Vikan


Vikan - 08.09.1966, Síða 5

Vikan - 08.09.1966, Síða 5
lagði andlitið að þykkri öxlinni, til að þurfa ekki að horfa á það, sem fyrir neðan var. Hann beið þolinmóður, þar til hún var hætt að sk.iálfa, notaði síðan tækifærið, Þegar ofurlítil þögn varð milli ljónsöskranna, og hrópaði: — Aftur upp, félagar! Það er tilgangslaust að halda áfram niður. — En hvað um vatnið? stundi Jean-Jean. — Farðu og sæktu Það, ef þú þorir. Þetta kvöld sat Angelique nokkuð frá hópnum, meðan þeir bjuggust um í kringum ofurlitlar glæður, sem var það eina sem þau þorðu að kveikja, svo hægt væri að baka í því villikartöflurnar, sem þau höfðu fundið. Hún hallaði höfði sínu upp að kletti og lét sig dreyma um á- vaxtahlaup, isdrykki og vatn, sem glitraði í skugga pálmatrjáa. — Bað! stundi hún. — Eitthvað að drekka! Eg get ekki haldið áfram. Svo fann hún hönd lagða á höfuð sér, svo stóra að hana gat enginn annar átt en Normanninn. Hún hafði ekki afl til að hreyfa sig, en hann kippti ofurlítið í hár hennar, svo hún lyfti höfðinu og sá leður- flöskuna, sem hann bauð henni, með tæpum bolla af vatni. Hún leit á hann í spurn. — Það er handa þér, sagði hann. — Það hefur verið geymt handa þér. Hver og einn hefur gefið síðustu dreggjarnar af sínum eigin birgð- um. Volgt vatnið var í munni hennar sem ljúfasti drykkur, og henni varð hugsað til þess, að þessir óhefluðu menn höfðu fórnað síðasta vatninu sínu hennar vegna, og tilhugsunin veitti henni hugrekki. — Þakka þér fyrir, sagði hún, — það verður allt betra á morgun. Hún reyndi að brosa með sprungnum vörunum. — Auðvitað! Ef eitthvert okkar getur haldið áfram, verður þú í þeim hópi, sagði hann með slikri sannfæringu að hún trúði honum skilyrðis- laust. — Þessir menn halda, að ég sé sterkari en ég er, hugsaði hún, þegar hún teygði úr sér á steinbeðnum, og leið snöggtum betur. Samt fannst henni hún vera hræðilega alein í örmögnun sinni, ves- öld og ótta, eins og hún væri í djúpri námu, algjörlega einangruð frá heiminum. Það var þannig, sem Dante leið, þegar hann steig niður til heijar? Var Helvíti líkt þessu? Já, þetta var Helvíti, að undanteknum félögum hennar, sem gáfu henni leifarnar af vatninu sinu. Vonlaust! En nú hafði kviknað ofurlítil von. — Áður en langt um líður, sjáum við múra kristinnar borgar bera við stjörnubjartan himinin, og einn góðan veðurdag munum við öll verða frjáls einu sinni enn, og við munum drekka vatn.... Næsta dag fikruðu þau sig niður á sléttuna. Ljónin voru að éta leif- arnar af hesti, og gaf það til kynna, að þau myndu ekki vera langt frá þorpi. Allt i einu heyrðu þau hundgá og sneru aftur i áttina til fjalla, en þegar þau komu auga á brunn, gengu þau aftur að hættu- legu úthverfi þessa byggða héraðs. Sem betur fór var enginn sjáan- legur. 1 flýt' var bundinn kaðall um mitti þess léttasta úr hópnum, Jean-Jean, og hann var látinn síga í brunninn með tvær vatnsflöskur. Þau heyrðu skvampa í vatni, en svo rak hann upp óp og þau kipptu honum upp. Angans strákurinn ældi, eins og hann ætlaði að kasta upp lifur og lungum. Hann hafði fundið skepnuskrokk undir fótum sér, sem lokaði brunninum, en hann hafði ekki getað staðizt það að troða sér framhjá dýrinu til að fá sér að drekka, en vatnið, sem hann hafði sopið á, var svo gegnsýrt af rotnandi holdinu, að hann hélt, að hann myndi deyja á staðnum. Það sem eftir var dagsins þjáðist hann af krampa, og gat varla dregizt áfram. Annar hræðilegur dagur leið, og það var ekki fyrr en um kvöldið, að blessunin birtist í bláum polli í ofurlitlum dal undir skuggum fíkju- trjáa, granattrjáa og döðlupálma. Þau þorðu varla að trúa, að þetta væru ekki hillingar, áður en þau