Vikan


Vikan - 15.12.1966, Síða 5

Vikan - 15.12.1966, Síða 5
„RUN“ Ný hljómplata með SANDIE SHAW Þá hefur Sandie Shaw sent frá sér eitt lagið enn, sem að öllum líkindum á eftir að verða mjög vinsaelt. Lagið heitir „Run“ og er eftir Chris Andrews, þann ágæta lagasmið, sem samið hef- ur flest vinsælustu lögin, sem Sandie hefur sungið. Sandie þykir hafa breytzt tölu- vert frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir tveimur ár- um. Þegar fyrsta lagið hennar, „There is always something there FIMM SYSTUR Megum við kynna The Stones Sisters frá London. Myndin, sem er sú fyrsta og eina, sem tekin hefur verið af þeim, var tekin í New York, þegar dömurnar voru þar ! heim- sókn ekki alls fyrir löngu. Lengst til vinstri stendur Syl- via Jones, þá kemur Molly Ric- hards, Sarah Jagger og Milli- cent Watts en í hjólastólnum situr fröken Penelope Wyman. Þessi friði hópur vakti sem vænta mátti feiknalega athygli —Sylvia Jones þó mesta, og var henni líkt við Marilyn Monroe. Um sama leyti og dömurnar voru í Bandaríkjunum, voru The Roll- ing Stones staddi þar — en mikil vinátta er ríkjandi með þeim systrum og Rollingunum. Merki- legt nokk sáust þau aldrei sam- an, og þó er það kannski ekki svo skrýtið, því að Rollingarnir voru uppteknir alla daga — lengst af voru þeir við plötu- upptökur og léku meðal annars á plötu nýjasta lagið sitt, ,,Have You Seen Your Mother Baby, Standing in The Shadow?" to remind me“ komst í efsta sæti vinsælddiilistans, þá vildi hún ráða öllu sjálf. Hún neitaði að koma fram öðruvísi en berfætt _ og umboðsmenn hennar áttu í erfiðleikum með að tjónka við hana, því að hún var alltaf að finna upp á einhverju, sem þeim féll ekki allskostar í geð. Þá var hún 18 ára, reglulegur stelpu- gosi og sá framtíðina sveipaða ævintýralegum ljóma. Nú er hún orðin ögn fullorðins- legri, eins og myndin hér ber með sér. Söngstíll hennar hefur líka breytzt, eins og heyra má á nýjasta laginu hennar. Henni hefur verið boðið kvikmynda- hlutverk, sem hún segist muni taka með einu skilyrði — að hún þurfi ekki að syngja í myndinni. THE TROGGS Óhætt er að segja, að The Troggs sé sú hljómsveit, sem mesta athygli hefur vakið í Bretlandi og víðar undanfarna mánuði. The Troggs, slógu í gegn með laginu „Wild Thing" og síðan „With a girl like you". Nyjasta lag- ið þeirra, „I can't control myself" virðist ætla að dafna álíka vel á vinsældalistunum. Þeir eru fjórir saman. Einn þeirra heitir Presley — annar heitir Bond. Auðvitað ekki hinir einu og sönnu Presley og Bond, því að umboðs- manninum, Larry Page, datt það „snjallræði" í hug að skíra tvo síðastkomnu hliómsveitarlimina þessum nöfnum. Þegar Reg Ball og Ronald James Bullis komu um borð urðu þeir að láta sér lynda að heita Reg Presley og James Bond. Hinir Troggararnir tveir, Pete Stap- les og Chris Britton hafa hins vegar fengið að halda sinum nöfn- um. Pete og Chris léku upphaflega með hljómsveit, sem hét The Trog- lodytes. Fyrir um það bil sjö mán- uðum komu Reg og Ronnie til sög- unnar og þá var hljómsveitin skirð The Troggs. Troggs er í rauninni stytting á orðinu Troglodytes, en það orð er haft yfir fólk, sem býr frumstæðu lifi í hellum. Burtseð frá miklum hæfileikum og sláandi nafni hafa Troggs mikinn kost, sem hefur tvimælalaust hjálpað þeim á velgengisbrautinni. Það er hógværð. Þeir láta aldrei 1 jótt orð falla um kollega þeirra og þeir láta al- drei hafa eftir sér álit á heims- vandamálunum, eins og sumum „stiörnunum" er títt. — Við erum komnir til að leika músik — ekki til að gefa yfirlýsing- ar, segia þeir. Og þessi stefna þeirra hefur fallið mörgum vel í geð. Þegar Sandie Shaw kvartaði yfir þvi, að hún væri orðin of horuð og of mikil himnalengia til að geta kallazt aðlaðandi, lýsti Reg því yfir, að draumadísir hans væru há- vaxnar og grannholda — og með það tók ungfrúin gleði sína á ný. Þegaf þetta er skrifað hafa The Troggs leikið inn á eina hæggenga hliómplötu, en önnur er í undir- búningi. Á fyrstu plötunni eru mörg skemmtileg og lifleg lög eftir þá sjálfa eða réttara sagt Reg Presley — en hann hefur einmitt samið vinsælustu lögin þeirra. 50. tbl. yiKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.