Vikan


Vikan - 02.06.1966, Qupperneq 47

Vikan - 02.06.1966, Qupperneq 47
Mjóir trjábolir eða bambusstengur bundnar saman með vírþræði og auðvitað festar á þvergrind, mynda hér fallegan skiólvegg og æskilegan bakgrunn fyrir listaverkið — mundi hér ekki skapast nýr markaður fyrir listamenn okkar? VIKAN 22. tbl. £rj Eins og sjá má á teikningunni er þessi skjólveggur í miðjum garði, en ekki upp við húsið. Þarna myndast skemmtilegt og skjólgott horn, sem nýtist enn betur vegna bekkjarins, sem er fallega tengdur veggnum, og ekki síður vegna þessarar skemmtilegu stéttar, sem er steypt i harðviðarramma, en inn í hana er litla gras- flötin lögð öðrum megin, en sandkassinn hinum meg- in, en til hliðar beð með þykkblöðungum. Myndar þetta einkar fallega heild, og sést á þessu, hve mikilvægt er að garðurinn sé vel skipulagður í upphafi. Þar að auki er þægilegt að geta svo bara sópað sandinum aftur nið- ur í kassann að leik barnanna loknum. Það er ekki sama hvernig skjólveggirnir eru gerðir, og verður að hafa verstu vindáttina vel í huga við byggingu þeirra. Hér að ofan er fallegur, ávalur veggur, en hann er gerður úr trjáboröum, sem snúa dálítið á ská, eins og hansagluggatjöld, sem snúa upp og niður í staðinn fyrir þversum, og með því má beina vindinum í hvaða átt, sem vill, um leíð og veggurinn dregur stórlega úr vindhraðanum. Hægt er að láta plankana snúa þversum líka, og beinist þá vindur- inn upp eða niður, eftir þvi sem óskað er eftir. Að neðan sést hvern- ig vindurinn skellur á heila girðingu og þeytist með enn meira ofsa yfir hana. en sé þverborð á ská ofan á henni fer hann sér liægara. Sé girðingin ekki alveg loftheld. dregur hún vel úr roki. því að vind- urinn seitlar í gegnum hana, og sama er að segja um skjólgarð úr þéttum runnum. Hér að neðan eru myndir af fjórum skjólveggjum. sem allir sýna, hvernig draga má úr þyngslalegum áhrifum, sem stórir veggir kynnu að hafa á um- hverfið. Á myndinni hér næst og neðst t.v. er vegg- urinn opnaður til hliðar og að ofan, neðst í miðju eru hvítar sívalar stengur festar innan á vegginn, sem bæði skapa skemmtilega skugga og styðja blóm- in, en lengst t.h. kemur veggurinn svipað og har- monika og verður þannig ólíkt skemmtilegri fyrir augað en ef hann væri heill og beinn, og ljós og skuggar eiga þar frjálsan leik.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.