réðust til niðurgöngu. Caloens var fyrstur niður. Hann hljóp yfir hvíta botnmölina og var aðeins nokkur fet frá glitrandi vatninu, en þá stökk ljónynjan framundan trjánum, að gamla manninnum. Colin flýtti sér á staðinn og lamdi villidýrið með kylfunni, bæði í höfuðið og bakið. Ljónynjan valt um hrygg með ofsa- legu sársaukasprikli. Þegar de Kermoeur markgreifi hrópaði, lá við að hróp hans drukkn- aði í hræðilegu ljónsöskri: — Varaðu þig, Colin! Með brugðnu sverði kastaði hann sér milli Normannans og ljóns með brúnan makka, sem kom aftan að honum um leið og það stökk fram úr runnunum. Sverð hans nísti dýrið í hjartastað, en áður en það féll, náði það að rífa Bretonann á kvið með klónum. Þessi fagra vin hafði á fáeinum andartökum breyzt í blóðvöll, þar sem rauður lífs- vökvi manna og villidýra blandaðist i straum, sem litaði tært vatnið. Colin Paturel stóð með kylfuna í höndunum og beið eftir fleiri villi- dýrsheimsóknum, en grafarþögn hafði nú færzt yfir staðinn. Flótta- íólkið hafði truflað ljónapar á ástarfundi. — Varðmenn í allar áttir með brugðnar lensur! Svo beygði Colin Paturel sig yfir de Kermoeur markgreifa. — Félagi, Þú bjargaðir lífi mínu! Augu markgreifans voru þegar orðin mött. — Já, hágöfgi, sagði hann. — Það skyggði fyrir augu hans, er gamlar minningar birtust honum. — Hágöfgi.... í Versölum.... Versölum.... og með nafn þessa fjar- læga, ljómandi staðar á vörum, tók hann síðustu andvörpin. Caloens var enn lifandi, en holdið á öxl hans var rifið frá beini. — Vatn, stundi hann. — Vatn! Colin dýfði vatnsflöskunni í vatnið, sem þau höfðu unnið svo dýru verði, og bar að vörum hans. Slíkt var vald hans yfir félögunum, að þrátt fyrir kvalir þorstans hafði engum dottið í hug að nálgast vatns- bólið, heldur stóðu allir hjá í ógnþrunginni skelfingu. — Hypjið ykkur og fáið ykkur að drekka, fíflin ykkar! hrópaði hann. Þetta var i annað skipti, sem hann varð að loka augum andvana félaga síns, eins af félögunum, sem hann hafði svarið að leiða til frels- isins, og hann gerði sér ljósa grein fyrir, að áður en langt um liði, yrði hann að veita einum enn sömu þjónustu. Þau uppgötvuðu ljónagrenið undir vínviðarþaki, og þangað hafði verið dreginn hálfétinn gaselluskrokkur. Þau báru særða manninn þangað og lögðu hann á flet úr þurru grasi. Colin hellti síðustu kon- íaksdreggjunum á sár hans og batt um eftir beztu getu. Hvað, sem gerðist, yrði hann að bíða og sjá, hvernig gamli maðurinn hefðist við; hann var hraustur og sterkbyggður og ef til vill myndi hann ná sér, en hve löngum tíma gætu þau eytt á þessum stað, þar sem ferskt vatn- ið myndi laða til sín bæði villidýr og menn? Foringinn taldi á fingrum sér fjölda þeirra daga, sem enn myndu líða, áður en þau gætu vonast til að ná til Cebon. Jafnvel þótt þau legðu af stað þetta kvöld, væru þau orðin tveim dögum of sein, og það var gersamlega útilokað fyrir þau, með Caloens svo illa útleikinn. Colin ákvað að eyða nóttinni þarna. Þau myndu verða að jarða de Kermoeur markgreifa og velta þvi fyrir sér, hvað þau ættu að gera næst. Þau þörfnuðust öll hvíldar, og næsta dag gætu þau tekið ákvörðun. Þegar nóttin féll á renndi Angelique sér út úr ljónagreininu. Hvorki óttinn við villidýr né sorgin yfir sjúklegum andardrætti gamla mannsins gat bælt niður þrá hennar til að kasta sér í vatnið. Flóttamennirnir höfðu einn eftir annan látið eftir sér að fara I bað, en allan þann tima hafði hún setið við beð særða mannsins. Caloens kallaði til hennar hvað eftir annað, með skipunarröddu þess manns, sem hallar sér að konu í þjáningum sinum og leitar eftir móð- urlegri hlýju, sem skilur og hlustar á kvartanir með samúð. — Haltu í