Vikan


Vikan - 04.04.1968, Síða 7

Vikan - 04.04.1968, Síða 7
allan móral, af ótta að vera álitnir gamaldags. Jæja, þetta er og verður alltaf vandamál. Sjötíu og: sex ára gömul kona sagði mér nýlega að vandamál ungs (og eldra) fólks í þessum efnum væri ekkert nýtt fyrirbrigði, en hvers virði er lífið án vandamála til að glíma við? Svo þakka ég ykkur hjá Vikunni fyrir alla góða skemmtun og bið ykkur að fyrirgefa þessar ruglingslegu hugleiðingar. Ég gæti skrifað meira, en læt þetta duga í bili. Með beztu kveðjum, Aðalheiður Jóns. EG BIÐ - OG GRÆT . . . Kæri Póstur! Já, ég er líka í vandræð- um, eins og allir hinir, sem skrifa þér. Getur þú hjálp- að mér? Ég er hrifin af strák, en hann er hálftrú- lofaður. Ég hreint og beint elska hann. Það sem fer í taugarnar á mér er, að hann reynir oft til við mig. Fyrst var ég með honum nokkur kvöld, en þá sagði hann mér, að hann væri hálftrú- lofaður. Og nú er ég orðin ástfangin af honum. Ekki getur hann sagt skilið við hina dömuna, þegar hann er búinn að binda sig svona við hana. Reyndar er ég búin að segja honum að fara norður og niður. Mér fannst það réttast, því að ég hélt, að ég gæti gleymt honum eins og skot. En æi nei, kæri Póstur! Hann fer ekki úr huga mínum. Og nú er hálft ár liðið, síðan ég sá hann fyrst. Ég fer á böll þar sem hann er og dansa mikið við hann, þ. e. a. s. þegar daman er ekki með. Hann gerir mikið af því að skilja hana eftir heima til að geta haldið fram hjá. Ég hef bannað honum að halda fram hjá með mér. Ég vil það ekki, því að ég er þrjósk eins og páfagaukur. En freistingin fer að gera út af við mig, því að ég elska hann, eins og ég hef sagt. Kæri Póstur! Mér líður illa. Ég get ekki farið á önnur böll. Hvað á ég að gera? Elsku ráðlegginga- meistari! Svaraðu mér, — ég bið . . . og græt, ef bréf- ið hafnar í ruslafötunni. Með fyrirfram þökk, J. P. Ekki dettur okkur í hug aff græta þig meff því aff fleygja bréfinu þínu í glat- kistuna, enda er þaff svo- lítiff skemmtilegt á köflum. Samkvæmt lýsingu þinni er strákurinn ærið brokk- gengur í kærleiksmálunum, en hann getur svosem ver- iff bezti strákur fyrir þaff. Af því aff þú elskar hann svo afskaplega mikiff og ert „þrjósk eins og páfagauk- ur“, þá leggjum viff til, aff þú látir til skarar skriða og reynir aff klófesta strák- inn. Þaff er alvanalegt að tvær stelpur berjist um einn strák, og báðar geta ekki unniff sigur, — aff minnsta kosti ekki fulln- affarsigur. Þér fylgja fróm- ar óskir um indælt stríð og elskurika lukku — frá „ráffleggingameistaranum." TÓMLEGT. Góði Póstur. Við þökkum þér fyrir allt gamalt og gott. Og okkur langar að spyrja þig um, hvort það sé óhollt að ganga með brjóstahaldara, þótt þess gerist ekki þörf. Vertu bless, Vika mín, og þakka þér kærlega fyrir allar myndasögurnar. Við biðjum kærlega að heilsa Stínu og Stjána. Tvær forvitnar. P. S. Enga útúrsnúninga. Nei, fjandakorniff þaff geti veriff óhollt að ganga með brjóstahaldara, þótt ekkert sé i þeim. Hins veg- ar mundum viff gizka á, aff þaff væri svolítiff tómlegt og óþægilegt. Þaff hlýtur aff vera eitthvaff svipað því og aff ganga meff fal- iegt veski, en eiga aldrei grænan eyri til aff hafa í því! Þér verðið að afsaka mig, frú Petersen, en ég get ekki talað við yður lengur, það er einhver að hringja bjöllunni hjá mér! HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 16830. Tveggja manna sveínsófi og samstæðir stólar Til fermninsaroiafa VINDSÆNGUR í árs ábyrgð. 5 gerðir frá kr. (i40,oo. GASPRÍMUSAR, litlir og stórir, mikið úrval. TJÖLD, allar stærðir, með og án himins. SKMlÐlN 13. tbt. VIKAN 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.