Vikan - 15.12.1966, Blaðsíða 27
HvKv?sn,(i,|^onica
nu sigurfor
um landið?
EEmatic
VS '
Vegnaþessað IConÍca
býður alla kosti vandaðra
myndavéla fyrir ótrúlega
gott verð
GEVAFÓTÓ
Austurstræti 6 22955
SKODIÐ STRAX
Konica
EEmatic
Jacobusi Spijker skeyti og bað
um eitt og annað, sem hann til-
tók af varahlutum — ásamt
manni, sem gæti sett þá rétt í bíl-
inn á rétta staði! Og fullur bjart-
sýni á málalok umleitunar sinn-
ar við bílakónginn gaf hann sig
hátíðahöldunum á vald ....
Kampavínið var gott í Irkutsk.
Framhald í næsta blaði.
Bílaprófun...
Framhald af bls. 9.
mælar og ljós, en hægt er að fá
Saabinn vel mælum búinn frá
verksmiðju gegn aukagjaldi, og
það er meira en flestir aðrir
bjóða upp á. Sömuleiðis er hægt
að fá stýrishjól úr járni með
tréhring utan um, eins og þeir
kváðu vilja hafa þau í rallíum
erlendis, það þykir sumum fall-
egra en mér ekki. Nokkur á-
galli þykir mér, hve djúpt mað-
ur situr í SAAB, en það er í
sjálfu sér atriði, sem vaninn
eyðir fljótlega, og sama er að
segja um það, að bæði stýrið og
fótstigin eru nokkuð skakkt fyr-
ir, svo í rauninni situr maður
ekki beint fyrir ökustefnunni.
— Hins vegar er all vel hátt
undir loft bæði aftur í og fram í,
þrátt fyrir egglagið, og kemur
það sem plús móti þeim mínus
að sitja lágt.
Hanzkahólfið er í minna lagi
en skottið heil hít og opnast vel;
svo er hægt að fella niður aftur
sætisbakið ef menn þurfa til
dæmis að flytja með sér spýtur
eins og kemur fyrir íslendinga.
Galli er hins vegar, að varadekk-
ið er undir gólfi farangurs-
geymslunnar, svo hana verður að
tæma, ef springur.
Miðstöðin er góð, og til kosta
má telja að hún gefur einnig
blástur á fremri hliðarrúður.
Gírskipting er á stýri, létt og
lipur, þótt ef til vill mætti gír-
stöngin vera vitundarögn lengri.
Gírarnir eru fjórir, alsamstilltir.
Þar við bætist, að SAAB býður
upp á fríhjólun, sem vinnur
þannig að bíllinn heldur ekki við,
t. d. niður brekkur. Þetta kemur
til góða fyrir bensínreikninginn,
en hætt er við, að bremsuvið-
haldið svari þar nokkuð á móti.
En hjá þeim, sem kunna að nota
fríhjólunina réttilega, hafa hana
á aðeins þegar við á, getur þetta
verið bæði sparnaður og þæg-
indi. Fyrir þá sem þurfa mikið
að flýta sér, getur vel munað um
að þurfa ekki að kúpla til að
sekúndubrotið sem sparast við
skipta niður og fá meiri orku,
en slíkar æfingar gerir fríhjól-
unin kleifar.'
Bremsurnar á Saab eru sagð-
ar góðar, en eru að okkar dómi
full þungar. Að framan eru disk-
ar, en venjulegar skálar að aft-
an. SAAB hefur frá upphafi ver-
ið með tvöfalt bremsukerfi,
þannig að þótt eitt rör springi
til dæmis, eru bremsur á tveim-
ur hjólum, og það er mikill kost-
ur. Bremsukerfið er í kross,
þannig að hægra framhjól og
vinstra afturhjól eru á sama
kerfi og öfugt. Flestir aðrir bílar
með tvöfalt bremsukerfi hafa
framhjólin saman og afturhjólin
saman; ég hef tilhneigingu til
að halda, að það væri öruggara,
því þegar bremsað er á mikilli
ferð, leggst allur þinginn yfir á
framhjólin, þannig að bremsu
„effekt“ frá afturhjólum verður
til þess að gera mun minna. Við
það hlýtur bíll, sem t.d. bremsar
á hægra framhjóli og vinstra
afturhjóli að snarast yfir til
hægri, þar sem þunginn hvílir
aðallega að framan. En hvað um
það, betri eru vondar bremsur
en engar, tvöfaldakerfið hlýtur
alltaf að vera til bóta.
Að utan er SAAB misfallegur.
Sumum þykir hann ljótur, öðr-
um fallegur, en flestir munu því
§ammála, að hann er mun fall-
egri aftan til en framan. Grilhð
hefur alla tíð verið eitthvað
klaufalegt á honum; því var
breytt þegar árgerð ’65 leit
dagsins ljós, en stór spurning,
hvort breytingin var til nokk-
urra bóta. Hitt er svo annað mál,
að egglagið gerir mjög litla
loftmótstöðu og kemur þannig
út með hagstæðari bensínreikn-
ing og minna orkutap.
Kostir SAABsins eru að mín-
um dómi þessir: Hann er mjög
traustbyggður og hlýtur að vera
hagkvæmur í rekstri. Galla tel
ég hins vegar að hann skuli ekki
vera frískari — og á ég þar við
þann mótor sem er örugglega
hagkvæmari í rekstri, tvígengis-
mótorinn, að bremsurnar skuli
ekki vera léttari, að stöðugleiki
hans í beygjum skuli ekki vera
sá sem státað er af, að framrúð-
an skuli vera svona mikil bora,
að sætin skuli ekki vera betri.
Ef ég ætlaði einungis að kaupa
mér skemmtilegan bíl til að selja
aftur eftir eitt eða tvö ár, myndi
ég ekki fá mér SAAB. En ef ég
ætlaði að fá mér öruggt verk-
færi, sem entist von úr viti og
væri líklegt til að vernda mig í
árekstrum og slíkum skakkaföll-
um, myndi ég hugsa mig um oft-
ar en tvisvar, áður en ég gengi
fram hjá egginu góða — SAAB.
-S
Dey ríkur...
Framhald af bls. 25.
— Þú hefðir getað varað mig
við Andrews líka, sagði Craig. —
Bara til að sýnast. Hver kom hon-
um annars í okkar þiónustu?
— M.1.5, nóungi í Aden fann
hann. Brezkur þegn í kröggum
staddur og allt það. Hann lét okkur
hafa smávægilegar upplýsingar —
smávægilegar, en þær gáfu góð
fyrirheit.
— Hvaðan? spurði Grierson.
— Rússlandi, sagði Loomis.
— Hann komst á skip í Odessa
1962. Fór með það til Kína til að
brjóta það niður. Hann hafði aug-
un og eyrun opin. Upplýsingarnar
50. tbi. VIKAN 27