Vikan


Vikan - 04.01.1968, Page 8

Vikan - 04.01.1968, Page 8
HVERJIR ERUOFT VIKAN HEFUR TALIÐ SAMAN AF HVAÐA MÖI VIÐ ÁRAMÓT þykir hlýða að líta um öxl og huga að því helzta, sem gerðist á liðnu ári. Blöð, útvarp og sjónvarp flytja annál árs- ins bæði í gamni og aivöru. Vinsælastur slíkra upprifjunarþátta er spjall útvarpsstjórans á gamlárskvöld. Hann er orðinn jafn skyldur áramótunum og skeggið hökunni. Hann þreytir ekki hlustendur með langri tölu, heldur telur réttara að telja það helzta, sem hlýtur ' árs og töldum saman, hverjir það væru, sem blöðin birtu oftast myndir af. Niðurstöður rannsóknarinnar getur að líta á þessum síðum. Við birtum umfangsmiklar og virðulegar töflur, rétt eins og Hagtíðindin. Fyrst er skrá yfir þrjátíu menn, sem oftast birtust myndir af í öllum blöðunum, en síðan er tafla fyrir hvert blað. að teljast töluverð tíðindi. Fyrstu vikur nýja ársins halda áfram að berast samlagningar- fréttir úr ýmsum áttum. Við fáum að vita hversu margar flug- vélar hafi lent á Keflavíkurflugvelli; hversu margir bíleigendur hafi orðið að aka nýja Keflavíkurveginn og hjálpað með því vega- gerðinni að leggja vegleysur einhvers staðar úti á landi. Við fáum að vita, hversu margir hafi kvatt þennan heim á árinu, sumir svo snarlega, að þeim veittist ekki tóm til að verða sáttir við gjald- heimtuna. Og auðvitað fáum við líka að vita, hversu margir nýir borgarar litu dagsins Ijós í fyrsta sinn, — splunkunýir einstaklingar, sem kannski verða einhvern tíma menn til að borga skattinn sinn. VIKAN hefur eins og önnur blöð talsverðan áhuga á tölum og vill ekki láta sitt eftir liggja til að koma slíkri speki á framfæri við lesendur sína. En við ákváðum að freista þess að beina tölfræðinni inn á einhverjar nýjar brautir; nema ný lönd í leit að skemmti- legri niðurstöðu. Við flettum dagblöðum höfuðstaðarins fyrstu tíu mánuði liðins VITUR MAÐUR hefur sagt, að ekkert kitli meir hégómagirnd mannskepnunnar en það að sjá mynd af sér í blaði. Ef þetta er rétt, hefur könnun okkar leitt til þeirrar niðurstöðu, að stjórn- málamönnum og leikurum líði að jafnaði betur en öðrum. Af þeim þrjátíu mönnum, sem oftast birtust myndir af í öllum blöðunum samanlagt, eru 17 stjórnmálamenn, 10 leikarar, 2 íþrótta- menn og loks rekur lestina einn fulltrúi skapandi listar hjá menn- ingarþjóðinni, Halldór Laxness Nóbelsskáld. Enginn verður spá- maður í sínu föðurlandi, stendur einhvers staðar. Til þess að fullnægja öllu réttlæti skal tekið fram, að alþingis- kosningar fóru fram á árinu, en þá gengur flest úr skorðum í þjóð- félaginu, ekki sízt dagblöðin. Á töflunum má sjá, að þeir stjórn- málamenn sem fremstir eru í flokki og hæst gnæfa, koma fyrstir að marki í þessu myndakapphlaupi blaðanna. Þó ber að hafa í huga, að bæði er hægt að birta myndir af mönnum í virðingarskyni og til að reyna að gera þá hlægilega. Hið síðarnefnda hefur orðið hlutskipti margra stjórnmálamanna, ekki sízt þess sem hreppti efsta sætið. 8 VIKAN L

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.