Vikan - 02.06.1966, Síða 43
KONGSBERG
úrvals verkfæri!
Umbodsmenn á íslandi
K.Þorsteinsson & Co.umbods-heiidverziun
un og fék hana að lokum hjá lög-
reglunni.
Við fórum flugleiðis frá Peking.
Vinir okkar komu út á flugvöllinn
til að kveðja okkur og voru þar
Rússar og Kínverjar saman í hóp,
sem nú er orðið sjaldgæft að sjá.
Flugferðin til Kanton tók fjórar
klukkustundir og barnið okkar litla
svaf næstum allan þann tíma. Við
höfðum fengið herbergi á ágætu
hóteli í Kanton. Konan mín heilsaði
upp á bróður sinn og hitti einnig
föður sinn af tilviljun, en hann var
þá staddur í Kanton vegna vöru-
sýningar.
Ég var heldur óstyrkur; ég vissi
ekki hvað biði mín hinum megin.
Eftir fimmtán ár að heiman var
þetta eins og að taka undir sig
stökk út í tómið.
Næsta dag ókum við í þrjá tíma
í lest að landamærum hins komm-
úníska Kína og Hongkong. Alla þá
leið sat ég sem steinrunninn og
horfði út um gluggann.
Kínverjarnir buðu upp á kveðju-
máltíð í vegabréfa- og tollskoðun-
arskýlinu. Ég gat ekki komið niður
svo mikið sem einum bita. Þeir fóru
í gegnum farangurinn okkar, en
tóku ekkert nema kort af Peking.
Síðan fylgdu þeir okkur út á brúna,
en um hana miðja liggja landamær-
in. Við tókumst í hendur og ein-
hver þeirra sagði, að ég væri vel-
kominn aftur til Kína hvenær sem
ég vildi.
Við hjónin gengum nú að landa-
mæralínunni, þar sem brezkur eftir-
litsmaður og brezk rauðakrosskona
tóku á móti okkur og fylgdu okkur
áfram. Við brúarsporðinn stóð
bandaríski ræðismaðurinn, Nicholas
Platt, og hann sagði: — Mér er
ánægja að sjá yður hér.
☆
Modesty Blaise
Framhald af bls. 24.
— Nei. Fluga — ótrúlega var um
sig. II est malin.
— Ah ca. En ég er fluga líka,
419
ADVOKAT
VI\l>I.AIt - SflÁVI\m.Alt
Advokat vindlll :Þessi vind-
111 er þægilega oddmjór;
þó hann hafi öll bragðein-
kenni góðs vindils, er hann
ekki of sterkur. Lengd:
112 mm.
Advokat smávindill: Gæð-
in hafa gert Advokat einn
útbreiddasta smávindil
Danmerkur.Lengd: 95 mm.
CBSZÍ
SKANDINAVISK TOBAKSKOMPAGNI
Leverandor til Det kongelige danske Hof
VIKAN 22. tbl.