hendina á mér. Ekki fara og skilja mig eftir, litla stúlka. — Ég er hérna, gamli maður. — Gefðu mér svolítið meira af þessu góða vatni. Hún baðaði andlit hans og reyndi að láta fara eins vel um hann og mögulegt var, en með hverri mínútunni, sem leið, þjáðist hann meira. Colin Paturel dreifði síðustu hveitikökunum. Það eina, sem Þau áttu nú eftir af nestinu, voru baunir, en foringinn bannaði þeim að kveikja eld. Nú íikraði Angelique sig i gegnum verndandi myrkrið, þvi tunglið hafði ekki enn risið yfir trén, þótt það baðaði toppa þeirra í silfur- ijóma. Frammi fyrir henni var lindin eins og spegill, flöturinn renni- sléttur, nema þar sem rann ofan í hann úr uppsprettunni. Ekkert rauf þögnina nema örlítið froskkvak við og við. Hún fór úr rykstokknum og svitarökum fötunum og andvarpaði af feginleik, um leið og hún renndi sér ofan í svalan pollinn. Aldrei hafði hún fundið til svo fullkominnar velliðunar. Þegar hún hafði þvegið sér, skolaði hún úr fötunum, nema skikkjunni, sem hún vafði um sig til að verða ekki kalt í næturandvaranum, meðan hann þurrkaði hina tötrana. Meðan hún beið eftir þvi, þvoði hún sandinn úr hári sínu og fann það verða mjúkt á ný. Tunglið kom yfir hæðina og ljómaði upp silfurstrauminn, þar sem hann rann niður svartan klettinn frá uppsprettunni fyrir ofan. Ange- lique varpaði skikkjunni, settist á stein undir fossinum og lét ískalt vatnið streyma yfir sig. Vatnið var svo sannarlega það dásamlegasta af öllum gjöfum guðs! Hún minntist vatnssalanna í Paris, sem hrópuðu: — Hver vill kaupa gott, hreint vatn? Hún lyfti höfðinu og horfði bliðum augum á stjörnurnar, sem glitr- uðu niður til hennar gegnum pálmaþakið. Vatnið hríslaðist yfir nak- inn líkama hennar og í tunglsskininu sá hún spegilmynd sina í tjörninni glitra eins og marmara i dökkum vatnsfletinum. — Ég er lifandi, muldraði hún. — Lifand'i! Þessi ljúfa stund strauk út minninguna um það, sem hún hafði orðið að þola, og hún var kyrr undir fossinum, þar til brakaði í þurrum lág- gróðrinum, svo hún kipptist við. Þá sneri óttinn til hennar aftur. Hún minntist villidýranna, sem iágu i leyni, og Máranna, sem voru svo hættulegir. Þessi friðsami staður varð aftur sami hræðilegi orrustuvöllurinn. Hún renndi sér niður í vatnið til að komast yfir tjörnina og var þess fullviss, að eitthvað fylgdist með henni innan úr þykkninu. Að lifa eins og ofsótt dýr hafði þjálfað skilningarvit hennar, og hún fann hættuna i fjarska. Hún sveiflaði um sig skikkjunni og tók til fótanna, berfætt, yfir vínviðar- flækjurnar og hvassa kaktusa .Hún rakst á einhverja veru og gaf frá sér lágt hróp, um leið og hún reyndi að snúa við, frá sér af ótta. Svo þekkti hún i geislum tunglsljóssins ljóst skegg Colins Paturels, og það glampaði á augu hans djúpt inni í andlitinu. — Ertu vitlaus? spurði hann lágt. — Varstu að baða þig ein? Veiztu ekki, að ljónin koma til að drekka hér, og hlébarðarnir líka, svo ekki sé minnzt á flækings Mára? Angelique langaði til að þrýsta sér að honum, til að vinna bug á óttanum, sem var þeim mun meiri, sem hún hafði notið friðsældarinnar áður. Hún myndi aldrei gleyma þessari næstum yfirnáttúrulegu sælu undir íossinum í litlu vininni. Svo sannarlega hlaut Paradís að vera þessu lík. En nú var hún aftur í heimi manna og vesældar, þar sem hún varð að berjast fyrir lifinu. — Márar? sagði hún skjálfrödduð. — Ég held að þeir séu hérna. Það var eitthvað að horfa á mig rétt áðan. Það er ég viss um. — Það var ég. Ég lagði af stað að leita að þér, þegar mér fannst þú hafa verið óeðlilega lengi. Nú, komdu með mér, en gerðu ekkert Framhald á bls. 48. VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.