Vikan


Vikan - 04.01.1968, Qupperneq 23

Vikan - 04.01.1968, Qupperneq 23
 •••••••• <<:<<: Það er músik, sem máll skiptir Traffic er ein af þeim hljómsveitum, sem eru í hvað mestu áliti í Bretlandi þessa dag- ana. Einn iiðsmanna hljómsveitarinnar er Stevie Winwood, sem áður söng með Spencer Davis Group. Þegar Stevie Winwood hljóp í burtu frá Spencer og stofnaði Traffic, héldu flestir, að Stevie mundi bera uppi þá hljóm- sveit og vera sá liðsmanna, sem mest mæddi á. Þessi hefur hins vegar ekki orðið raunin, og í laginu ,,Hole in my shoe“ er það David Mason, sem er aðalsöngvarinn. „Ef sú stað- reynd, að það er ég sem syng lagið, hefur sannfært fólk um að við erum ekki Kvartett Stevie Winwoods, þá erum við allir ánægð- ir“, sagði David, þegar þessi mál bar á góma. Og hann héll áfram: „Við höfum allir eitt- hvað til málanna að leggja, og það vildi bara svo til, að rödd mín hentaði laginu betur en rödd Stevies." Ég hef hins vegar síður en svo nokkra löngun til að verða „andlit hljóm- sveitarinnar". Mér hefur alltaf gramizt sá hugsanamáti, sem virðist viðtekinn, að mað- ur verði að vera einhvers konar „goð“ til þess að fólk fáist til að hlusta á mann. Vilji menn verða goð, er nóg að ganga fram á sviðið og gera ekkert meðan æpt er. Það er músik, sem máli skiptir hjá okkur“. MAMAS OG / RAPAS HÆTTA Bandaríska söngsveitin vinsæla, The Mamas and Papas, hefur nú ákveðið að draga sig í lilé og hætta öllu hljóm- leikastússi. Söngkonan Cass Elliott lét svo ummælt nýlega, og þó væri ekki loku fyrir það skotið, að þau syngju á plötur af og til. Það hefur gengið á ýinsu hjá fjórmenningunum þann tíma sem þau liafa staðið í sviðsljósinu, en nú hyggjast þau njóta Iífsins í ró og næði á ehiliverri eyju í Miðjarðarhafi og lála sönginn lönd og leið. OKKAR FYLGJ- ENDUR HLUSTA Alan Price er mjög vinsæll hljómlistarmaður, en hverjir eru aðdáendur hans? Ólíkt því sem er um margar hljómsveitir, sem hafa áunnið sér töluverðar vinsældir, hefur hljómsveit Alans engin cinkcnnandi hljómbrigði (það sem hljómlistarmenn hér kalla „sound‘)“. Með hverri nýrri plötu hljómsveitar hans koma fram ný hljómbrigði. Nefna má lögin „Put a spell on you‘ og „The House that Jack built“, sem eru mjög ólík hvað þetta snertir. „Ég tel við eigum enn töluverðan hóp fylgjenda,“ segir Alan, „aðdáendur okkar eru um og yfir tvítugt og margir þeirra hafa áhuga á nútíma jass. Þeir koma til að hlusta á okkur fremur en dansa. Þeir kunna að meta góða músik, en æpa ekki! Margir fylgjenda okkar eru af karlkyni, þar sem við ger- um okkur ekki far um að vera ,,sexy“ eða höfða til stúlkubarnanna“. Herd — nýgræðingar á vinsælda- lista. Tónsmiðimir Howard og Blaik- ley — þeir sömdu lagið Zabadak. Dave Dee og félagar — alltaf jafn vinsælir. V________________________________________) Flestar hinna þekktari hljómsveita hafa í sínum röðum lagasmiði, sem semja lög til að leika á hljómplötur. Má þar nefna m. a. Bítlana, Rollingana, Hollies, Kinks og Bee Gees. En svo eru líka aðrar hljóm- sveitir, sem oftast eru í vandræðum, þeg- ar þær þurfa að verða sér úti um lög til að leika á plötu. Og þá er að leita til þeirra, sem hafa að atvinnu að semja dægurlög. í Bretlandi fæst fjöldinn allur af mönnum við slíka iðju, en hinir þekkt- ustu eru sennilega Burt Bacharach (samdi m. a. „What‘s new Pussycat?), Chris And- rews (hefur samið flest þeirra laga, sem Sandie Shaw hefur sungið á plötu), Tony Hatch og Ken Howard og Alan Blaikley. Hinir tveir síðastnefndu starfa saman, og hefur samvinna þeirra borið margan góð- an ávöxt. Þeir hafa.m.a. samið lög fyrir Dave Dee og félaga, nú síðast hið frum- lega lag „Zabadak", sem komst í efsta sæti brezka vinsældalistans í nóvember sl. Þeir hafa sjálfir látið svo um mælt, að þeir leitist sífellt við að koma fram með eitthvað nýtt, að lögin þeirra séu ekki í anda þeirrar stefnu, sem mest er í tízku í tónlistinni hverju sinni. Þeir, sem hlusta á lagið „Zabadak“ komast fljótt að raun um, að ekki er gott að átta sig á textanum. Howard og Blaikley hafa í þessu lagi búið til sitt eigið ímyndaða lungumál! Þeir benda á að textinn skipti ekki svo ýkja miklu máli; að fólk komi heim úr sumarleyfi erlendis syngjandi á i. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.