Vikan


Vikan - 08.09.1966, Page 8

Vikan - 08.09.1966, Page 8
 2 *"tip f . Bílaprófun Vikunnar Buick skylark Nú eru fáanlegar sportútgáfur af öllum meiri háttar bílum amerískum, það er að segja: Nærri venjulegar gerðir með ör- lítið breyttu og sportlegu útliti, oftast aðskildum stólum að fram- an og auknu vélarafli. Þesskonar bílar eru nefndir „Sport sedans“ en eiga raunar lítið sameigin- legt með sportbílum nema nafn- ið eitt. Hinsvegar eru þessar sportútgáfur að jafnaði betur búnar og skemmtilegri en hinir venjulegu. Að þessu sinni höfum við prófað þesskonar sportút- gáfu af Buick nánar til tekið Buick Skylark. Hjá General Motors gengur Buick næst Cad- illac að virðingu og verði, enda hefur hann alltaf verið talinn vandaður bíll og hefur jafnan reynzt prýðilega hér á fslandi eftir því sem bezt er vitað. En Buick er bara Buick og enginn jeppi eða torfærubíll. Það er að segja; fínn og fágaður bíll með þá notkun eina fyrir augum að honum sé ekið eftir sléttum strætum og steyptum eða mal- bikuðum vegum. Amerískt bíla- blað skilgreindi nýlega, hvernig bíll eins og Buick er upphugs- aður. Fyrst er gerð markaðsrann- sókn á því, hverskonar menn það eru sem kaupa Buick. Hversu gamlir eru þeir, hve hratt aka þeir, á hvernig vegum aka þeir, og hvernig vilja svoleiðis menn hafa bílinn sinn. Það kom í ljós eins og við mátti búast, að Buick er bíll miðaldra kynslóðar, for- stjórabíll, betriborgarabíll, og efnamannabíll. Til þess að komast sem næst óskum þessa hóps var rafeindaheili látinn finna svarið og árangurinn er Buick eins og hann er í dag með smávægileg- um frávikum hvað mismunandi gerðir snertir. En vegna þess að bíllinn er fyrst og fremst hugs- aður fyrir þennan hóp, þá er hann enginn hasarbíll, aldrei til þess ætlazt að hann komi á mal- arveg með þvottabretti og hvörf- um. Mér finnst Buick Skylark með fallegustu bílum amerískum; framendinn er kröftugur og á- kveðinn og gefur ósjálfrátt hug- mynd um afl og skaphita. Að aftan hefur bíllinn lítilsháttar kókflöskuútslátt eins og aðrir GM-bílar og þaklínan er dregin aftur á við með þokkafullum boga og falla þessar línur sam- an með því samræmi sem unun er á að horfa. Buick Skylark er annars af svokallaðri millistærð, liðlega fimm metra langur og breiddin 1,92. Beygjuradíusinn er 12,6 metrar og undir lægsta punkti er 13,5 sentimetrar. Því er ljóst að ekki þýðir að fara með þennan farkost þar sem háir malarhryggir með grjóthnull- ungum eru á vegum, eins og Vegagerðinni þykir nú sjálfsagt að hafa á velflestum nýjum veg- um. Miðað við að þetta er sport- útgáfa með 8 strokka vél, rúm- lega 200 hestafla, finnst mér bíllinn þó ekki skapstór að ráði og má segja að þessi hrossahóp- ur sé lögulega taminn. Viðbragð- ið er öllu mildara en ætla mætti og enginn ofsi á ferðinni en að aka þessum bíl er svo auð- velt, að maður hefur það á til- finningunni, að 10 ára gamall strákur gæti það leikandi, ef hann aðeins kynni það. Bíllinn er með efldu stýri og bremsum, og sjálfvirkum búnaði fyrir rúðuupphalara og læstu mis- munadrifi. Vélin er nálega hljóð- laus og allur er bíllinn með þeirri hljóðlátu mýkt, að undravert er. Átökin í viðbragðinu eru öll upp- á mýktina, sömuleiðis bremsurn- ar, nema hvað þær læsa hjól- unum óþarflega fljótt. En það eru hörku bremsur eigi að síður. Á 80 kílómetra hraða er gersam- lega fyrirhafnarlaust að aka þessum bíl en þegar kemur yfir 100, krefst hann þess að hafa malbik undir hjólunum fremur en möl. Aðeins eitt þótti mér slæmt: Stýrið er ónákvæmt og bíllinn á það til að rása að fram- an. Þegar komið er yfir 80 kíló- metra hraða fer hann að verða undarlega laus við veginn að framan og líkast því að fram- hjólin væru hætt að hafa snert- ingu. Það er afskaplega leiðin- leg tilfinning. Bíll með góða akst- urseiginleika á ævinlega að vera eins og límdur við veginn en aksturseiginleikar eru þrátt fyrir allt ekki hin sterka hlið þessa bíls. Og í beygjum er hann lítið meira en í meðallagi. Aftur á móti er hrein unun að aka hon- um í umferðinni innanbæjar, vegna þess hve auðveldur hann er á allan hátt, hljóður og hlýð- inn. Ég fór lítillega með hann á holóttan og vondan veg og varð þeirri stund fegnastur, þeg- ar ég komst þaðan. Það er auð- séð hvaða bendingar rafeinda- heilinn hefur gefið þeim um akst- ursvenjur forstjóranna. Sætin eru fremur góð; að vísu var heill Framhald ó bls. 44. Setan er heil að framan en bökin aðskilin og falleg þar sem bíllinn er tveggja dyra. Plastið á sætunum er heldur hvimleitt og veldur því að bílstjóri og far- þegar svitna óþarflega mikið. 8 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.