Vikan


Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 3

Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 3
r k VIKU BROS IÞESSARIVIKU A rHIESIU M PÓSTURINN Bls. 4 HUGSANIR FESTAR Á FILMU BIis. 6 HVERJIR ERU OFTAST í BLÖÐUNUM? .... Bls. 8 SÍÐAN SIÐAST Bls. 14 DROPAR Á STRJÁLINGI BIs. 16 TÍGRISTÖNN Bls. 18 KLUKKAN KALLAR Á NÝ Bls. 20 EFTIR EYRANU Bls. 22 ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN Bls. 24 ÞRUMUGNÝR YFIR ÞÝZKU-FLÓRENZ .... Bls. 26 KROSSGÁTA Bls. 30 STJÖRNUSPÁ Bls. 32 MYNDASÖGUR Bls. 35, 38, 42 VIKAN OG HEIMILIÐ Bls. 46 BRIDGE Bls. 49 VÍSUR VIKUNNAR: Að lofa sér og öðrum yfirbót á öllu því sem farið hefur miður er siður vor um sérhver áramót og sízt af öllu má hann leggjast niður. En syndin að oss sækir furðu hljótt og sumum gefst þá lítill fyrirvari þó göfug áform gleymist jafnan fljótt þau gefa mynd af réttu hugarfari. ÓSKALAGIÐ: Að þessu sinni sendum við hitaveitustjóra beztu kveðju með laginu „Some Like It Hot“. FORSÍÐANr Þá er nýtt ár gengið í garð með nýjum fyrirheitum, hvernig sem þau rætast. Vonandi hafa sem flestir fagnað nýja árinu með hæfilegum gleðskap og brennt um leið til ösku armæðu og bágindi gamla ársins. — Forsíðan er af áramótabrennu 1 Reykjavík, tekin af Pétri Þorsteinssyni, Ijósmyndara. VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða- maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Þorvalds- dóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pótshólf 533. Verð í lausasölu kr. 35- Áskriftarverð er 470 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun og myndamót Hilmir hf. TÆKNINNI fleygir fram og verkleg menning tekur stór- stígum framförum. Alltaf eru ný og nytsamleg tæki að koma á markaðinn til þess að gera framkvæmdir fljótari og auð- veldari. í næstu Viku leggj- um við okkar skerf til þessar- ar þróunar. Við birtum mynd- ir af nýjum og nytsamlegum tækjum. Kannski höfum við stigið feti of langt, en hafa ber í huga, að góðar uppfinn- ingar verða sjaldan til án mistaka í fyrstu. Við vonum, að lesendur hafi gaman af þessu uppátæki okkar. . . . FRAMANDLEG SAMFÉLÖG nefnast fjórar frásagnir af samfélögum með sérstæða siði og háttu bæði fyrr og nú. Þar er meðal annars sagt frá þorpinu Staphorst, sem er tíu mílur norðan við Zwolle, á aðalveginum frá Amsterdam til Groningen í Norður-Hol- landi. Á yfirborðinu er það í engu frábrugðið hundruðum annarra þorpa. En sé betur að gáð, kemur í ljós, að Stap- horst er lifandi minjasafn; vin í tuttugustu öldinni. Þar hefur tíminn staðið kyrr í fjögur hundruð ár. .. . MEÐ BROS Á VOR nefnist syrpa af skopsögum úr daglega líf- inu, bæði innlendum og er- lendum. Þar er meðal annars sagan um strákinn, sem horfði á móður sína taka sunnudags- steikina út úr ofninum. Hann spurði, hvort þetta væri fisk- ur úr sjónum, en móðir hans svaraði, að þetta væri lamba- steik. Þá sagði strákur? Hef- ur einhver drepið kind? Er einhver orðinn brjálaður?" .... Þá birtist síðari hluti greinarinnar um Dresden, DAGUR REIÐI, DAGUR BRÆÐI. . . . Og síðast en ekki sízt ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN og allir hin- ir vinsælu, föstu þættir. 1. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.