Vikan - 15.12.1966, Blaðsíða 57
HEILSAN FYRIR OLLU!
i i í |
wm/m
dffiim
4 J
SÚTAÐAR
GÆRUR
TRIPPASKINN
KÁLFSKINN
-K
Mikið
úrval
*
Hagkvæmt
verð
Sútunarverksmiðja
SLÁTURFÉLAGS
SUÐURLANDS
Grensásvegi 14
Sími 31250
Einnig
Laugavegu: 45
Sí'mi 13061
þessa mánaðar? Annað var það
nú ekki. Að sjálfsögðu verður
allur kostnaður greiddur. Þér
fáið fimmtíu dollara í laun frá
Randall, þegar þér farið, og aðra
fimmtíu, þegar hann tekur á
móti Charles, heilum á húfi. Ég
myndi segja, að það væri höfð-
ingleg borgun fyrir að hafa
auga með einum, ungum dreng,
innan við átta klukkustundir.
Að sjálfsögðu verðið þér fulltrúi
fyrirtækisins og vér væntum
þess, að þér gerið yðar bezta. Að
þér beinið óskiptri athygli yð-
ar að Charles, og veitið honum
ástúðlegustu umhyggju. Þegar
starfi yðar er lokið, eruð þér
frjáls að því að dvelja það sem
eftir er vikunnar í Madrid. E1
Prado, nautaat, og má ég stinga
upp á heimsókn til Toledo?
Nokkrar spurningar? Áður en
þér snúið yður að því að fá
vegabréf og bólusetningu?
— Já, svaraði Kay. — Um
Charles. Hann er tólf ára, sögð-
uð þér.
— Já.
— Þá er hann ekki kornabarn.
Hversvegna er ekki alveg eins
hægt að fylgja honum á flugvél-
ina og láta síðan flugfreyjurn-
ar um að annast hann á leið-
inni?
— Hversvegna þarfnast hann
óskiptrar athygli minnar og ást-
úðlegustu umhyggju?
— Ég hef verið að furða mig
á því sjálfur, ungfrú Taylor.
— Nú?
— Já, sagði Aikens. — Ef upp-
lýsingar mínar eru réttar, og
ég hef fulla ástæðu til að álíta
að svo sé, er Charles fullkom-
lega eðlilegur og hraustur
drengur. Ég get aðeins getið mér
þess til, að faðir hans hafi ekki
getað gert sér grein fyrir því,
hvað hann er orðinn stór. En
hann hefur vel efni á þessu.
Hafið engar áhyggjur af því,
ungfrú Taylor. Skemmtið yður
aðeins.
— Ég skal gera það, sagði
Kay, — og þakka yður fyrir að
velja mig, Aikens. Ég met það
mjög mikils og finnst það mik-
ill heiður, en hversvegna var
ég valin? Það þætti mér gaman
að vita.
— Þér eruð sú skrifstofu-
stúlknanna, sagði Aikens og
brosti hlýlega, — sem við megum
helzt missa.
— Ó, sagði Kay.
Um miðjan síðari hluta dags,
tíu dögum síðar, sótti einkennis-
klæddur bílstjóri Kay í Cadillac,
til íbúðar hennar í East Eighty
sixth Street, sem hún deildi með
tveim öðrum stúlkum, og þau
lögðu af stað til Morristown,
New Jersey, fyrsta hluta af
hinni löngu leið.
Hún var ærið spennt; þetta
var fyrsti Cadilacinn sem hún
steig upp í, fyrsta ferð hennar
í þotu, fyrsta skipti, sem hún fór
út úr sínu eigin landi. Hún gerði
sér ekki grein fyrir því, hvað
hún var spennt, þar til hún
þurfti að leita í óðagoti að vega-
bréfinu, til að tollvörðurinn í
Lincolngöngunum hleypti henni
inn í New Jersey. Hún náði þeg-
- og flasan feir
L1L3JU
LILDU
LILUU
LILUU
LILJU BINDI
ERU BETRI
Fást í næstu búS
50. tbi. VIKAN 57