Vikan


Vikan - 12.10.1967, Síða 13

Vikan - 12.10.1967, Síða 13
— Sein skaðabœtur fyrír eítt eða annað, bætti Bredesen víð, þurrlega. — Einmitt, sagði Krinner lág.. — Láttu mig hafa tvö spil. Hann fékk þau og hann liafði dregið fjórðu drottninguna. — Fimmtíu krónur, sagði hann öruggur. Bredesen var til í að halda áfram, en hinir lögðu spilin niður. Bredesen hafði hálft hús, þrjár áttur og tvœr fimmur. Krcnner dró peningana til sín. Það voru 150 krónur (norskar). — Nóg fyrir skaðabótunum? spurði Bredesen þurrlega. — Skaðabætur? Nei ég hef not ekki fyrir slíkt. Þeir heldu áfram að spila nokkra stund. Þegar þeir voru búnir einhvern tíman um nóttina, hafði enginn tapað eða grœtt neitt umtalsvert. Gestimw voru þá fyrir löngu famir úr danssalnum. Einn af þeim átti koníaksflösku á sínu borði, og þeir luku við hana, áður en hver fór til síns herbergis. Krinner leið hálf illa, þegar hann gekk eftir rökkvuðum gang- inum. Hann hryllti við að fara inn til konu sinnar. Hún var örugglega vakandi og beið hans til þess að skammast og ónotast. Iiann helt fast um bréfið í vasanum. Hann sá einlivem standa við glerskápinn þama á ganginum. Eða var það bara skuggi? Taugar lians voru að gefa sig. Og hvar ætti liann að fá peningana. t raun og veru gat. liann ekki útskýrt þetta fyrir konu sinni. Nú sá hann hvað liann hafði verið heimskur að haga sér svona. Það höfðu allir svo góð samþönd á þessu hóteli. N œturvörðurinn gekk snemma í gegn um. hótelið þennan föstu- dagsmorgun, eins og hann reynd- ar var vanur. Náttmyrkrið á ganginum var nœrri óhugn- anlegt, en forstjórinn hafði skipað svo fyrir, að það yrði slökkt á Ijósunum um næt- ur. Nœturvörðurinn vissi, að þetta gerði hann af varúðar- ástœðum, tíl þess að gestir hans gætu ferðazt á milli herbergja, án þess að láta Ijósið trufla sig. Og í myrkri sem þessu var hœgt að leyna ýmsu. N æturvörðurinn gekk hægt og rólega og stanzaði svona hér og þar. I enda gangsins náði dagsbirtan að yfirtaka rökkrið í gegn um lítinn glugga. Þegar hann gekk fram hjá þeim stað, sem slökkvi- tœkin áttu að vera, sá hann að ekki var allt með felldu. Þetta var eins og stór poki eða taska, sem var þarna. Kannske hafði einliver gestanna orðið að setja þetta þama vegna plássleysis á her- bergjunum. Hann horfði á lilutinn, en svo stífnaði liann upp. Þetta var maður, mannslíkami. Ef til vill dauðadrukkinn? Hann tók í öxl venmn- ar. Hún valt á gólfið. Og þá sá næturvörðurinn hvað hafði átt sér stað. Maðurinn hafði verið sleginn i hnakkann. Brunaöxin var nefnilega ekld lengur á sínum stað í glerskápnum. Sýslumaður umdœmisins var mœttur, og Eriksen, lögreglumaður frá Lillehammer, einnig. Hann hafði komið rétt á undan þyrlunni, sem flutti Alstedt yfirlögregluþjón og sérfræðingana tvo frá glæpadeild lögreglunnar. — Þetta er elcki sem verst páskaferð, sagði Alstedt, þegar hann klifraði nið- ur úr þyrlunni. Bremann gestgjafi og forstjóri hitti þá niður við vatnið, sem þyrlan lenti á, og þaðan héldu þeir upp að lúnni gömlu byggingu. — Einn af gestunum er læknir, sagði forstjórinn, — en það var nú ekki mikið sem sem hann gat gert, því miður. Aðeins fullyrt, að hann hafði verið sleginn í hnakkann með öxi. Við höfum eklci hreyft brunaöxina, sem hlýtur að hafa verið morðvopnið. Og við höfum heldur ekki hreyft líkið. Ekki einu sinni lögreglan. — Það er gott, sagði Alstedt. — Og hver hefur svo haft ástœðu til þess að drepa Krinner? Því það getur varla hafa verið sjálfsmorð, eða hvað? Framhald ó bls. 24 41 «*• VIKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.