Vikan


Vikan - 06.04.1967, Side 22

Vikan - 06.04.1967, Side 22
Herbergið var tólfhyrnt og gluggalaust. Óbein lýsingin var rauð. Veggirnir voru þaktir með þykku, rauðu efni, sem hékk í fellingum frá lofti niður á gólf. Þunglamalegur armstóll og rúm í miðju herberginu voru klædd með sama dökkrauða litnum. Og til að kóróna allt, var hringlaga spegill í loftinu, sem sýndi her- bergið á hvolfi. Minni mitt brauzt um í öllum þessum roða og fann samanburðinn, sem það var að leita að: Hóruhús samkvæmt tízku frá Napóli, sem ég hafði heimsótt í Mexíkó City — í starfs- erindum. — Engin furða þótt hann drykki, ef hann hefur orðið að sofa hér. — Þetta var ekki svona, sagði hún. — Hann hlýtur að hafa látið gera þetta nýlega. Ég gekk um herbergið. Á hverj- um beinum fleti var útsaumað með gulli eitt af hinum tólf stjörnumerkjum — bogamaður- inn, nautið, tvíburarnir og allt hitt dótið. — Hefur faðir yðar áhuga fyr- ir stjörnuspádómum? — Já, sagði hún skömmustu- lega. — Ég hef reynt að rökræða þetta við hann, en það hefur ekkert að segja. Hann stakk sér á kaf í aliskonar störnugrúsk, þegar Bod dó. Ég hafði samt ekki hugmynd um, að hann væri svona djúpt sokkinn. — Stendur hann í sambandi við einhvern sérstakan stjörnu- spámann? Það er allt fullt af þeim. — Ég veit það ekki. — Ég fann skáp bak við eitt veggtjaldið. Hann var fullur af fötum og skyrtum og skóm, allt frá golfgalla upp í kjólföt. Ég fór kerfisbundið ofan í alla vas- ana. í brjóstvasa eins jakkans fann ég veski. í veskinu var vöndull af tuttugu dollara seðl- um og ein Ijósmynd. Ég hélt myndinni upp að per- unni, sem lýsti upp skápinn. Þetta var spákonuandlit með dökk og dapurleg augu og þrýst- inn munn. Niður með vöng- unum féll svart hár að háum kraganum á svörtum kjól, sem hvarf í listrænni móðu neðst á myndinni. Kvenmannshönd hafði skrifað með hvítu bleki, þvert yfir kjólinn: Til Ralph frá Fay með kveðju. Þetta var andlit, sem ég hefði átt að þekkja. Ég mundi eftir þessum dapurlegu augum, engu öðru. Ég stakk veskinu aftur í jakka Sampsons en bætti mynd- inni í myndasafnið mitt, sem taldi eina mynd fyrir. — Sjáið, sagði Miranda, þegar ég sneri aftur inn í herbergið. Hún lá á rúminu með pilsið rétt ofan við hnén, það var eins og líkami hennar logaði í rauðu ljós- inu. Hún lokaði augunum. — Hvað minnir þetta brjálaða her- bergi yður á? Hár hennar logaði allt í kring. Andlitið, sem vissi upp, var lok- að og dautt. Hún logaði öll eins og fórn á allari. Ég gekk yfir herbergið og lagði höndina á öxlina á henni. Rauða Ijósið skein í gegnum hönd mína og minnti mig á, að innan í mér var beinagrind. •— Opnið augun. Hún opnaði þau og brosti: — Þér sáuð það, var það ekki? Fórnina á heiðnu altari — eins og Salammbo. / — Þér lesið of margar bækur, sagði ég. Ég hvíldi höndina enn á öxl hennar og skynjaði sólbrúnt hör- undið. Hún sneri sér snöggt að mér og kippti í handlegginn. Var- ir hennar voru heitar á andliti mínu. — Hvað gengur á? spurði Taggert í dyrunum. í rauðri birt- unni var andlit hans eins og hann hefði blóðkreppusótt, og hann brosti enn þessu sama hálfbrosi. Hann hafði gaman af atburð- inum. Ég rétti úr mér og Iagaði jakk- ann minn. Mér var ekki skemmt. Miranda var það ferskasta, sem ég hafði snert í háa herrans tíð. Hún kom blóðinu til að þjóta um æðar mínar eins og hestar á veðhlaupabraut. — Hvað ertu með svona hart í vasanum? spurði Miranda háll og greinilega. — Ég er með byssu. Ég dró fram myndina af kon- unni og sýndi þeim báðum. •— Hafið þið nokkurn tíma séð hana áður? Hún kallar sig Fay. — Ég hef aldrei séð hana, sagði Taggert. — Nei, sagði Miranda. Hún brosti til hans útundan sér, sam- særislega, eins og nú hefði hún mark yfir. Hún hafði notað mig til að örva hann, og það gerði mig reiðan. Þetta rauða herbergi jók mér reiðina. Það var eins og að vera staddur inn í brjáluðum heila með engin augu til að sjá, ekkert til að horfa á, nema öfuga spegilmynd þess sjálfs. Ég flýtti mér út. 5 Ég þrýsti á bjölluhnappinn og innan stundar heyrðist djúp kvenmannsrödd í dyrasímanum. — Hver er þar? — Lew Harper. Er Morris heima? — Já, gerið svo vel. Það urr- aðí í áhaldinu, sem opnaði dyrnar á blokkinni. Hún beið, þegar ég kom upp stigana, feit, ljóshærð kona, ofur- lítið tekin að fölna, hamingju- samlega gift. — Það er langt síð- an við höfum sézt. Morris svaf yfir sig í morgun. Hann er enn að borða morgunmat. Ég leit á úrið. Klukkan var hálf fjögur. Morris Cramm var greinahöfund- ur fyrir dagblöð, og vann frá sjö á kvöldin til fimm á morgnana. Konan hans leiddi mig í gegn- um híbýli, sem voru sambland af setustofu og svefnherbergi, þar sem allt úði og grúði af blöðum og bókum og óumbúnum rúmum. Morris sal í baðslopp við eldhús- borðið og starði á tvö steikt egg, sem mændu á hann á móti. Hann var lítill vexti, dökkur yfirlitum með stingandi svört augu, bak við þykk gleraugu. Og bak við þessi augu var spjaldskrá, sem geymdi allt það helzta um Los Angeles. — Góðan daginn, Lew, sagði hann án þess að rísa á fætur. Ég settist gegnt honum. — Það er komið fram undir kvöld. -— Það er morgunn fyrir mér. Tíminn er afstætt hugtak. Hvaða hluta heila míns hefurðu í hyggju að nýta þér núna í morgunmálið? Hann lagði á áherzlu á síðasta orðið, og frú Cramm undirstrikaði það með því að hella kaffi í bolla 22 VIKAN 14- tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.