Vikan


Vikan - 08.09.1966, Síða 18

Vikan - 08.09.1966, Síða 18
Eg mun hverfa aftur heim til föðurlands míns, þegar minn tími kemur, ekki auðmýkt og niðurlægð, heldur sigri hrósandi. Sófinn. sem hún situr í, er svo ofurstór á hæð lengd og breidd og þykkt að þessi lága, grannvaxna kona sýnist eins og kræki- ber í ámu, og svo fíngerð er hún, að minnsti vindgustur virðist munu geta feykt henni, hún sýnist ekki þola snertingu fremur en fiðrildisvængur, og réttast virðist vera að hengja á hana spjald með áletruninni: „Varlega! Brothætt!" Fyrir nokkrum árum mátti 'varia opna svo blað hvar sem var á hnettinum að ekki væri þar mynd af henni og grein um hana. Hún var kölluð Drakiadyn og sögð vera Kleópatra Saigons. Hún var hötuð því nær meira en dæmi eru til, en sumir dáðust að henni og væntu sér af henni stórra hluta. Life lýsti henni svo: „Hin uppreisnargjarnasta, voldugasta, hataðasta, lymskasta, einstrengingslegasta, og hættulegasta af fögrum konum fyrir austan Suez.“ Hún heitir frú Nhu. í rúmlega tíu ár hafði hún tögl og hagldir í verzlunarmálaþróun þeirri, sem leiddi til styrjaldarinnar í Suður-Vietnam. Mágur hennar, Diem, var forseti landsins, maður hennar, herra Ngo, var hafður í öllum ráðum með forsetanum. En sjálf hafði hún í rauninni í hendi sér hvað sem hún vildi. Bandaríkjamenn neyddu hana til að flýja land að lokum, og fyrir bragðið slapp hún við líflát, þegar uppreisn sú var gerð, sem kostaði þá báða lífið, mann hennar og mág. Nú dvelst hún ýmist í París eða London, og er nú sem stendur að skrifa æviminn- ingar sínar, og hyggst munu vega með þeim orðum, sem í bókinni standa, óvini sína og andstæðinga í Saigon, Hanoi og Washington. Ég náði tali af henni í húsi hennar í einu úthverfi Rómar. Hvernig virðist þessi kona, sem lét hafa eftir sér viðvíkjandi píslarvættisdauða búddatrúarmanna í landi hennar, þessi orð: — Nú, jæja. Eru þeir að halda á sér steikarsýningu. Og það í inn- fluttu bensíni! VÍRAVIRKI OG TUNGLSLJÓS Hún er afar fríð, svo lítil sem hún er, og hún veit af því, og kann að notfæra sér það. Allt látæði hennar er látbragðsleikur: hún hlær — þegir — lætur augun leiftra og ljóma. En þó frúin sé fögur, er hún ekki aðlaðandi. Hún andar kulda og hörku. Hún sýnist viðkvæm en er það ekki. Hún er sterk, seig og hörð. Margir hafa álitið hana friðarspilli. Sjálf svarar hún því svo: — Ég? Friðarspillir? Hvaða friði hef ég svo sem spillt? Ég er upp með mér af því að teljast vera hættuleg óvinum mínum — ekki sízt vegna þess að hinn eini styrkur sem mér er gefinn, er sá, að vilja ekki gangast illum öflum á hönd. — Yður hefur verið legið á hálsi fyrir orðbragð yðar, „steikarsýn- ingar“ og því um líkt. Sjáið þér eftir því? — Hversvegna ætti ég að iðrast þess sem ég hef vel gert? svarar frúin með hlátri. Hver maður sem lætur þessi sjálfsmorð hafa nokkur áhrif á sig, er meðsekur þeim glæpsamlegu öflum, sem skirrast ekki við að æsa brjálaða menn upp til þvílíkra hermdarverka gagnvart sjálfum sér. Þetta er ekki til annars en að þóknast vitfirringunni, og fávitahætti. HÚN LÍKIR SÉR VIÐ JESÚM KRIST Frúin hefur einstakt lag á að láta í ljós fyrirlitningu. Hún blæs henni út um nasirnar ásamt því hatri og andstyggð, sem innifyrir er. Ég segi: — Yður hefur oft verið láð það hve byltingargjörn þér eruð. Ky forsætisráðherra á dáfagra konu og heimafyrir lifa þau vestrænu hvíldarlífi. Ofstækisfull og hjartalaus en gullfalleg og kvenleg: Frú Nhu, Yfir á Formósu sitja þau Chiang Kai Shek og kona hans og taka nú að gerast öldruð. Uppálialdseiginkona Súkarnos, Sari Dewi, eins og mynd úr 1001 nótt.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.