Vikan


Vikan - 15.12.1966, Side 56

Vikan - 15.12.1966, Side 56
Toni gefur fjölbreytileika Sama stúlkan. Sama permanentið.Ólíkt útLit TONI lífgar og gerir hár yðar meðfærilegt. Gerir yður kleift að leggja og greiða hár yðar hvemig sem þér óskið. Heldur lagningunni. Sama permanentið heldur hvaða lagningu sem er. Hér eru þrjár ólíkar hárgreiðslur, sem eru grundvallaðar á einu Toni. En þér getið greitt yður á tugi mismunandi vegu. Um Toni—Aðeins Toni hefur tilbúinn bindivökva. Engin fyrirhöfn. Tilbúið til notkunar í handhægri plastik flösku. Vefjið aðeins hárið upp á spólurnar og þrýstið bindivökvanum í hvem Iokk. þér munið öðlast fullkomið Toni. Engar krullur. Engir stííir broddar. Toni gerir hár yðaf mjúkt og skínandi. Auðveldar hárgreiðsluna. Reynið Toni. minna í augum ungrar, ame- rískrar skrifstofustúlku. Jæja ungfrú Taylor, sagði Aikens. — Góðan daginn, sir. — Fáið yður sæti, ungfrú Taylor, fáið yður sæti. — Þakka yður fyrir, sir. — Það hefur ekki verið mitt hlutskipti að sjá mikið til yðar nýlega. Hvernig förum við með yður? — Vel, sir. — Nokkrar kvartanir? Kay hló. Henni féll vel við Aikens. Hann vissi hvað hann var að gera. Hann var að ýta undir vinnugleðina. Nú sá hún, að honum fannst hann hafa gert nóg af því. Það var komið mál tíl að snúa sér að viðskiptun- um. Hann ræskti sig. Hún var ekkert taugaóstyrk. Það var til að ganga úr skugga um að hún, eða hver sem sæti hinum meg- in við borðið, missti ekki af einu einasta orði hans. — Ungfrú Taylor, sagði hann hægt og skýrt, — Randall við- skiptin. Viðskipti við Bruce Randall. Er yður kunnugt um þau? — Ég hef vélritað nokkur bréf til Randall. Allt, sem ég veit um hann, er að hann dvelur erlendis. — Já, hann ferðast mikið, þessi Randall. Sannleikurinn er sá, að síðan hann skildi við kon- una fyrir sex árum, hefur hann ekki stigið fæti á bandaríska grund. Það á hann föður sín- um að þakka, afa og langafa, að hann hefur aldrei þurft að gera ærlegt handtak á ævinni og hann hefur aldrei gert það. Blöndungar. Aikens brosti og leit út um gluggann á fertugustu og ann- arri hæð, út yfir New York borg. Þetta var svo fallegur dagur, snemma í júní, að hann átti erfitt að halda sig við starf- ið. Þegar hann tók aftur til máls var kominn eínhver hlýja í röddina. — Því miður var langafi minn ekki eins framsýnn. Hann var járnsmiður, svo ég hef orðið að vinna alla ævina. Hann leit af Staten Island á Key. — Hvað gerði langafi yðar, ungfrú Taylor? — Ég veit það ekki. En ég verð að vinna fyrir mér, svo ég gizka á að hann hafi verið járnsmiður. Aikens hló við og spurði. — Gezt yður að börnum? — Ja, svaraði Key, án þess að láta snögg efnisskiptin slá sig út af laginu. Ég vona mér getist að mínum eigin — en — ég er ekki ein af þeim, sem klappa börnum annarra manna á kollinn. En misskiljið mig ekki, sir. Ég er hlynnt börnum. — Eigið þér nokkra yngri bræður? — Nei, aðeins tvær eldri systur. Þær eru báðar fallegar og giftar. — Vottaði fyrir beiskju, ung- frú Taylor? Eruð þér að gefa í skyn, að þér séuð ekki falleg og ógift? Kay flaug í hug, að Aikens hefði gjarnan getað greint ein- hverja beiskju, og sá möguleiki gerði hana vandræðalega. Hún hló, ekki aðeins til að hylja vandræði sín, heldur vegna þess, að hún fann ekkert viðeigandi að segja. Það var nokkuð, sem sjaldan kom fyrir Kay Taylor og það gerði hann enn vandræða- legri. Aikens kom henni til hjálpar. — Ég dreg þessa spurningu til baka, sagði hann. — Hún var óviðeigandi, allt of persónuleg og ........ — Aikens, sagði Kay og brosti aftur. — Var spurning yðar um það, hvort mér gætist að börn- um viðeigandi? — Mjög, væna mín. Randall á tólf ára gamlan son. Skiljið þér? — Nei, ég skil það nú ekki, sir. — Drengurinn er í heima- vistarskóla í New Jersey. Hann heitir Charles. Þér ættuð að taka eftir því. — Charles, sagði Kay. < — Nákvæmlega, sagði Aikens. — Charles dvaldi í síðasta sum- arleyfi hjá móður sinni í Suð-^ ur-Ameríku, Rio de Janeiro. Hann á að dvelja í sumar hjá föður sínum í Evrópu. Hafið þér nokkurn tíma komið til Madrid, ungfrú Taylor? — Ég hef aldrei komið til út- landa. — Hvernig myndi yður líka að eyða nokkrum dögum í Madrid? — Madrid! sagði hún. — E1 Prado, nautaat! Ó, Aikens! — Má ég þá treysta því, að þér afhendið Charles föður hans á flugvellinum í Madrid tólfta 56 VIICAN •I<U os

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.