Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 2
TOYOTA LANDCRUISER
Sterklegur og hraðskreiður
jeppi — Frábær í ófærð —
Hefur unnið fjölda keppn-
issigra — Á toppinum í
Ameríku undanfarin 5 ár
JAPANSKA BIFREIÐASALAN H.F.
Armúla 7, Reykjavík
I FULLRI HLVÖRU
Leiðingjörn
stjórnmálabarátta
Áður en síðasta þingi lauk,
létu alþingismenn í sér heyra í
útvarpinu; þuldu þar upp mis-
jafnlega vil skrifaðir ræður sín-
ar með þessum sjálfbyrgingslega
og stundum dálítið ergilega
landsföðurtón, sem þeir hafa
komið sér saman um að hljóti að
vera heppilegur fyrir útvarps-
hlustendur. Óhætt mun að stað-
hæfa að sífellt fleiri útvarps-
hlustendur skrúfi alveg fyrir
tæki sín þau kvöld, sem þessar
umræður fara fram. Sumir segja
að almennt áhugaleysi á pólitík
sé fylgifiskur velmegnuar og vel
má vera að eitthvað sé til í því.
Hitt er svo annað mál, að
samband stjórnmálamanna við
kjósendur er löngu steinrunnið og
dautt. Þessar dauðu, skrifuðu
ræður eru löngu úreltar og raun-
ar veit maðiu1 í hverju einstöku
tilfelli svo til nákvæmlega hvern-
ig þær verða, þar sem dagblöð-
in eru venjulega búin að reifa
málin af talsverðri nákvæmni og
hver er sá þingmaður sem dirf-
ist að hafa aðra skoðun en þá,
sem flokksforustan heimtar.
Kannski Björn á Löngumýri, en
er hann ekki líka „Síðasti Móhí-
kaninn" á þingi. Mörgum vlrð-
ist löggjafarsamkoman vera orð-
in einskonar samsafn af þægum
„róbótum" sem hlýða í blindni
hverri bendingu frá innsta kjarna
st j órnmálaf lokkanna.
Það má gera ráð fyrir, að á-
hugi almennings á stjórnmálum
fari að talsverðu leyti eftir því,
hversu stjórnmálamönnum tekst
að viðhalda lifandi sambandi við
fólkið. Búast má við því, að þetta
samband gæti orðið lífrænna eftir
að sjónvarpið er komið. Þá á að
taka þessar umræður upp á fjöl-
mennum fundum, þar sem búast
má við hverju sem er, jafnvel
fúleggjum. Þar eiga menn að
mæta með brjóstvitið eitt og í
mesta lagi nokkra punkta; þar
eiga menn að svara fyrirspurn-
um og verja sinn málstað gagn-
vart hverjum sem er. Þá yrði
líka minni hætta á því að dag-
blöðin héldu við þeim ósóma að
eyða síðum sínum undir ræður
stjórnmálaforingjanna líkt og
þau gera nú. Það er sagt að
stjórnmálabaráttan hafi breytzt
á landi hér að því leyti að hún
sé nú ekki eins persónuleg og
áður var. Það er mikil framför.
En ef einhver vill búast við því,
að almenningur sýni stjórnmál-
um þann áhuga sem æskilegt er,
þá ber að minnast þess, að
skammir af skrifuðum blöðum
heyra fortíðinni til.