Vikan - 04.04.1968, Page 15
sjálfa sig, stóreyg, þegjandi og
tók til fótanna eins og héri ef
einhver ávarpaði hana. Svo allt
í einu blómstraði hún aftur.
Björt, hlý, glaðbeitin, talaði við
alla, vingaðist við alla. En ég
átti von á einhverjum óþæg-
indum þegar hún kæmist til
þroska og ég hafði rétt fyrir mér.
— Hversvegna væntirðu þess?
Gáfuleg augun störðu á
Breckenridge gegnum þykk
sjónglerin. — Þú og ég vinur
minn höfum þann sjúkdóm sem
við fengum í bernsku. Við höf-
um kvíðann. Jezzie fékk auka-
byrði og það var uppbót, ekki
aðlögun. Það var komið með
hana eina nóttina, þegar hún
var fimmtán ára, með háan hita
og óráð og hægri handleggur-
inn uppblásinn af eitrun og leit
út eins og stór, rauð sleggja.
Ég barðist fyrir þessum hand-
legg og hún hélt honum. En
blóðeitrunin gerði hana að
beinagrind. Það voru líka göm-
ul brunasár við hliðina á þeim
sem blóðeitrunin hafði hlaupið
í. Þegar hún fór og styrktist ögn
spurði ég hana út úr, en hún
vildi ekkert segja mér. Hún tók
ekki dáleiðslu, þar til ég pump-
aði ofboðlitlu sodium pentothal
í hana. Þá hafði ég sígilt dæmi
í höndunum. Alger vöðvastjarfi,
draumar og sýnir. Móðursýki
með trúarlegu ívafi. Hún hafði
haldið handleggnum yfir kert-
isloga og notaði sér þjáninguna
til að komast í dá, krossfesta
holdið og reka burt djöfulinn.
Móðursýkin var svo mikil að
hún fann ekki til sársaukans.
Ég reyndi að tala við Mary
Jackman um þetta. Það var eins
og að tala við vegg.
— Komst Jezzie yfir það?
— Hvað heldur þú? Hún er
ein sú líflegasta og hraustasta,
fullþroska kona, sem ég hef
nokkurn tíman séð, en hver ein-
asta von um eðlilegt líf og full-
nægju var' barið úr þessum
likama fyrir langa löngu, bak
við bílskúr. Hún er tilfinninga-
lega fötluð. Líkaminn á í stríði
við sjálfan sig, allt í nafni
dyggðarinnar. Einhverskonar
brigðult jafnvægi hefur komizt
á. Þetta jafnvægi sýnir eðlilegt
og þægilegt andlit gagnvart um-
heiminum, en hverfur eitt sér
inn í drauma og sýnir í einrúmi.
Persónuklofningur. Persónujafn-
vægi gerir mig alltaf smeykan,
þegar ég hugsa um það.
— Væri hægt að gera hana
ábyrga fyrir morði?
— Hún myndi ekki hugsa um
það sem morð, heldur sem af-
töku.
— Og hún væri snjöll?
— Með alla þessa reynslu af
að lifa. í tveimur heimum, dreng-
ur minn, væri hún slunginn
eins og snákur,
— Aftaka Lucille og aftaka
Hernandez?
Fyrir eitthvað um þrem mán-
uðum fékk Gus hægðatregðu
sem hann var hræddur við og
ég rannsakaði hann mjög ná-
kvæmlega. Hann hafði að því
er virtist heilbrigt hjarta. Lík-
skoðun ætti nú að hafa unnið
sitt starf. Ég ætla að hringja.
Nile var lengi í símanum.
Þegar hann kom aftur var hann
með tvær fullar bjórkrúsir. —
Það var ekki mikið gagn af því,
Bart. Mjög illa farin og rifin
þind. Áverkar á neðsta hluta
hjartans. Gollurshús rifið. Það
er þunnur, seigur vefur. Engir
meðfæddir gallar sjáanlegir.
Mar og áverkar neðst á hægra
hluta hjartans. Bart sagði að það
hefði verið eins og einhver hefði
látið Gus detta ofan á girðing-
arstaur og hitt eins ólánlega og
hægt væri.
— Væri hægt að gera það með
hnefa?
