Vikan


Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 16

Vikan - 04.01.1968, Blaðsíða 16
TEIKNING BALTASAR JÖKUL JAKOBSSON Pilturinn tók út úr sér sígarett- una og horfði nú á stúlkuna mjög gaumgæfilega, horfði á stuttklippt hárið og stór blá augu, hvarmarnir voru dálítið þrútnir eftir grátinn og hún saug enn upp í nefið. Hún var sautján ára og fóstureyðingin hafði reynt talsvert á hana..... 16 VIKAN !• tbl- — Skyldi Jesús Kristur nokkurn tíma geta fyrirgefið okkur? sagði stúikan og saug upp í nefið. Unglingspilturinn hafði horft niður í gólf- ið drjúga stund og tottaði krumpaða sígarettu, nú leit hann upp: ■— Jesús Kristur? Hvar kemur hann inn í málið? Þú hefur aldrei minnzt á hann. Stúlkan þurrkaði sér um nef og augu með óhreinum vasaklút, í eitt hornið var saumað fangamark hennar með bleikum þræði, í peysubarminn var saumað með sams konar þræði: BAN THE BOMB. — Nei, ég hef aldrei minnzt á hann. Svo varð þögn á þurrkloftinu og heyrðist ekki nema dripp-drappið í regndropunum sem seytluðu inn með þakglugganum. Piltur- inn horfði góða stund upp í naktar sperrurn- ar, milli þeirra voru límdar í ioftið stórar myndir af Bítlunum, auglýsingaspjald sem sýndi fiskiþorp á Costa Brava, ennfremur Eiffelturninn og þarna var líka málverka- eftirprentun: Móna Lísa. Hún hafði yfirskegg og gleraugu og reykti pípu, það vantaði í hana framtennurnar- — Jesús Kristur, sagði unglingurinn loks, hvar kynntistu honum? í Þórskaffi? - í Fíladelfíu, sagði stúlkan blátt áfram. Pilturinn tók út úr sér sígarettuna og horfði nú á stúlkuna mjög gaumgæfilega, horfði á stuttklippt hárið og stór, blá augu, hvarm- arnir voru dálítið þrútnir eftir grátinn og hún saug enn upp í nefið. Hún var sautján ára og fóstureyðingin hafði reynl talsvert á hana. — Fíladelfíu? sagði pillurinn loks og horfði enn gaumgæfilega á stúlkuna og gat ekki leynt því að hann hafði ekki átt von á þessu. Gat verið hún væri allt í einu orðin fyndin? Nei, hún var hreint ekki fyndin. Henni var alvara með atombombuna og henni var líka alvara þegar hún svaf hjá. Það fyrra gat stundum orðið hlægilegt og það seinna óþægilegt. En hvorugt skipti höfuðmáli, aft- ur á móti var þetta alveg nýtt með Jesú Krist. Þó var hann búinn að þekkja hana í rúmt ár- Fram að þessu hafði hann haldið það væri nóg. •—■ í Fíladelfíunni, endurtók hann ioks eins og þætta væri lúmskur brandari sem hann kynni að meta á sinn hljóðláta hátt. Hún sagði ekki neitt en tróð nú vasaklútnum sín- um í buxnastrenginn og galdraði fram lítinn spegil og skoðaði á sér andlitið, svo leitaði hún i posanum sínum að bláa varalitnum og græna augnskugganum en fann ekki neitt. —■ Lánaðu mér greiðuna þína, sagði hún loks, ég finn ekki neitt. Það er allt týnt. — Vasabókin mín líka. Ég hlýt að hafa verið voða full. Þú bara dóst. Það var allt í lagi, sagði hann og bætti svo við ívið mannalega: Ann- ars hélt ég að þú þyrftir að fara varlega svona fyrst á eftir- — Já. Ég þarf að fara varlega. Hún lét spegilinn niður og skilaði honum aftur greiðunni þegar hún hafði strokið hár- ið fram á ennið, svo horfði hún tómlátum augum fram fyrir sig. Það var eins og hún væri týnd. — Viltu heyra plötu? sagði hann loks. — Nei. Ég vil ekkert heyra. — Ekki Donovan? — Nei, Ekki Donovan- Kannski What have they done to the Rain? — Nei. Ekki það. — Ekki neitt? — Ekki neitt. Rigningin hélt áfram að seitla inn um þak- gluggann: dripp-drapp, dripp-drapp. . . .

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.