Vikan


Vikan - 12.10.1967, Side 7

Vikan - 12.10.1967, Side 7
PÖSTURINN_____ bænum, væri ég mjög líklega bú- in að limlesta einhvern ágætis borgara með því að aka fram úr bíl sem numið hefur staðar við zebra-braut. En ekki er nú víst að allir hafi eins gott „zebra- minni“ og ég. Á þessu gæti lögreglan hæg- lega ráðið bót: Fyrir 7 árum síð- an var ég úti í Englandi. Þar voru svona zebra-brautir, sem varla voru komnar hér þá, en þær voru líka vel merktar. Sitt hvorum megin götunnar viS gangbrautirnar voru 1—2 mtr. háir steinstólpar en ofan á þeim voru nk. „ljóskúlur". Þessar ljóskúlur blikkuðu með ca. 2ja mínútna millibili í svo sem Vi —1 mínútu í senn. Þetta var mjög áberandi og sást úr talsverðri fjarlægð. Þeg- ar ökumenn sáu ljósin blikka, hægðu þeir strax ferðina og námu staðar ef einhver þurfti að fara yfir götuna. Hins vegar gat verið stórhætlulegt að fara yfir götuna ef ljósin blikkuðu ekki. Heldur þú nú t. d., Póstur minn góður, að það gæti ekki verið búið að setja upp svona ljós- merki hérna heima ef lögreglan eða þeir sem hlut eiga að máli hefðu haft eilthvað vit í kollin- um? Svo við minnumst nú svolítið á hlut hins gangandi vegfaranda í þessu máli: — Það muna víst flestir eftir slysinu sem varð fyr- ir stuttu á Laugaveginum á móts við húsið nr. 176 Það er tvöföld akrein á götunni. Maður einn þarf að fara yfir götuna. Bif- reiðin á þeirri akrein, sem nær er manninum, nemur staðar til að hleypa honum yfir. Þá virð- ist maðurinn hafa haldið að það væru alveg hættulaust að hlaupa yfir alla götuna. Það er eins og hann hafi haldið, að gatan væri ekki breiðari en bíllinn, sem stanzaði fyrir honum. Ef hann hefði nú haft vit á að ganga aðeins út á miðja götuna og athuga hvort nokkur annar bíll væri að koma eftir hinni akreininni, þá hefði þetta slys aldrei komið fyrir. Jæja, Póstur góður. Ég vona að þú skiljir nú að sennilega hefði ekkert þessara „gangbrautarslysa“ átt sér stað, ef, 1) þeir, sem stuðla eiga að auknu öryggi í umferðinni hefðu verið búnir „að byrgja brunninn áður en barnið var ofan í hann dottið", og 2) ef gangandi veg- farendur hefðu sýnt meiri var- kárni en þeir gerðu. Ökumaður. Við þökkum þetta ágæta bréf um gangbrautimar og hin tíðu slys við þau. Gaman væri ef fleiri legðu eitthvað til málanna í þessu efni. FÍEB. Kæra Vika! Ég hef verið að lesa í blöðun- um að undanförnu um hin tíðu slys í umferðinni, þegar ekið er á gangandi fólk í fullum rétti á sebra-brautunum. Flestir þeir, sem eiga sameiginlegra hags- muna að gæta, stofna með sér einhvers konar félag nú á dög- um. Þannig er til FÍB eða Félag íslenzkra bifreiðaeigenda. Þetta er fyrirmyndarfélag og stendur dyggilega vörð um hagsmuni bíl- eigenda. Er því ekki mál til kom- ið, að stofnað verði félag þeirra sem ekki eiga bíl — þeirra sem verða að ganga á sebra-brautun- um og láta keyra yfir sig eins og hunda? Félagið gæti heitið FÍEB, Félag íslenzkra ekki-bíl- eigenda. Ég er ekki að gera grín, heldur tala í fullri alvöru. Hvern- ig lízt þér á hugmyndina? Einn stoltur og metnaðargjarn. Þú skalt boða til almenns borg- arfundar þegar í stað og stofna þetta félag. Þar sem þú ert bæði stoltur og metnaðargjam, þá er vel líklegt að þú verðir kosinn formaður félagsins. Og kannski færðu orðu, þegar þú ert orðinn sextugur. Þá verða sennilega allir orðnir bíleigendur, og krökkun- um mun finnast það kyndugt, að þú skyldir hafa barizt fyrir hags- munum gangandi fólks. FÆÐINGADEILD X EC KÝS Ballerup HRÆRIVEL Hún hjálpar mér við að HRÆRA — ÞEYTA — HNOÐA — HAKKA — SKILJA SKRÆLA — RÍFA — PRESSA — MALA — BLANDA MÓTA — BORA — BÓNA — BURSTA — SKERPA Ballerup 4 4® stærðir HAND- hrærivél Fæst með standi og skál. Mörg aukatæki hfcFALLEGAR kVANDAÐAR |*FJÖLHÆFAR 0, BaUina r NÝ k< ' AF HJ kNÝ BRAGI R Æ K 1 V í AFBRAI ÐS 1 ■L 3ÐS j L TÆKNI J STÓR-hraerivél 650 W. Fyrir mötuneyti, skip og stór heimili. íi: ÁBYRGÐ :j:j OG TRAUST jij; VIÐGERÐAR" jjjj ÞJÓNUSTA * Elektrónisk hraðastilling * Sama afl ó öllum hröð- um * Sjálfvirkur timarofi * Stálskál * Hulin raf- magnssnúra: dregst inn í vélina * Mjög öflugur 400 W mótor * Yfirálagsöryggi * Beinar tengingar allra aukatoekja * Tvöfalt hringdrif. SÍMI 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVÍK. Sendið undirrit. mynd af Ballcrup hrærivél með nánari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmála NAFN ........................................................ HEIMILI .................................................... TIL FÖnÍX S.f. póstliólf 1421, Reykjavík 41. tw. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.