Vikan


Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 2

Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 2
1 ' //' / CHEVROLET BÍLABÚÐ ÁRMÚLA3 SÍMI 38900 TFULLRI HÁTOLLAPAPPÍR Öllum er ljós sá munur, sem er á pappírnum í kápu Vikunnar og öðrum pappír í blaðinu. Kannski hafa ein- hverjir velt því fyrir sér, hvers vegna við höfum ekki svo góðan pappír í blaðinu öllu. Því er fljótsvarað: Við viljum ekki að blaðið sé dýr- ara en brýnasta nauðsyn krefur. íslenzkri menningu er svo háttað, að leyfilegt er að flytja inn hvers konar papp- ír tollfrjálsuan, ef á hann er prentað á erlendu tungumáli. En ef við ætlum að kaupa pappír til að prenta á hann fræðandi og skemmtilegt efni, innlent og á íslenzku, er pappírinn í Vikunni sá vand- aðasti, sem völ er á við væg- um tolli. Fengjum við ögninni betri pappír, yrðum við að greiða háan toll af því efni og blaðið yrði mun dýrara. Það má rétt ímynda sér, hve miklu Vikan yrði fallegri ag skemmtilegri að fletta, ef hún væri prentuð á þann pappír, sem við raunverulega kysum að nota. Við þurfum ekki lengi að leita í bókabúð- um, til að finna erlend tíma- rit prentuð á þannig pappír. Verð þessara tímarita er lægra en það, sem við getum boðið upp á. Sama er að segja um bækur. Erlendar bækur fást hér fyrir brot af því, sem sambærilegar — jafnvel sömu ■— bækur kosta, útgefnar hér. Að vísu eru þessi blöð og bækur gefin út í mun meira upplagi og blöðin njóta víða fjórfalt hærra auglýsinga- verðs, en þennan mun mætti stórminnka ef landsfeðurnir leggðu innlendri útgáfu lið og afnæmu hátolla á efni til blaða og bóka. Með þessu blaði hefst 30. árgangur Vikunnar. Það er nýársdraumur okkar að fá tækifæri til að gefa blaðið út á betri pappír, lesendum þess og okkur sjálfum til þroska og yndisauka. — S.H. 2 VIKAN 1. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.