Vikan


Vikan - 09.11.1967, Blaðsíða 32

Vikan - 09.11.1967, Blaðsíða 32
ONSON KIIEIKJARAR Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. STJÖRNUSPÁ - • w fHrútsmerkið (21. marz — 20. aprí!): Þú ert harður í sókn og hefur meiri ánægju af því, fremur en að þörfin sé brýn. Áhugi þinn er vak- andi og þér sýnist margt sem þú kynnir þér at- hyglisvert og geta komið þér að notum. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Það riður á að þú sért samstarfsfús og sveigjanlegur. Þú þari't sérstaka gát í peningamálum, því margar freistingar eru á vegi þínum. Það gæti bætt mikiö úr fyrir þér ef þú værir hjálpsamur. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Farðu gætilega þegar yfirmenn þínir eru annars- vegar. Þú þarft ekki að segja ósatt þótt þú segir ekki allan sannleikann. Taktu kvöldin rólega, reyndu að hafa þau fyrir þig. Komdu reglu á hlutina. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Ýmis mál sem snerta fjölskyldu þína og umhverfi hennar verða ofarlega á baugi. Þú hefur mörg járn í eldinum, það hefur mikið að segja að þú sért samn- ingslipur en þó fylginn þér. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú ert kröfuharður, og átt ekki við erfiða að etja, en ailt hefur sin takmörk. Þú hefur ágætar hug- myndir en þú gætir misst allt út úr höndunum á þér, ef hluttakendur eru of margir. • Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú vinnur mikið að áhugamálum þínum, en þér hætt- ir til að reikna skakkt. Vertu ekki of fús á að lána hluti sem þér er annt um. Efldu fjölskylduböndin og gefðu þig meir að ættingjum þínum. # Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú þarft að leggja nokkuð hart að þér, því haldreipi þitt brást, og margt ber að á sömu stund. Þú hagn- ast eitthvað í viðskiptum. Reyndu að hafa skipulag á hlutunum. Heillatala er sjö. j£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Fjármál þín þarfnast sérstakrar athugunar. Þú færð gott tækifæri til að bæta aðstöðu þina, en því fylgir mikil vinna. Einbeittu þér að viðfangsefnum þínum, það gefur bezta raun. Heilla tala er fjórir. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Reyndu að fá dálítinn frest á samningum þínum. Það getur verið erfitt fyrir þig að velja rétta menn á rétta staði, þegar mikið er í húfi, ef þú ferð ekki að með varkárni. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú þarft að leysa viðkvæmt deilumál sem risið hefur innan fjöiskyldu þinnar. Nú ríður á að þú sért lipur og þolinmóður, en það mun verða erfitt að komast hjá að særa engan. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú hagnast mjög vel á ákveðnu verki sem þú tekur að þér. Þú átt óleyst vandamál, en því miður þá megnar þú ekki mikið á móti öllum hinum, en þú þarft ekki að taka þátt í öðru en því sem þér líkar. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Gagnstæða kynið verður ekki þægilegt viðskiptis, þótt þú eigir alls ekki von á því. Þú hefur mikinn áhuga á að skipta um búsetu og ætti þér að takast vel í því efni. Heillalitur er blár. 32 VIKAN 45- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.