Vikan


Vikan - 12.10.1967, Síða 57

Vikan - 12.10.1967, Síða 57
ar við pallinn. Lítil velklædd kona, hattlaus með logandi rautt hár veifaði og kom hlaupandi til móts við hana í fölu sólskin- inu. Þær föðmuðust hjartanlega og Julie Hamilton kinkaði á- nægð kolh, þegar hún lét augun hvarfla yfir andlit Adrienne. — Þú lítur vel út — alveg ljóm- andi vel. — Sveitalífið á greini- lega vel við þig. — Þú ert ekki sem verst held- ur, en þú lítur alltaf vel út. Hvernig líður Alana og Jill? Og Paddy — hvernig líður Paddy? Patricia var sú yngsta af þrem- ur dætrum Julie, og Adrienne var mikið hrifin af þessari feimnu tilfinningaríku, litlu stúlku með heilbrigða skynsemi föðurins og létt skap móðurinn- ar. Juhe nam staðar við dyrnar út af brautarstöðinni og tók upp miðann. — Paddy bað að heilsa þér. Ég mátti alls ekki gleyma að segja þér, að henni fyndist ekkert gera til, þótt þú gætir ekki heim- sótt hana, meðan hún er með hlaupabólu, því hún vill ekki, að Adrienne frænku klæi eins mikið og hana. En hún á von á þér strax og hún er orðin smit- frí. — Vesalingurinn. Hún verður að koma til Drumbeat í staðinn. Vera hér í eina viku, fara lang- ar gönguferðir í fersku útiloft- inu með mér og hitta vin minn Jamie. Ég held, að hún verði hrifin af honum. — Hver er Jamie? Julie sett- ist inn í bílinn. Adrienne setti í fyrsta og ók af stað í áttina að þorpinu — Hann er maðurinn í lífi mínu sem stendur. Haxrn brosir eins og faliinn engill. Hann er sætur. — Aldur? — Sjö, bráðum átta. — Það er þægilegasti aldur karlmannsins. Þá eru þeir auð- veldari viðureignar og meira að reiða sig á þá. — Þú skalt ekki láta þér detta það í hug. Hann veit hvað hann vill. Hann er af ráðríku gerðinni. Þegar þær voru komn- ar í gegnum þorpið, jók Adri- enne ferðina, og áður en langt um leið voru þær komnar á heimreiðina heim til Drumbeat. — Fylgir Jamie húsinu? spui'ði Julie. Adrienne hló við. — Hann er ekki nefndur í afsalinu, en hann hefur svona fast að því tekið mig að sér. Hann dvelur í öll- um sínum frítímum í garðinum mínum. — Sem sagt maður með vak- andi eftirtekt og góðan smekk. Mig langar að sjá hann. Adrienne ók heim á hlaðið. — Það færðu áreiðanlega fljótlega. Hún hnykkti með höfðinu í átt- ina að lundinum, þar sem glampaði í eitthvað rautt milli runnanna. — Fyrr en þig grun- ar, sýnist mér. Martha Hart beið á tröppun- um, þegar þær komu út úr bílnum, og Adrienne horfði á hvernig Julie nam stðar í for- salnum, eins og hún hafði sjálf gert, fjórum eða fimm vikum fyrr. — Þú skrifaðir, að þetta væri allt saman fullkomið, en mig hafði ekki dreymt neitt í lík- ingu við þetta, muldraði Julie. — Þú getur þá kannske í- myndað þér, hvernig mér leið, þegar ég kom hér í fyrsta sinni? Ég gat ekki trúað mínum eigin augum. — Ég trúi þeim ekki heldur. Er þetta allt saman satt? Julie strauk hægt yfir sófann. — Þú átt hvert gramm skilið, og ég er glöð yfir, að þessi gamli Sir John vissi hvað hann gerði. — Ég líka, en stundum flýgur mér í hug hvort það sé heilbrigt fyrir nokkra manneskju að vera svona heppin. Julie sneri sér að henni. — Elskan mín. Spilið gekk á móti þér í næstum fjögur ár. Fyrr eða síðar hlaut það að snúast til hins betra. — Þú átt þá við að Drumbeat sé einskonar huggunarverðlaun? — Nei, ég á við að það hafi verið nákvæmlega þetta, sem þú þurftir, til að endurvinna trúna á manneskjurnar og lífið. Þú og þetta hús eigið eins vel við hvort annað, eins og þú hefðir búið hér alla þína ævi. Adrienne nam staðar í stigan- um. — Skrýtið að þú skulir segja það. — en þetta finnst mér líka. — Hafðirðu nokkurn tíma komið hingað áður. — Nei, aldrei. — Ertu alveg viss? — Heldurðu, að ég hefði gleymt því, ef ég hefði komið til Drumbeat? — Það er ekki sennilegt, en þó ekki útilokað. Julie hrukkaði ennið: — Og þú hefur aldrei hitt velgerðarmann þinn, ekki einu sinni sem barn? — Ég vissi ekki, að maður að nafni John Bamer væri til, fyrr en ég fékk bréf frá lögfræðingn- um hans. Þær voru nú komnar upp á stigabrúnina og Julie rak augun í listmunina, sem stóðu í breiðri gluggakistunni, en efnið bar á góma næstu kvöld, þegar þær sátu yfir glösum. Þær höfðu verið úti allan daginn og nenntu ekki að fara strax í bólið og nutu samkenndarinnar, sem að- eins getur orðið milli tveggja mannvera, sem ala með sér djúpan skilning og samúð, hvor með annarri. Julie geispaði og hreiðraði betur um sig í sófanum. Hún horfði lengi á málverkið yfir arninum. Framhald í næsta blaði. Velvet Black Dark og Light Brown, Charcoal, Auburn. AUGNABRÚNA BLÝANTUR með yddara: aljtaf nákvæmur Auka- fyllingar. gerir fögur augu fegurri Maybelline snyrtivörur eru framleiddar af sérfræðingum í augnsnyrtingu, — og þær eru vandlátra kvenna val um allan heim. Frábær gæði — Fagurt útlit. MAGIC MASCARA Spiral Bursti litar, sveigir og aðskilur augnhðrin Fjórir litir. CREAM EYESHADOW Turquoise, Blue-Grey, Blue, Brown, Green og Violet FLUID EYE LINER Með bursta I lokinu. Sex litir. ULTRA LASH Auka- fyllingar. CAKE MASCARA Heims-þekkt merki I kassa með litlum bursta. 41. tbi. VIKAN 57

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.