Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 5
hverju prófið þið hann
ekki? Það er engin afsök-
un að segja, að umboðið
sé lélegt, að það hafi eng-
an bíl á lager. Er það satt,
að nýi Volvoinn sé bara
stæling á Benz?
Mér finnst Vikan ágæt og
þess vegna ætla ég að
spyrja þig: Hvert er álit
þitt á hægrihandar-breyt-
ingunni? Ég er alveg á móti
henni. En eins og margoft
hefur komið í Ijós að und-
anförnu, þá er eins og það
séu tómir vitleysingar, sem
stjórna landinu!
Jæja, ég ætla þá ekki að
skrifa meira í þetta sinn.
Með fyrirframþökk
fyrir birtinguna,
Mercedes-aðdáandi.
P. S. Svo er þetta venju-
lega: Hvernig er skriftin?
Hvað getur þú séð úr skrift-
inni um framtíð mína? Ég
er strákur.
Bílaprófun Vikunnar
liggur venjulega niðri um
háveturinn, vegna slæmrar
færðar. En strax í vor byrj-
ar hún af fullum krafti. —
Benz 250 er áreiðanlíega
ekki stæling á Volvonum
nýja. Hins vegar er það
sameiginiegt með báðum
þessum bílum, að þeir eru
mjög vandaðir. Það má ef
til vill segja, að þess ger-
ist varla þörf að prófa Mer-
cedes Benz. Hann er fyrir
löngu orðinn viðurkenndur
og sígildur. — Það er
gagnslaust að rífast út af
hægri-akstrinum lengur.
Hann kemur 26. maí,
hvort sem okkur líkar
betur eða verr. Það kann
rétt að vera, að stjórnend-
ur landsins séu tómir vit-
leysingar. Stundum er að
minnsta kosti freistandi að
álíta það. En þá er líka
meirihluti landsmanna enn
þá meiri vitleysingar. Þeir
hafa nefnilega valið þessa
„vitleysinga“ til að stjórna
landinu okkar. — Og þá er
loks að lesa úr skriftinni
þinni: Framan af ævinni
verður þú að láta þér nægja
að hökta. á einhverri ó-
merkilegri bíldruslu. En sá
dagur kemur í lífi þínu,
að þú ekur um bæinn eins
og greifi — í Mercedes-
Benz af dýrustu gerð!
HANN MEÐ STÓRUM STAF.
Kæri Póstur!
Ég hef séð, að fólk leitar
mikið til þín með vanda-
mál sín. Nú langar mig að
gera slíkt hið sama, og ég
vonast eftir svari fljótt.
Fyrir um það bil einu og
hálfi ári kynntist ég manni,
sem ég varð mjög hrifin
af. Við vorum mikið saman
og hann elti mig á röndum,
eins og Hann ætti í mér
hvert bein. En svo fór sam-
bandið að dofna og endaði
með því, að við hættum að
vera saman. Ég veit ekki
enn hvers vegna. Og hví-
lík ástarsorg! Auðvitað
kynntist ég fleiri mönnum,
en gat ekki gleymt Hon-
um. Ég sá Hann oft, en
þorði ekki að tala við Hann
af fyrra bragði. Ekki alls
fyrir löngu frétti ég, að
Hann væri óður að ná sam-
bandi við mig aftfur og
vildi, að við byrjuðum að
vera saman á ný. Og eitt
kvöldið hitti ég Hann, og
Hann lofaði mér gulli og
grænum skógum, 'ef ég
vildi taka saman við Hann
aftur. Og Hann er ósveigj-
anlegur. Ég elska Hann
ennþá og vildi ekkert frem-
ur en taka Honum. En mér
finnst hálfpartinn eins og
Hann sé að kaupa mig til
sín. Er þetta bara vitleysa
hjá mér? Á ég að þiggja
það, sem Hann býður mér?
(Hann vill að við förum að
búa saman o. s. frv. og ég
hef alls ekkert á móti því).
Ég las í Póstinum ekki
alls fyrir löngu bréf frá
sonu, sem spurði um bók-
ina „Seinni kona læknis-
ins“, hvar hún fengizt. Bók-
in er eftir Mignon G. Eber-
hart og fæst í bókabúð Máls
og menningar við Lauga-
veg.
Með fyrirframþökk
fyrir birtinguna,
Trilla.
Þaff leynir sér ekki, aff þú
ert dauðhrifin af þessum
manni, hvernig sem hann
annars kann aff vera. Viff
höfum fengiff mörg bréf,
þar sem bréfritarar lýsa ást
sinni á einhverri viffkom-
andi persónu, en enginn
hefur haft svo mikiff viff,
aff skrifa Hann með stórum
staf, eins og sjálfur skap-
arinn ætti í hlut. Þess
vegna ráffleggjum viff þér,
aff þiggja þaff sem Hann
býffur þér.
x« ÉG
KÝS
BaUerup
HRÆRIVÉL M
Hún hjálpctr mér við að
HRÆRA — ÞEYTA — HNOÐA — HAKKA — SKIUA
SKRÆLA — RÍFA — PRESSA — MALA — BLANDA
MÓTA — BORA — BÓNA — BURSTA — SKERPA
Bal/erup
'Ba&e&et—
stærðir
Ba/lerup
HAND-
hrærivél
Fæst með
standi og skál.
Mörg aukatæki
|*FALLEGAR|
*VANDAÐAR
kFJÖLHÆFAR
MILLI-
STÆRÐ
Fæst í 5 Iltum.
Fjöldi tækja.
D
m
Ballina
r NÝ
r AF H lNÝ BRAGI RÆRIVI AFBRAi ÐS ' :L 3ÐS i
L TÆKNI J
STÓR-hrserlvél
650 W. Fyrlr
mötuneytl, sklp
og stór heimili.
ÁBYRGÐ
OG TRAUST
VIÐ-GERÐAR-
ÞJÓNUSTA
* Elektrónisk hraðastilling * Sama afl ó ölfum hröS-
um * Sjólfvirkur tímarofi * Stólskól * Hufin raf-
magnssnúra: dregst inn í vélina' * Mjög öflugur 400
W mótor * Yfirólagsöryggi * Bteinar tengíngar ailra
aukatœkja * Tvöfalt hringdrif.
SÍMI 24420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVlK.
Sendið undirrit. mynd af Ballerup hrærivél
með nánari upplýsingum, m.a. um verð og greiðslusikilmála
NAFN ....................................
HEIMILI...........................1......
TIL Fönix s.f. pósthólf 1421, Reykjavík
1. tbJ,
VIKAN 5