Vikan - 15.12.1966, Blaðsíða 22
JT^ J(r ;
' ' A
J
JH
:
Á myndinni er Gina Lollobrig-
ida að dansa viS manninn sinn,
Iækninn Milko Skofic og þarna
sýnist allt í lukkunnar velstandi
en eftir 17 ára hjónaband kom
þeim saman um að hætta að
binda saman föggur sínar og
hafa nú skilið eftir því sem fregn-
ir herma. Þau skildu með mik-
illi vinsemd segja ítölsku blöð-
in, hún 38 ára og hann 45.
Eitursmygl i Egyptó
Nýlega handsamaði egypzka lög-
reglan þessa skuggalegu náunga,
sem sjást hér á myndinni, og
voru þeir þá að reyna að smygla
inn í landið miklum birgðum af
hassís, en sú tegund eiturlyfs er
mikið notuð í Austurlöndum
nær. Er herfang lögreglunnar
ljósmyndað hér ásamt dólgunum.
Egypzkir smyglarar ráða yfir
margskonar tækni, eldri og yngri,
meðal annars láta þeir stundum
úlfalda gleypa pakka með eitur-
lyfjum og slátra þeim svo, þeg-
ar komið er á áfangastað.
Hversvegna ferðast menn?
Ferðalög eru sífellt að aukast.
Ekki bara á íslandi heldur og í
flestum öðrum löndum virðist
þróunin vera sú, að allur almenn-
ingur ferðast meira og meira. Al-
þjóðasamband ferðaskrifstofa,
22 VIKAN 50-tbl-
sem aðsetur hefur í Genf, hefur
komizt að raun um, að í ár nemi
tala ferðamanna í heiminum 115
milljónum. Þessi tala hefur auk-
izt gífurlega á fáum árum og
nær einungis yfir þá, sem fara í
Frönsk Frá París höfum við frétt,
lengra eða skemmra ferðalag út
úr föðurlandi sínu. Árið 1963 nam
þessi tala 86 milljónum, í fyrra
100 milljónum og nú í ár er á-
ætlað að aukningin verði 15%.
Aðrar eins tilfærslur á fólki hafa
aldrei orðið í sögu mannkýnsins
á einu ári.
Þessi fyrrgreinda stofnun í
Genf reynir að komast að því,
hvað af þessu séu skemmtiferð-
ir einungis og hvað af þessu séu
verzlunarferðir eða ferðir farnar
í einhverjum öðrum erindum en
til skemmtunar. Það virðist þó
erfitt að finna nákvæma skipt-
ingu þarna á milli. Eða hvernig
á það að bókfærast þegar herra
Svenson eða jherra Smith eða
herra Jón Jónsson frá íslandi
fara í kaupstefnur og hafa einka-
ritarann með sér. í þeirra bók-
færslu heitir það verzlunar eða
bissnisferð en ferðin getur eins
snúizt upp í það að verða aðal-
lega skemmtiferð og það er alls
ekki víst að nein viðskipti verði
gerð. Annars skiptir það ekki
máli; meginatriðið er, að þessi
sífellt auknu ferðalög skapa
grundvöll fyrir nýjum bættum
flugsamgöngum og eru í mörg-
um löndum þýðingarmikil tekju-
lind. Áætlað er, að í fyrra hafi
túristar eytt sem svarar 550
milljörðum króna.
Evrópubúar ferðast mest til út-
landa af öllum þjóðum. Það er
nú orðið svo ódýrt að fara með
ferðaskrifstofum frá Norður-
löndum til Mallorka eða Spánar,
að það er í hvers manns getu og
fólk flykkist þangað umvörpum.
Eins og sakir standa laðar ítalía
að sér flesta ferðamenn, en í öðru
sæti er Spánn. Þriðjungur af öllu
ferðafólki frá meginlandi Evrópu
notar eigin bíl til utanlandsferða-
laga og langmestur hluti þess
fólks eru Þjóðverjar.
sér lærin svo og svo hátt upp,
heldur verði að draga athygl-
ina að þeim með allrahanda
skreytingum, keðjum og bind-
um, svo sem sýnt er hér á
myndunum. Það fylgir með
sögunni, að þessi nýbreytni
geri þeim stúlkum, sem hafa
verið svo ólánssamar að fæð-
ast með lærum og hnjám, sem
ekki eru eftir aldarinnar
smekk, fært að tolla í stutt-
pilsatízkunni.
Á blaðamanna-
fundi með
BÍTLUNUM
ggjft laðainannafundir með
Bítlunum þykja jafnan
með hinum skemmtilegustu
viðburðum, enda eru Bítlarn-
ir annálaðir fyrir sín snöggu
og oft og tíðum launfyndnu
tilsvör. Tökum sem dæmi
blaðamannafund, sem haldinn
var í Glasgow nýlega, en þar
ætlaði fyrrverandi fegurðar-
gyðja, Chaterine Spencer, að
spyrja Bítlana spjörunum úr.
Fundurinn æxlaðist á þann
veg, að Chaterine fékk aldrei
að komast að vegna málæð-
is í Bítlunum. Meðal annars
bar slipsi Páls á góma og kom
Jón þá m.a. með þessa athuga-
semd: „Heyrðu annars, Paul
— heldurðu að hún mamma
þín sakni ekki gardínunnar
sinnar?“