Vikan - 04.01.1968, Qupperneq 50
Hfólað I
hjóna-
handlð
Samkvæmt síðustu fréttum þeirra,
sem fylgjast bezt með tízkunni í
LONDON, er það nýjasti móður
í þeirri frómu borg að mæta á
reiðhjóli til brúðkaups. Og þetta á
ekki eingöngu við parið sjálft, heldur
einnig alla gestina, sem við brúðkaup-
ið vilja vera.
Það þykir ekki alltaf snjallt að vera
gamaldags, en stundum getur það ver-
ið ágætt, — svona við hátíðleg tæki-
færi.
AIR FRANCE ER
ÞEIRRA STÆRST
Úti í hinum stóra heimi hefur oft verið um ]>að deilt, hvert flug-
félaganna sé stærst í Evrópu. Nú hefur tímaritið Air Transport World
höggvið á deiluhnútinn.
Það er hægt að reikna þetta á marga vegu. Ef litið er eingöngu
á fjölda fluttra farþega, hefur hið brezka í'élag, BEA (British Eu-
ropian Airways) forystuna, en ef miðað er við fragt, er hollenzka
flugfélagið KLM stærst. En Air France hefur hæstu tölu i farþega-
flutningi miðað við þá kílómetra, sem farþegarnir eru fluttir, flesta
flugvelli, og mesta sætafjölda samanlagt.
Hér á eftir fylgja listar yfir stærstu flugfélög í Evrópu, og hvernig
hlutfallið er á milli þeirra:
Fjöldi farþega: 1) Bea, 2) Air France, 3) Lufthansa, 4) SAS,
5) Alitalia, 6) Iberia, 7) Swissair.
Farþegaflutningur, miðað við vegalengdir: 1) Air France, 2) Luft-
hansa, 3) Alitalia, 4) KLM, 5) BEA, 6) SAS, 7) Svissair.
Fragtflutningar: 1) KLM, 2) Lufthansa, 3) Air France, 4) Alital-
ia, 5) SAS, 6) Swissair, 7) Sabena.
Stærð flugvalla: 1) Air France, 2) BEA, 3) Iberia, 4) Alitalia,
5) Lufthansa, 6) SAS, 7) Sabena.
Sætafjöldi: 1) Air France, 2) BEA, 3) Lufthansa, 4) KLM, 5) SAS,
G) Sabena, 7) Iberia.
Og Air France er ekki aðeins stærst í Evrópu, heldur einnig í öll-
um heiminum.
Ríkisuppfinning nr. 18-865 frá ár-
inu 1881 í Þýzkalandi er svohljóð-
andi: Bíll, sem gengur fyrir tengda-
mömmu: Þcgar bíllinn er scttur af
stað, fær tengdamamma efra og aft-
ara sætið, cn þangað verður svolítið
að hjálpa henni. Síðan er stöng í sæti
tengdamömmu, sem gengur inn í
tannhjól, og snýr því, þegar sætið
rennur niður. Tannhjólið er siðan í
sambandi við aftari öxulinn, og bíll-
inn fer af stað. Ef vcgur er ósléttur
er reiknað með að tengdamamma
hreyfist sjálf, upp og niður, cn ef
hann er sléttur, verður að gera ráð
fyrir að hún hjálpi sér með fótunum.
Þetta er vissulega bráðsnjallt. En
englnn má æðrast yfir tengdamömmu
héðan í frá, hún gæti komið í góðar
þarfir, ef bensínið tæki að hækka á
nýjan leik.
EKKIER ÖLL
VITLEYSAN
DÆMDUR
NÓBELSVERÐ-
LAUNAHAFI
ítalinn Danilo Dolci er ekki mikið
þekktur maður á íslandi. En hann er
merkur og virðingarverður maður. —
Hann lifir fyrir baráttu, réttmæta en
vonlausa baráttu. Hann lifir fyrir hið
þjáða fólk, serh býr á Sikiley, og hann
berst gegn hinum alkunna og and-
styggilega félagsskap, Mafíunni.
Ár eftir ár hefur Dolci verið talinn
líklegur til að hljóta friðarverðlaun
Nóbels. En norska Stórþingið hefur
ætíð brugðizt.
Dolci þykir einnig líklegur í ár. En
nú eru aðstæðurnar svolítið furðuleg-
ar, því Dolci hefur verið dæmdur í
tveggja ára fangelsi og 13.000 króna
sekt fyrir meiðyrði. Dolci sleppur þó
við að afplána dóminn.
Dómurinn var eins og löðrungur
framan í nær alla ítölsku þjóðina. —
Réttarhöldin í Róm höfðu tekið tvö
ár. Málið snerist um það, að Dolcl
staðhæfði, að fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, Bernardo Mattarella hefði
verið í nánum tengslum við Mafíuna.
Dómstóllinn taldi sannanirnar fyrir
því, að ráðherrann fyrrverandi hefði
verið 1 sambandi við Mafíuna ekki
nógar. Krafizt hafði verið eins árs
fangelsis, en dómstóllinn tvöfaldaði
dóminn.
Dómurinn var sérstaklega harður,
og ítölskum dómstólum til stórrar
skammar.
Nú hafa stuðningsmenn Dolcis á
Ítalíu hafið undirskriftasöfnun til
áréttingar því að Dolci hljóti friðar-
verðlaun Nóbels. Stórþingið norska á
að veita þau í haust.
50 VIKAN !• tbl-