— Það getur enginn slegið
svona fast. Eklcert 1 bílnum get-
ur hafa haft þessar afleiðingar,
og hann getur ekkert hafa ekið
eftir að neitt þessu líkt gerðist.
Ef ég hefði slegið Gus niður og
getað teygt á honum upp við
eitthvað, hefði ég ef til vill get-
að þrýst nógu fast á þindina
til að hindra hjartahreyfingar og
stöðvað þær.
— Veit Jezzie nokkuð fyrir
sér í líffærafræði?
— Hún byrjaði aðeins á hjúkr-
unarnámi og stundaði það ?
nokkra mánuði. Hún hefði get-
að orðið góð hiúkrunarkona,
ímynda ég mér. Hún hætti vegna
þess að hún þoldi ekki lauslætið
í hinum hiúkrunarnemunum. Á
síðasta ári sagði ég Skip Kim-
berton að Jezzie þarfnaðist
hjálpar. Hún vann svolítið fyr-
ir mig á skrifstofunni. Eftirvinnu
til að lappa upp á bókhaldið
mitt. Ég hafði til þess stúlku
sem varð ástfangin og þegar hún
loksins skreið í hjónaband var
bókhaldið mitt allt komið í hund
og kött. Jezzie var fullkomin.
Hún var kát og ýelvirk. Hún
bjó yfir þessari einstöku mildi
sem getur verið lykillinn að
ákafri spennu.
— Hafði hún Ivkil að skrif-
stofu þinni?
— Já. Hverju máli skiptir það?
— Svo sem engu. Hvað varstu
að segja?
— Eitt kvöldið var ég að
rannsaka ungan mann, mjög
gaumgæfilega. Mjög gott eintak.
Hann var kominn úr öllu. Jezzie
vissi ekki að ég var með sjúkl-
ing inni. Hún kom skálmandi
beint inn. Hún afsakaði sig með
mestu rósemi. hörfaði út og lok-
aði á eftir sér. Ég hafði vænzt
ákafara viðbragðs frá henni, en
komst svo að því að hún sá
ungan mann í hvítum sjúkra-
hússslopp, sem náði niður fyrir
hné á honum, það var það sem
hún sá. Næst þegar ég sá Skip
sagði ég honum að Jezzie væri
veik. Ég vildi óska að ég hefði
haldið því til streitu. Ég trúi
nefnilega þessu öllu. Lucille,
Gus og öllu því. Hún er ekki
skrímsli. Hún hefur bara borið
of þunga byrði of lengi og nú
er hún að kikna.
— Og hvað er nú til bragðs
að taka?
— Sodium pentothal, dáleið-
ing. Það gæti hrifið aftur. En
afgangurinn yrði að vera eftir
beiðni hennar eða móður hennar
eða samkvæmt úrskurði réttar-
ins.
— Myndi hún segja þér hvað
hún hefði gert?
— Ég er víss um það.
Svo til þess að fá dómsúr-
skurð fyrir því verðum við að
fá hana til að beita einhverju
ofbeldi eða sleppa sér í vitna
viðurvist.
Nile hleypti í brýrnar: —
Farðu varlega. Farðu mjög var-
lega, vinur minn.
Klukkan átta næsta morgun
sátu Bart Breckenridge og Skip
Kimberton í stóru setustofunni
í íbúð Kimbertons á fjórðu hæð.
Skip var í slopp úr flóneli, inni-
skóm og var með sólarhrings
skegg.
Hann hristi höfuðið og sagði:
Ég horfi á hana og ég fæ
enga brú í þetta. Ég tala við
þig og þá er það ekki lengur
fjarstæða. Hversvegna verðum
við að reyna að gera svona
nokkuð. Er ekki hægt að leggja
þetfa allt fvrir Harv Walmo og
láta hann ganga frá öllu saman?
— Ég hef ekki minnsta snefil
af löglegum sönnunargögnum og
ég held ekki að hann geti fund-
ið neitt. Trúðu mér Skip. þetta er
þess virði að reyna það.
SkÍD slakaði á og benti með
þumalfingrinum í áttina að
stóru dvrunum. — Hún er þarna
frammi í fremri skrifstofunni
núna og vinnur eins og biarkur.
