Vikan - 04.01.1968, Page 22
Em
l
Andrés Indriöason
ROLLINGARNIR
Þessar myndir af Rollingunum hafa vakið
mikla kátínu aðdáenda þeirra víða um heim,
en þótt myndirnar séu allar úr frumbernsku
þeirra, má þó þekkja svip, ef betur er að
gáð. Efst sjáum við Bill Wyman, bassaleik-
arann, f. 24 oktober 1941. Þá er Keith Rich-
ard, gítarleikari og lagasmiður, f. 18 desem-
ber 1942. Brian Jones kemur næstur. Hann
situr í fangelsi þessa dagana og mun halda
þar upp á afmæli sitt 28. febrúar, en hann
er fæddur árið 1944. Þá er Charlie Watts,
trymbillinn, sem er elztur þeirra félaganna,
fæddur 2. júní 1941. Neðsta myndin er svo
af Mick Jagger, söngvara og höfuðpaur
hljómsveitarinnar. Hann er fæddur 26. júlí
1944.
Gerð hefur verið heimildarkvikmynd
um Bob Dylan og nefnist hún „Don‘t
Look Back“ (Littu ekki um öxl). Mynd-
in var tekin áriff 1965, þegar Bob Dylan
var á hljómleikaferð um Bretland. Sýn-
ing myndarinnar, sem var frumsýnd í
New York nýlega, tekur hálfa aðra
klukkustund. Myndin hefur hlotið mjög
góða dóma gagnrýnenda, en þeir, sem
unnu aff gerff hennar, höfðu úr nógu
að moða, því að hefði allt verið sýnt,
sem tekið var, hefði sýning myndarinn-
ar staðið í 20 klukkustundir! Bob Dylan
hefur ekkert látið á sér kræla í langan
tíma. Hann lenti í umferðarslysi fyrir
einu og hálfu ári, en kunnugir herma,
aff hann sé nú kominn á stjá aftur og
munu hinir f jölmörgu aðdáendur hans
eflaust vera hressir yfir þeim tíðindum.
V____________________________________y
Rööön er
kcmin að
Mike Nesmith
Þeim, sem vel fylgjast með því, sem gerist
í dægurlagaheiminum, hefur orðið tíðrætt
um það, að Mike Nesmith hefur gert sér
grunnt á fæti við unga og bráðfallega tízku-
sýningardömu, Samantha Juste. Samantha, | *
sem er tuttugu og tveggja ára og ættuð frá
Manchester, hefur notið vinsælda hjá ungu
fólki í Bretlandi um langa hríð, því að hún
hefur haft hönd í bagga með vinsælum þætti
í brezka sjónvarpinu, sem ætlaður er ungu
fólki. Samatha hefur áður heillað fleiri dæg-
urlagagoð en Mike Nesmith. Um skeið var
hún i kompaníi við Paul Ryan og þar áður
Tony Hicks, gítarleikara The Hollies. En nú
er rómantíkin milli hennar og Mike í algleym-
ingi, og Mike hefur jafnvel gefið í skyn, að
hún sé sú útvalda. Samatha brosir útundir
bæði eyru þessa dagana og lætur sér í léttu
rúmi liggja, þótt ungu dömurnar í kringum
hana séu óhressar og líti hana hornauga.
22 VIKAN »• m