest-
irnir höfðu fyrst séð tjaldið
ganga í bylgjum, eins og stormur
blési um sviðið að baki. En
næstum samtímis varð tjaldið
alelda, og á örfáum augnablik-
um læsti eldurinn sig í áhorf-
endasvæðin.
f fyrstu urðu allir lamaðir af
hræðslu, en síðan kom æðisgeng-
in skelfingin, og hundruð manna
ruddust að útgöngudyrunum, en
í sömu svifum slokknuðu öll ljós,
af því að lokað hafði verið fyrir
aðalgasæðina, eins og áður seg-
ir. Þetta hræðilega myrkur gerði
uppnámið ennþá villtara og allar
undankomuleiðir torveldari.
Nokkrir stukku frá áhorfenda-
pöllunum alla leið til gólfs, en
aðrir tróðust hver um annan við
útgangana frá pöllunum og síð-
an fylltist hver krókur og kimi af
banvænum, kæfandi reyk og
hita.
Nú varð það einnig lýðnum
Ijóst úti fyrir húsinu, hvað um
var að vera innan dyra. Tíðind-
in flugu um borgina, og fólk
streymdi að úr öllum áttum,
sumt örvita af skelfingu að eiga
ástvini sína innilokaða í eldhaf-
inu. Og skelfingin var ekki á-
stæðulaus.
Þeir, sem voru í neðri hluta
byggingarinnar, sluppu út, en á
efri pöllunum og þar í göngun-
um var ástandið hræðilegt.
Úti fyrir stóðu þúsundir
manna og störðu á þessa brenn-
andi stórbyggingu. Á öllum svöl-
um utan á húsinu og í öllum
gluggum var fullt af fólki, sem
æpti á hjálp.
Og loksins heyrðist í hornum
brunaliðsins, — hjálpin var kom-
in. En hamingjan góða, — hún
var í hæsta máta ófullkomin og
lítils megnug.
Brunastigarnir reyndust allir
of stuttir, og aðeins eitt stökk-
teppi var handbært. Það kom
hins vegar að dýrmætum not-
um, því að með því einu var
112 manns bjargað.
Nokkrir þorðu ekki að stökkva
úr þessari miklu hæð, en þeim
var fleygt niður.
Allir, sem stukku £ teppið,
héldu lífi, flestir lítið eða ekkert
meiddir. Nokkrir hlutu beinbrot.
En hér var ekki ein báran stök.
Toni gefur fjölbreytileika
Sama stúlkan, Sama permanentið. Ólíkt útlit
NEWÍíí
crom«fj:í
•'Gtitraliájí:
Toni
NEW
HOME PERM
TONI lífgar og gerir hár yðar meðfærilegt. Gerir yður kleift að
leggja og greiða hár yðar hvernig sem þér óskið. Heldur lagningunni.
Sama permanentið heldur hvaða lagningu sem er. Hér eru þrjár
ólíkar hárgreiðslur, sem eru grundvallaðar á einu Toni. En þér
getið greitt yður á tugi mismunandi vegu.
Um Toni—Aðeins Toni hefur tilbúinn bindivökva. Engin
fyrirhöfn. Tilbúið til notkunar í handhægri plastik flösku. Vefjið
aðeins hárið upp á spólurnar og þrýstið bindivökvanum í hvern
lokk. þér munið öðlast fullkomið Toni. Engar krullur. Engir
stífir broddar. Toni gerir hár yðar mjúkt og skínandi. Auðveldar
hárgreiðsluna. Reynið Toni.
Þegar lögregla og brunalið hafði
fullvissað sig um, að neðri hluti
byggingarinnar væri tæmdur, var
litið svo á, að fleiri væru ekki
lengur í þessu brennandi víti.
En þeir, sem sloppið höfðu út,
fullyrtu hins vegar, að fjöldi
fólks væri ennþá innilokaður í
efri göngunum, og það var eng-
an veginn brugðið strax við að
koma því til hjálpar.
Loks þegar ruðzt var inn til
að opna þessa aflæstu biðsali
dauðans, blasti við hryllileg sjón.
f göngum þessum lá fólkið bók-
staflega í stöflum. Björgunarlið
hélt í fyrstu, að fólkið lægi
þarna aðeins meðvitundarlaust,
— en ískaldur veruleikinn sýndi
brátt, að allir voru kafnaðir.
Hér var ekkert að gera ann-
að en flytja líkin á burt. Þau
reyndust hræðilega mörg. Alls
fórust um 500 manns.
Þetta fagra leikhús brann síð-
an til gnmna, án þess að nokkur
mannlegur mátur fengi rönd við
reist, þrátt fyrir 62 vatnsslöng-
ur, sem stöðugt dældu vatni í
eldhafið.
Þessi hryllilegi bruni vakti að
vonum mikla athygli og samúð
víða um lönd, og gjafir streymdu
að úr öllum áttum til þeirra
mörgu barna, sem misst höfðu
foreldra sína.
Svo virðist sem mjög margir
þeirra, er létu lífið, hafi verið
einhleypt fólk, því að enginn
spurði eftir að minnsta kosti 100
líkum, þótt þau væru öll auð-
kennanleg.
Þeir, sem ekki voru jarðsett-
ir á vegum ættingja sinna, voru
allir lagðir í eina og sömu fjölda-
gröfina eftir geysilega fjölmenna
sorgarathöfn í St. Stephans-
kirkjunni. Yfir gröfina var síðan
reist veglegt minnismerki, sem
lengi var blómum skreytt 8 des-
ember ár hvert.
ELDUR OG ÓGNIR í PARÍS
OG CHICAGO
Ekki liðu mörg ár frá brunan-
um mikla í Vínarborg, þar til
svipuðum reiðarslögum laust
VIKAN 15. tbl. gj