Vikan


Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 37

Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 37
eru orðin yfirgnæfandi á efnis- skránni eru flestir búnir að fá nóg. Auðvitað ber því ekki að neita, að The Hollies gerðu margt gott, til dæmis lögin „A taste of hon- en“, I’m Alive“ og sérstaklega „Look through any window", en sannleikurinn er sá, að áheyr- endur gera miklar kröfur, þegar frægar hljómsveitir ber hér að garði. Er slíkt auðvitað ekki nema eðlilegt, þar sem aðgangs- eyri er yfirleitt ekki stillt í hóf. Mundi það ekki teljast kæru- leysi á hástigi að „spila“ á raf- magnsgítar á hljómleikum, án þess að setja hann nokkurn tíma í samband við magnara? Þetta gerði rhythmagítarleikari The Hollies á miðnæturhljómleikun- um seinna kvöldið. Sviðsframkoma The Hollies var með miklum ágætum, eins og vænta mátti. Það var t.d. at- hyglisvert, hvernig þeir skiptust á um að nota hljóðnemana til þess að skapa líf og fjör á svið- inu. Hins vegar var það í meira lagi vafasamt hjá þeim að vera sí og æ að teigja hendurnar móti hinum ungu áheyrendum. Þetta þjónaði aðeins einum til- gangi: að fá viðstadda til að storma upp að pallinum. Auð- vitað átti The Hollies að vera Ijóst, að slíkt var óheimilt. Þeir, sem á fyrsta bekk sátu, gátu auð- vitað ekki á sér setið og að lokum var svo komið, að laganna verðir fengu ekki við neitt ráðið. Und- ir lokin tókst ungum aðdáendum að stela öðrum gítarleikaranum ofan af sviðinu og hlakkaði þá í lögregluþjónunum, því að það var hann, sem hafði komið öllu handapatinu af stað. Um framkomu áheyrenda er ekki nema gott eitt að segja. The Hollies geta sjálfum sér um kennt, hvernig til tókst í lokin. Kannske hefur þetta líka verið gert af ásettu ráði, því að dag- blöðin hafa yfirleitt verið gin- keypt fyrir hvers konar æsinga- myndum, en slíkar myndir eru bezta auglýsing, sem hugsast get- ur. Aðsókn að þessum hljómleik- um var ekki eins mikil og for- ráðamenn þeirra höfðu gert sér vonir um. Hins vegar var yfir- fullt í Lídó, þegar The Hollies komu þar fram, og það segja okkur þeir, sem til þekkja, að þar hafi verið mest fjörið — fyrir lægsta verðið. Að lokum biðjumst við forláts á því, að dregizt hefur von úr viti að birta þessa umsögn. Réðu þar um ófyrirsjáanlegar ástæð- ur. ☆ Áhættan af krabba- meini vex eftir fertugt Framhald af bls. 23. sóknarstöð, til þess að ná árangri sem treystandi er. Annars er magakrabbameinið þesskonar sjúkdómur, að það er oft afar erfitt að finna það, þótt öllum tiltækum ráðum sé beitt. Sér- staklega meðan það er í byrjun., Og reynslan er sú, alls staðar, að sjúklingarnir koma yfirleitt allt of seint til athugunar. Það er ekki eingöngu læknunum eða tækjun- um sem þeir hafa, að kenna, að sjúklingar koma of seint til að- gerðar, heldur er það vegna þess, að sj úklingarnir finna oft svo seint til einkennanna. Þeir geta hafa gengið með sjúkdóm- inn tímum saman, án þess að verða varir við nokkur óþægindi, sem teljandi eru. Þannig er sjúkdómurinn oft kominn á tals- vert hátt stig, þegar sjúklingur- inn finnur til og fer að kvarta. Hitt er líka alltaf algengt, að sjúklingarnir trassa að leita læknis, þeir þrjózkast við, tím- um saman þrátt fyrir vaxandi sjúkdómseinkenni. Nú hafa Jap- anir fundið upp tæki, sem gæti gert mögulegra að gera hóprann- sóknir á sjúklingum vegna maga- lcrabbameins, og það eru ljós- myndatæki, sem hægt er að renna á grannri slöngu ofan í magann. Þessi tæki eru lítið komin í notk- un ennþá, þau eru til dæmis ekki til nema á einum stað í Englandi, svo ég viti til, en með þeim á að vera hægt að taka raðmynd- ir, seríur, af magaveggnum, og ef menn hafa tæknina á sínu valdi, og kunna notkun þessara nýju tækja til hlýtar, þá á að vera hægt að fá mjög nákvæm- ar myndir af ástandi magans, og jafnvel greina krabbamein fyrr en með röntgenskoðun. Reynist þetta tæki eins og vonir standa til, samkvæmt þeim fregnum sem af því berast, opnar það leið til hóprannsókna, sem ásamt grein- ingum á frumum, sem nást með því að skola magann, gætu gefið þýðingarmikinn árangur án ó- hæfilegs tilkostnaðar. — En nú má krabbinn ekki vera kominn lengra en á byrj- unarstig, ef á að vera hægt að uppræta hann? — Helst ekki þó er það dá- lítið misjafnt, eftir því hvar hann liggur í maganum, og sann- leikurinn er nú sá, að sumir eru komnir með töluvert stórar meinsemdir, þegar þeir eru Hvítara hvítt.. Hreinni litir! Notið Blaa Omo, nyjasta og bezta þvottaduftið næsta þvottadag. Sjaið hvernig Omo freyðir vel og lengi og gerir hvíta þvottinn hvítari og liti mislitu fatanna skærari en nokkru sinni fyr! Reynið Omo. Sjaið með eigin augum hvernig Omo þvær hreinast! VIKAN 22. tbl. oy

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.