Vikan - 06.04.1967, Page 2
í FULLRI HLVÖRU
BARA HREYFA EINN HNAPP og
a-fl/MF4/%FULLMATIC
SJÁLFVIRKA ÞVOTTAVÉLIN ÞVÆR, SÝÐUR, SKOLAR OG
VINDUR ÞVOTTINN.
fl-fl/%R4/lkFULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. -
HAKA GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST.
SJÁLFSTÆÐ
ÞVOTTAKERFI
1. Suðuþvottur 100°
2. Heitþvottur 90°
3. Bleijuþvottur 100°
4. Mislitur þvottur 60°
5. ViSkvæmur þvottur 60°
6. ViSkvæmur þvottur 40°
7. Stífþvottur/Þeytivinda
8. Ullarþvottur
9. Forþvottur
10. Non-lron 90'
11. Nylon Non-lron O o o
12. Gluggatjöld 40°
|-i/%K/%FUliMATIC
mSEINS l-fl%H4>%FULLMATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚH) EINUM SNERLI
OG HAKA SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. - SJÁLFVIRKT
HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU FVOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM-
ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL-
IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ
GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁL.
Framsögn og
framburöur
Kennarar í framhaldsskólum
hafa í æ ríkara mæli orðið var-
ir við, hversu nemendur eiga
erfitt með að koma fyrir sig
orði. Jafnvel þegar góðir nem-
endur, sem lesa lexíurnar sínar
vel og samvizkusamlega á degi
hverjum, eru spurðir út úr, rek-
ur þá í vörðurnar æ ofan í æ
og vefst tunga um tönn. Þeir
virðast eiga erfitt með að klæða
vitneskju sína í búning hins tal-
aða orðs og segja vel og skipu-
lega frá því, sem þeir hafa les-
ið. Það má kannski segja, að
þetta komi ekki að sök, fyrst
nemandanum tekst að gera læri-
föður sínum skilianlegt, að hann
kunni skil á því verkefni sem
fyrir hann er lagt. En skelfing
hlýtur að vera hryggilegt og
leiðinlegt að hlusta á myndar-
legt og vellesið fólk stama og
tafsa og mismæla sig í sífellu.
Oft hefur verið á það minnzt,
að ungir alþingismenn séu minni
ræðuskörungar en fyrirrennarar
þeirra. Þetta er hverju orði sann-
ara. Það er furðulegt, að maður
sem kominn er á þing, skuli ekki
geta haldið skammlausa ræðu
blaðalaust. Og jafnvel þótt hann
dragi upp úr pússi sínu uppskrif-
aða ræðu, getur hann ekki flutt
hana skýrt og skilmerkilega.
Þessi ágalli á annars greindum
og efnilegum mönnum er naum-
ast einleikinn. Einhvers staðar
hlýtur að vera pottur brotinn í
þessum efnum og það meira en
lítið.
Sérhver íslendingur er skyld-
ugur til þess að sitja í skóla í
átta vetur. Þar er honum kennt
það, sem að fróðra manna áliti
má að gagni koma í lífinu. Hon-
um er kennt að lesa og skrifa
og reikna. Og þeir eru fáir, sem
ekki sitja lengur í skóla en þeir
eru nauðbeygðir til. En hversu
langt sem þeim tekst að kom-
ast á menntabrautinni, er þeim
aldrei kennt aS tala, bera móður-
málið sitt skýrt og rétt fram,
segja skipulega frá á lifandi og
kjarngóðu máli. Slíkt hlýtur
samt að teljast nauðsynlegt
hverjum manni, ekki sízt þeim
sem viba láta að sér kveða á
sviði þjóðmála og komast á þing-
Það er áreiðanlega tími til
kominn að hefja kennslu í fram-
sögn og framburði í öllum skól-
um landsins, og er raunar í
hæsta máta einkennilegt, að ekki
skuli hafa verið byrjað á því
fyrir löngu. G. Gr.
2 VIKAN
14. tbl.