Hvernig heldurðu að þetta fari
með hana. Kannske lætur hún
sig þetta engu varða.
— Það verður að tefla á tvær
hætt.ur. Hún hefur komizt. unn
með þetta tvisvar. Nú er hún viss
um sig. Ég vil aðeins að hún fái
frekari ástæður. Ég vil ekki
gera meira til að koma henni
úr jafnvægi, en hun verður að
fá enn eina helgiköllun.
-— Ég er nú ekki mikill leik-
ari. sagði Skip.
Barbara kom út. úr svefnher-
berginu bar sem hún hafði haft
fataskipti. Hún var með úfið
hárið og hafði smurt á sig skær-
um varalit. Hún var í slonp
yfir gagnsæum náttkiól. Hún
fór hiá sér, þegar beir störðu
báðir á hana. — Er ég sennileg?
spurði hún súr.
Skip hristi höfuðið með undr-
un: — Ég var nærri því sann-
færður.
Bart. snéri sér að Skip. — Ég.
hef látið flytja Barböru í her-
bergi sem liggur upp að mínu,
númerin eru tuttugu og tutt-
ugu og eitt, svo ég geti verið
við höndina ef þetta hrífur. Nú
þurfum við ekki annað að gera
en láta þetta kvisast og bíða.
— Heldurðu að hún trúi svona
nokkru? spurði Barbara.
— Ég er hérum bil viss að hún
er undir það búin að sjá það
illa, hvert sem hún lítur, sagði
Bart.
— Við skulum ljúka þessu af,
sagði Skip. Bart gekk að stór-
um skápnum og gekk þannig
frá hurðinni að hann gat séð sem
mest, án þess að til hans sæist.
Barbara hnipraði sig upp í
horn á stóra leðursófanum og
tók glasið sem henni var ætlað.
Skip gekk að stóru dyrunum,
opnaði þær og kallaði:
— Jezzie? Góðan daginn. Viltu
aðeins koma hingað?
Góðan daginn, herra Skip,
sagði hún líflega og kom í gegn-
um dyrnar. stór. hjartanleg og
brosandi. Um leið og hún sá
Barböru hvarf brosið.
— Elskan, þetta er Jezzie
Jackman og það er hún sem
heldur öllu gangandi. sagði Skip
léttilega. — Jezzie, þetta er ung-
frú Barbara Horne, yngri syst-
ir Lucille.
— Sæl. sagði Barbara kæru-
leysislega. Hún saun á glasinu.
Jezzie kinkaði kolli en enginn
dráttur hreyfðist í andliti henn-
ar.
Skip hélt áfram og sagði: —
Jezzie ég ætla bara að segia
þér að Bai’bee hefur áloæðið að
stanza hér um hríð. Knnnske
lengi. Hún er vngri svstir Luc-
ille. Hún ætlar að halda til á
Motel Kamínu. þar t.il við get,-
um fundið henni betri stað.
Kannske íbúðina, sem Lucille
bafði. Ég veit bað ekki ennþá.
Ég vildi að bú hittir þana og
vissir um hana. -Tezzie. bvf ég
hef sagt henni að hún geti snúið
sér til bín ef hún barfnast ein-
hvers og év er ekki við og ég
vona að þú bregðist við bví,
eins og ég hefði saat, bér það.
— Ég er búin úr glasinu, vin-
ur. sagði Barbara sífrandi.
— Þú skilur hvað ég á við,
Tezzie? spurði Skip.
— Já.
— Þá geturðu haldið áfram
með það sem bú ert að gera.
Ég kem kannske fram í skrif-
stofuna seinna. Kannske ekki.
Þú sérð um þetta.
Jezzie snéri sér hægt við.
onnaði dyrnar og fór fram fyrir.
Dyrnar lokuðust og bað heyrðist
skellur þegar bær læstust. Bart
kom fram úr skánnum bað varð
vandræðaleg þögn.
— Ertu alveg viss. Bart?
spurði Barbara. Hún er svo sæt.
og indæl. Og hún leit út eins
og einhver hefði rekið rýting 5
hiarta hennar.
— Ég er níutíu og átta nrósent
Framhald á bls. 41
i3. tbi. yiKAN 15