Vikan


Vikan - 02.06.1966, Side 20

Vikan - 02.06.1966, Side 20
Einn er sá hópur manna, sem margir óttast, og það eru læknar. Þeir hafa til þess. langa þjálfun og erf- iða menntun að finna hvaðeina, sem mannslíkam- ann hrjáir, og vinna bug á því, standi það i mann- legu valdi. Vopnin, sem þeir beita til þess, eru marg- vísleg: Nálar, skæri, hnífar, speglar, dælur, sprautur, blöðrur, slöngur, bragðvond lyf, bragðgóð lyf, pillur, belg- ir, lífernisfyrirmæli og guð veit hvað. Þar að auki höfum við svo tryggingafyrirkomulag, sem heitir sjúkrasamlag, er gerir hverjum og einum kleift að njóta þekkingar og hæfni læknastéttarinnar. Samt þekki ég sárafáa, sem ekki þrjózkast í lengstu lög við að leita læknis. Sjálfur stenzt ég ekki gagnrýni um það atriði. Fyrir nokkrum árum vann ég með sálfræðingi og grúsk- ara. Afar skemmtilegum og hugmyndaríkum manni. Einn daginn kom hann fram með þá kenningu, að staðreynd væri ekki til. Allt það, sem við köllum staðreynd, væri svo afstætt, að það væri í rauninni ekki staðreynd. Dæmi: Það er staðreynd fyrir þér, að þú ert að lesa þessi orð, en ekki fyrir mér, af því ég hef ekki hugmynd um það. Ergo: Það er ekki staðreynd, heldur eitthvað, sem aðeins þú veizt, og fleiri varðar ekki um. Kannski þessi kenning sé ekki svo vitlaus. Þannig er það með skakkaföll og hörmungar, yfirvof- andi voða og annað slíkt, þetta er ekki staðreynd fyrr en það heggur svo nærri, að mann sjálfan svíði. Hryllilegir glæpir eru framdir um allan heim dag eftir dag, klukkustund eftir klukkustund. Múgæsing og stríðs- brjálæði turnaði svo heilum þjóðum fyrir aðeins rúmum 20 árum, að fátt mannlegt fannst í fari þeirra. Fyrir okk- ur hér uppi á íslandi var staðreyndin helzt sú, að ýmis- konar vöruskortur var ríkjandi og við þurftum að nota skömmtunarseðla og svartan markað. Að öðru leyti var þessi okkur loftkennda staðreynd aðeins til fjárhagslegrar blessunar hér. Svipuð saga er að endurtaka sig austur í Víetnam þessa dagana, en við þekkjum ekki þá staðreynd. Hún er okkur afstæð. Bandaríkjamenn eru farnir að týna kjarnabomb- unum sínum,- sú staðreynd kemur okkur ekki við, af því Jón G. Hallgrimsson, læknir leitar- stöðvarinnar, ásamt Guðrúnu Bjarna- dóttur, rannsóknardömu. — Þau standa við bekkinn, sem iýst er í greininni. Kristjana Guðmundsdóttir, rannsóknar- dama (laborant) í A-deild ieitarstöðvar Krabbameinsfélagsins. /------------------------------------------------1--------------------\ Aldrei hefur læknavísindun- um fleygt eins fram og á okkar öld, en þó er þar enn margt ógert. Ef til vill er krabbameinið sá vágesturinn, sem erfiðast er að tjónka við. Enn sem komið er, mun helsta leiðin til að hefta skað- semi hans, að fyrirbyggja, því oft er ekki hægt að lækna, þegar krabbamein hefur tek- ið sér ból. Hér eru starfandi félög, sem hafa það að mark- miði að reyna eftir megni að draga úr skattinum, sem hann krefst. í þessu skyni rekur Krabbameinsfélagið leitar- stöð í Reykjavík, og í vetur gekkst einn blaðamanna Vik- unnar undir rannsókn þar, bæði til glöggvunar á heilsu- fari sjálfs sín og til að kynna lesendum, hvað leitarstöð Krabbameinsfélagsins raun- verulega gerir. V_____________________________) 2Q VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.